Fréttablaðið - 24.03.2023, Blaðsíða 1
| f r e t t a b l a d i d . i s |
Frítt
2 0 2 3
KYNN INGARBL
AÐALLT
FÖSTUDAGUR 24. mars 2023
Mugison stígur á stokk í hádeginu í
dag í hátíðarsalnum í Aðalbyggingu
Háskóla Íslands. Mynd/aðsend
jme@frettabladid.is
Hvað er betra en að skella sér á
ljúfa tónleika í hádegispásunni á
fallegum vordegi? Líklega ekkert.
Hinni metnaðarfullu Háskóla-
tónleikaröð vindur áfram þetta
vorið og mun Mugison, öðru nafni
Örn Elías Guðmundsson, heiðra
eyru og sálartetur hlustenda í dag,
föstudaginn 24. mars, klukkan
12.15 í hátíðarsal Aðalbygg-
ingar Háskóla Íslands. Aðgangur er
ókeypis og öll eru velkomin. Fyrir
þau sem hafa ekki tök á að fara
á staðinn og berja goðið augum
eru tónleikarnir einnig sendir út í
streymi á livestream.com/hi.
Tónlist fyrir öll
Mugison þarf vart að kynna en
allt frá því hann steig fram full-
skapaður með plötunni Lonely
Mountain árið 2002 hefur hann átt
hug og hjörtu þjóðarinnar.
Háskólatónleikaröðin hóf göngu
sína með nýjum áherslum haustið
2020 og hafa listamenn af ýmsum
toga troðið upp. Umsjónarmaður
tónleikaraðarinnar og listrænn
stjórnandi er doktor Arnar Eggert
Thoroddsen. Að sögn styðst hann
við slagorðið „Háskóli fyrir alla –
tónlist fyrir alla“ og er myndast við
að endurspegla það í dagskránni.
Tónleikarnir í dag verða aðgengi-
legir á upptökuformi á vefnum
hi.is/haskolinn/haskolatonleikar
en þar má einnig nálgast upptökur
af fyrri Háskólatónleikum. n
Hádegistónleikar
Háskóla Íslands
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Ingrid Kuhlman og Helga Marín Bergsteinsdóttir hafa lengi starfað saman og kennt fólki að skapa sér sína eigin hamingju.
FRÉTTaBLaðIð/
eRnIR
Hefur skapað sér sitt draumalíf
Helga Marín Bergsteinsdóttir bjó í Dúbaí í 15 ár, rak þar fyrirtæki og kenndi námskeið um
bætta heilsu og betri líðan. Ísland togaði í hana og þá kynntist hún jákvæðustu manneskju
sem hún þekkir, Ingrid Kuhlman. Saman hafa þær deilt boðskapnum um jákvæða sálfræði. 2
KYNN INGARBLAÐ
FÖSTUDAGUR 24. mars 2023
Allt fyrir hótel og veitingahús
Ellen Dröfn fannst vanta þjónustu fyrir hótel á Íslandi og ákvað að stofna eigið fyrirtæki, Allt fyrir hótel. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað frá árinu 2017 þegar það var stofnað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Býður hágæða vörur fyrir hótelherbergi
Allt fyrir hótel er heildsala sem sérhæfir sig í vörum fyrir hótel og gististaði af öllum stærðum. Fjölbreytt úrval af
sængurfatnaði, dúkum, handklæðum, handsápum og baðvörum í mörgum gerðum ásamt áfyllingum. 2
HALLDÓR | | 8 PONDUS | | 14
Íslenskan
veitir vörn
á netinu
5 9 . t ö L U b L A ð | 2 3 . á R g A N g U R |
íþróttir | | 10
LíFið | | 18
Fréttir | | 4
tímamót | | 12
Pressa að vera
sonur Ladda
Hjartað sló hratt
í helgarneyslu
Gunnar aldrei
verið betri
F ö S t U D A g U R 2 4 . m A R S|
Tekin verður ákvörðun
um framtíð blóðmera-
halds árið 2025.
N Ó I SÍ R Í U S
N Ó I S Í R Í U S
Vinirnir Arnar Magni, Andri Pétur, Kristófer Nökkvi, Garðar Breki, Sigurður Logi og Alexander Logi úr Engjaskóla hafa
varið síðustu mánuðum í smíðar á þessu flotta trjáhúsi við Reynisvatn. Aðspurðir hvað hafi verið erfiðast við smíðina
segja þeir veðrið hafa verið krefjandi en að verkið hafi gert vinskapinn betri og nú séu þeir nánari. FréttabLaðið/anton
FiSkeLDi Framleidd verða 40.000
tonn af laxi þegar uppbyggingu
Samherja fiskeldis lýkur á Reykja-
nesi. 100 störf skapast. Hluti afurð-
anna verður fluttur út með flugi og
mikill aðflutningur í formi fóðurs
og fleiri þátta.
Heildarþyngd árlegra flutninga er
áætluð 100.000 tonn.
„Þetta kallar á endurhönnun og
styrkingu vegakerfisins til og frá
þessu svæði,“ segir Kjartan Már
Kjartansson, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ. „Það samtal er hafið milli
okkar og ríkisins. Við þurfum að
koma þessu inn á samgönguáætl-
un.“ Sjá Síðu 6
Styrki vegakerfið
vegna risafiskeldis
Erlendir hagsmunaaðilar eru
sagðir beita sér gegn banni
við blóðmerahaldi á Íslandi.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Dý R Av e R N D D ý r aver ndu na r-
samtökin Animal Justice segja að
erlendir svína- og sauðfjárrækt-
endur þrýsti á þingmenn hér að
samþykkja ekki bann við blóðmera-
haldi og erlend lyfjafyrirtæki beiti
sér fyrir mildara orðalagi í lögum.
Blóðmerahald var í deiglunni
2021 eftir að svissnesk dýravernd-
unarsamtök birtu myndband sem
sýndi blóðtöku úr fylfullum merum.
Úr blóðinu er framleitt frjósemislyf
fyrir svína- og nautgriparækt.
Sumarið 2022 ákvað Svandís
Svavarsdóttir matvælaráðherra að
breytingar yrðu gerðar á fyrirkomu-
laginu en blóðmerahald yrði áfram
leyft til ársins 2025. Að lokum yrði
lagt mat á hvort blóðmerahald verði
leyft áfram eða ekki.
Lyfjafyrirtæki þrýsta á alþingismenn
„Hagsmunahópar sauðfjár- og
svínabænda frá Frakklandi, Spáni,
Ítalíu og f leiri löndum eru þegar
farnir að þrýsta á íslenska þing-
menn að koma í veg fyrir bannið,“
skrifar Dan Howe, markaðsstjóri
Animal Justice, sem hafa höfuð-
stöðvar í Kanada. „Og lyfjafyrirtæki
eru að vinna að því að milda orðalag
löggjafarinnar.“
Kalla samtökin eftir því að blóð-
merahald verði bannað, bæði á
Íslandi sem og annars staðar. n
LOFtSLAgSmáL Lilja Dögg Alfreðs-
dóttir, menningar- og viðskipta-
ráðherra, fer til Brussel eftir helgi
til að funda með fulltrúum Evrópu-
sambandsins um hækkun kolefnis-
skatta ESB af flugi sem Ísland þarf að
óbreyttu að undirgangast.
„Þetta er stærsta hagsmunamál
fyrir Ísland á síðari árum,“ segir
Lilja. „Við höfum ekki sömu mögu-
leika og aðrar þjóðir á umhverfis-
vænum kostum“ segir Lilja. Sjá Síðu 4
Lilja vill telja ESB
hughvarf í Brussel
Lilja Alfreðs-
dóttir, menning-
ar- og viðskipta-
ráðherra
Vinirnir í
trjáhúsinu