Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Page 57
því, hversu heill og óskiptur flokkurinn komst út
úr þessu mikla misklíðarefni, og efa ég að slíkt
hefði tekizt öðrum flokkum, ef ágreiningur innan
teirra hefði verið hinn sami.
Um festingu kaupgjaldsins Iset ég nægja að leiða
athyglina að því, að enda þótt öllum megi vera
ljóst, hversu dýrmætur vinnufriðurinn æfinlega ,er
sérhverri þjóð, þá er þó alveg sérstök ástæða til
að fagna honum einmitt nú, þegar hættan á vinnu-
deilum er óvanalega mikil, en nauðsyn vinnufrið-
arins er ríkari en nokkru sinni ella. Ég lít svo á,
að engin von hafi verið um slíka löggjöf, ef ekki
hefði setið þjóðstjórn að völdum, og ég hefi til-
hneigingu til að staðhæfa, að enda þótt ekkert
gott hefði leitt af þjóðstjórninni annað en þetta
eitt, þá myndi hún þó með þessu hafa helgað sér
tilverurétt.
Ég leyfi mér enn fremur að minna á hitaveitu
Reykjavíkur, eitt hið merkasta mál, sem að fornu og
nýju hefir verið framkvæmt á þessu landi. Ég þykist
iriega fullyrða, að það sé að þakka samvinnunni,
að tekizt hefir að koma því máli heilu í höfn.
Að öðru leyti skal ég aðeins, að því er löggjöf-
ina snertir, minna á, að fjárlögin bera þess vitni,
að samvinna er á milli andstæðra flokka. Ella
hefði ekki reynzt fært að koma við þeim sparnaði,
aem raun ber vitni um, en halda þó uppi jáfn mikl-
um verklegum framkvæmdum.
Um samstarfið á Alþingi og í stjórn landsins vil
ég almennt segja þetta:
1 öndverðu voru að vísu margir hlynntir sam-
steypustjórn, en ýmsir voru þó andvígir samstarf-
55