Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Síða 33
skulu þau senda miðstjórn skýrslu um hverjir skipa
stjórn félagsins, meðlimatölu og helztu atriði félags-
starfseminnar.
2. Fulltrúaráð félagarvm:
1 kaupstðarkjördæmum, þar sem fleiri flokksfé-
lög starfa, skulu þau mynda sameiginlegt fulltrúa-
ráð, sem sé tengiliður á milli félaganna og hafi með
höndum yfirstjórn sameiginlegra málefna félag-
anna. Félögin koma sér saman um stærð, skipun og
starfssvið fulltrúaráðsins, og skulu skipa þeim mál-
um með sérstakri reglugerð, en miðstjórn sker úi,
ef samkomulag næst ekki milli félaganna um þetta
atriði.
3. Sambönd félaganna:
I sveitakjördæmum, þar sem fleiri félög starfa,
skal heimilt að mynda samband milli félaganna,
er komi fram fyrir þeirra hönd sameiginlega út á
við og gagnvart miðstjórn og sé að öðru leyti tengi-
Hður á milli félaganna.
VII. Um trúnaSarmenn.
1 hverju sveitakjördæmi, utan félagssvæðis al-
wennra flokksfélaga, skulu vera sérstakir trúnaðar-
menn, minnst einn í hverjum hreppi. Þar sem ekk-
ert almennt félag starfar í kjördæmi skulu trún-
aðarmenn þess kjördæmis mynda sameiginlega hér-
aðsnefnd. Slík héraðsnefnd skal halda fundi ekki
sjaldnar en einu sinni á ári. Stjórn héraðsnefnd-
ar skipa 3 menn, einn formaður, en að öðru leyti
skiptir stjórnin með sér verkum. Þar sem almennt
félag starfar í hrepp eða hluta af kjördæmi, skulu
31