Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Side 39
Bændaflokkurinn, sem var í kosningasambandi við
Sjálfstæðisflokkinn, 2 þingmenn. Andstæðingar okk-
ar mikluðust mjög yfir þessum úrslitum, og hvað sem
öðru líður, verður að viðurkenna, að við Sjálfstæðis-
menn urðum fyrir miklum vonbrigðum. Ég get þó
ekki stillt mig um aðeins að fara nokkrum orðum um
þessa „stóru sigra“ andstæðinganna. Alþýðuflokkur-
inn er fljótt afgreiddur, því hann gerði hvorttveggja,
að fækka þingmönnum og atkvæðum frá kosningun-
um 1934. Það voru þá líka Framsóknarmenn, sem mest
gumuðu. Til þess að fá réttan samanburð um vöxt og
gengi þessa flokks, verður að leita aftur til kosning-
anna 1931, en þá hafði Bændaflokkurinn enn ekki
klofnað frá Framsóknarflokknum. Við þær kosningar
fékk Framsóknarflokkurinn 13800 atkvæði, en við
kosningaraar 1937 fékk hann 14500 atkvæði. Sjálf-
stæðisflokkurinn hinsvegar fékk við kosningamar
1931 17000 atkvæði, en við kosningarnar 1937 fékk
hann 24500 atkvæði, en átti auk þess a. m. k. 1500
þeirra atkvæða, sem talin voru Bændaflokknum,
vegna þess, að í þeim tvímenningskjördæmum, sem
flokkamir buðu fram í saman, var það vitað, að Sjálf-
stæðisflokkurinn átti yfirleitt mikið meira fylgi en
Bændaflokkurinn, en í opinberum skýrslum er at-
kvæðatölunni deilt jafnt á milli flokkanna. Raunveru-
leg atkvæðatala Sjálfstæðisflokksins var þannig 26
þúsund atkvæði. Á þessu sést, að á sama tíma er Fram-
sóknarmenn hafa bætt við sig 700 atkvæðum, hafa
Sjálfstæðismenn bætt við sig 9 þúsund atkvæðum.
Hitt er svo annað mál, að vegna óréttlátrar kjör-
dæmaskipunar fékk Framsóknarflokkurinn kosna 19
þingmenn, en Sjálfstæðisflokkurinn aðeins 17. Vitna
ég til þess, sem ég áður hef sagt, að 19 þingmenn,
37