Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Blaðsíða 18
lendis, með öllum þeim ráðum, sem framast er kost-
ur á.
2. Skattamálanefnd.
Kosin í nefndina: Magnús Jónsson, prófessor,
frú Guðrún Guðlaugsdóttir, Guðm. Guðmundsson,
Keflavík, Jón Árnason, Akranesi, Elís Steinsson,
Oddhól, Rang., Magnús Jónsson, Borgarnesi, Stefán
Jónsson, Hafnarfirði, Guðjón Jósefsson, Ásbjarnar-
stöðum, V.-Hún.
Fundurirín samþykkti svohljáðandi ályktun:
1. Landsfundurinn heldur fast við þá stefnu
Sjálfstæðisflokksins, að innheimta beri sem mestan
hluta ríkisteknanna með aðflutningsgjöldum og tel-
ur í því efni lögin um tollskrá spor í rétta átt, til
betra yfirlits, einfaldari innheimtu og hægari vinnu-
bragða fyrir löggjafann, þótt vafalaust þurfi þar að
gera nokkrar breytingar á einstökum ákvæðum.
2. Landsfundurinn er mótfallinn þeim tekjuöfl-
unaraðferðum ríkisins, sem miða í þá átt, að draga
undir ríkið þann atvinnurekstur, sem einstaklingar
þjóðfélagsins geta ráðið við, þar sem slíkur atvinnu-
rekstur fer ríkinu ver úr hendi, er vafasamur til
tekjuöflunar, og sviftir bæja- og sveitafélög eðli-
legum gjöldum af þessum atvinnurekstri.
3. Landsfundurinn telur hina háu, beinu skatta,
er nú eru innheimtir til ríkissjóðs, skaðlega, þar sem
þeir bæði gera bæja- og sveitafélögum lítt kleift
að ná því, sem þau þurfa til lögboðinna þarfa sinna,
og verða þess valdandi, að menn skirrast við að láta
fé sitt í fyrirtæki og ala upp hjá mönnum tilhneig-
ingu til þess að draga fé sitt undan og halda því
16
J