Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Page 26
mundsdóttir, Reykjavík, sr. Þorsteinn Jóhannesson,
Vatnsfirði N.-ísf., Þorsteinn Þorsteinsson, sýslum.,
Sigurjón Sigurðsson, Raftholti, Rang., Guðmundur
Björnsson frá Borgarnesi, Sigurgeir Guðmundsson
Njarðvík, Sigvaldi Indriðason, Skarði, Dalasýslu,
Guðmundur Þorvaldsson, Bíldsfelli, Árnessýslu,
Elías Jónsson, Bíldudal, Pétur Guðmundsson,
ófeigsfirði, Strandasýslu, Kristján Bjartmars,
Stykkishólmi, Magnús Jónsson, Borgarnesi, Harald-
ur Júlíusson, Sauðárkróki.
Fundurirm samþykkti svohljóðandi ályktun:
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 1940 skorar á
ráðherra og þingmenn ffokksins að framfylgja af
fremsta megni yfirlýstri stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins í fjármálum ríkisins, með ítrasta sparnaði á út-
gjöldum þess, eftir því sem frekast eru tök á, vegna
atvinnuskilyrða landsmanna.
IV. Starfsemi Sjálfstæðisflokksins og
skipulagsreglur flokksins.
I ræðu þeirri, sem flutt var um starfsemi flokks-
ins, var séstaklega vakin athygli á þeim nýungum
og útþenslu í starfseminni, sem hefði átt sér stað
frá því að síðasti landsfundur var haldinn.
Væru einkum þrír nýir áfangar, sem einkenndu
þetta tímabil:
1. Upphaf og starfræksla stjórnmálaskóla inn-
an vébanda flokksins.
2. Stofnun Sjálfstæðiskvennafélaganna.
24