Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Side 36

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Side 36
Ræða Ólafs Thors, atvinnumálaráð- herra, við fundarsetningu. Háttvirtu fulltrúar! Ég segi þennan landsfund settan og býð ykkur öll velkomin. Eins og kunnugt er, var síðasti landsfundur Sjálf- stæðisflokksins haldinn sumarið 1936. Samkvæmt flokksreglum á að halda samskonar fund annaðhvert ár, og hefði því átt að halda landsfund árið 1938. Sá fundur féll niður samkvæmt sameiginlegri ákvörðun miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæðisflokksins, en í stað hans voru haldin 12 héraðsmót víðsvegar um landið. Var þessi ákvörðun tekin vegna tilmæla ýmsra leiðtoga flokksins víða um landið og þótti vel gefast. Nú þótti hinsvegar sjálfsagt að draga ekki lengur að halda landsfund. Nokkru fyrir síðasta landsfund varð flokkurinn fyr- ir því mikla áfalli að missa formann sinn, Jón Þor- láksson. Frá því síðasti landsfundur var haldinn, er í valinn hniginn hinn aðalforingi flokksins, maðurinn, sem ásamt Jóni Þorlákssyni, allt frá stofnun flokks- ins, hafði borið hita og þunga dagsins. Magnús Guðmundsson lézt hinn 28. nóvember 1937, og hafði þá um nær 2 áratugi verið í fremstu röð á- hrifamanna á sviði stjórnmálanna. í okkar flokki þótti engu ráði vel ráðið nema áður væri leitað umsagnar Magnúsar Guðmundssonar, enda var hann vitsmunamaður, ráðhollur og góðvilj- aður, skapfestumaður mikill, stilltur vel, afkastamað- ur með afbrigðum og öllum mönnum fróðari um allt, sem að stjómarfari landsins laut. 34

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.