Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Síða 25
frjáls verzlun geti dafnað í landinu og sami réttur
gildi fyrir alla, sem sömu atvinnu reka, lætur fund-
Urinn það álit í ljós, að með framkvæmd gjaldeyr-
^slaganna hafi verið brotið í bág við þessa grund-
vallarstefnu flokksins á mjög áberandi hátt, meðal
annars með því, að kaupmönnum og sambands-fé-
lögum hefir ekki verið gert jafnt undir höfði í fram-
kvæmd gjaldeyris- og innflutningsnefndar. — Þótt
ekki hafi fengizt nema að litlu leyti leiðrétting þess-
ara mála frá því að núverandi stjórnarsamvinna
var hafin, þá gekk flokkurinn til samvinnunnar í
tví trausti, að viðunandi lausn fengist fljótlega.
Þar sem fundurinn lítur svo á, að mál þetta sé
fullkomið réttlætismál, telúr hann nauðsynlegt, að
bað fái viðunandi lausn án þess að frekari bið verði
a» og treystir ráðherrum og þingmönnum flokksins
til þess að ráða málinu farsællega til lykta nú þegar.
V iðbótartillaga:
Fundurinn lítur svo á, að afnám Raftækjaeinka-
fölu ríkisins sé spor í rétta átt, en of skammt geng-
í því að afnema einkasölur og ríkisrekstur. Þess
Vegna skorar landsfundurinn á ráðherra flokksins
að hlutast til um, að bifreiðaeinkasalan, viðtækja-
emkasalan og grænmetiseinkasalan verði lagðar
ruður, en áfengisverzlun og tóbakseinkasala ríkisins
séu sameinaðar í eitt fyrirtæki, ef ekki þykir fært að
^eggja hina síðamefndu niður, og myndi með því
sparast verulegar fjárhæðir fyrir ríkissjóð.
8. Fjármálanefnd:
Kosin í nefndina: Jakob Möller, fjármálaráð-
^erra, frú Elín Zoega, Reykjavík, frú Jónína Guð-
23