Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Blaðsíða 20
2. Að bætt verði sem fyrst úr ágöllum þeim, sem
komið hafa í ljós á afurðasölulögunum og fram-
kvæmd þeirra, og stjórn þeirra mála fengin í hend-
um félagsskap framleiðenda sjálfra.
3. Að greitt verði fyrir því, að enginn fiskiúr-
gangur verði látinn fara forgörðum í landinu, held-
ur hagnýttur til áburðar, svo sem bezt má verða.
4. Að gerðar verði ráðstafanir til þess að reisa
rönd við því öfugstreymi og þeirri þjóðfélagshættu,
sem af því stafar, að hópur manna gengur atvinnu-
laus í kaupstöðum, samtímis því, sem ekla er á
vinnuafli í sveitunum.
5. Að rannsakaðar séu gaumgæfilega leiðir til
þess að greiða fyrir raforkumálum sveitanna og
stuðla að framkvæmd þeirra, þegar möguleikar
til þess verða fyrir hendi.
7. Að haldið verði í horfinu, eftir því, sem unnt
er, um vegagerðir og aðrar samgöngubætur í sveit-
um landsins, og yfirleitt kostað kapps um að greiða
götu manna að hagnýtingu á náttúrugæðum sveit-
anna til eflingar sjálfsbjargarviðleitni, öryggis og
afkomu landsmanna.
Ennfremur var samþykkt áskorun til þingflokks
Sjálfstæðismanna um að taka til athugunar hver
úrræði væru tiltækilegust varðandi .erlendan áburð
og nýrækt landsmanna.
4. Verkcdýðsmálanefnd.
Kosin í nefndina: Bjarni Benediktsson, prófessor,
frú Jónheiður Eggerz, Akureyri, frú Soffía Ólafs-
dóttir, Rvík, Sigurður Halldórsson, Rvík, Hermann
Guðmundsson, Hafnarfirði, Sveinn Jónsson, Rvík,
18
A