Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Blaðsíða 16
ist hafði svo skollið á stórveldastyrjöld í álfunni,
með þeim alvarlegu áhrifum á málefni okkar Is-
lendinga, um viðskipti við útlönd, sem alkunnugt
er, og síyfirvofandi hættum og .erfiðleikum, sem
gerðu það nauðsynlegt, að þjóðin gengi samstillt og
óskipt að verki til lausnar þeim.
Fylgir ræða formanns skýrslu þessari, prentuð
eftir handriti.
II. Mál þau, sem fundurinn tók
til meðferðar.
Störfum fundarins var þannig hagað, að fram-
söguræður voru fluttar í hverjum málaflokki, en
að þeim loknum kosnar nefndir í hv,ert mál, sem
skiluðu síðan áliti og undirbjuggu grundvöll þeirra
ályktana, sem gerðar voru. Umræður um hvert mál
fóru fram, þegar nefndirnar skiluðu áliti í þeim.
Þessi mál voru rædd á fundinum:
1. Sjálfstæðismálið, frsm. Gísli Sveinsson, sýslum.
2. Skattamál, frsm. Magnús Jónsson, prófessor.
3. Landbúnaðarmál, frsm. Jón Pálmason, alþm.
4. Verkalýðsmál, frsm. Bjarni Benediktsson, pró-
fessor.
5. Iðnaðarmál, frsm. Helgi H. Eiríksson, skólastj.
6. Sjávarútvegsmál, frsm. Sig. Kristjánsson, alþm.
7. Starfsemi Sjálfstæðisflokksins og skipulags-
reglur flokksins, frsm. Jóhann Hafstein, lögfr.
8. Verzlunarmál, frsm. Árni Jónsson frá Múla,
alþm.
9. Utanríkismál, frsm. Thor Thors, alþm.
10. Fjármál, frsm. Jakob Möller, fjármálaráðh.
14