Fréttablaðið - 24.03.2023, Side 10
Núna finnst mér Gunn-
ar aldrei hafa verið
betri. Hann gæti átt
inni þrjú mjög góð ár.
Pétur Marinó
Jónsson, MMA-
sérfræðingur
Hamingjusamur og hættulegur Gunnar
Pétur Marinó Jónsson, helsti
MMA-sérfræðingur þjóðar-
innar, segir okkur vera að
horfa á bestu útgáfu af UFC-
bardagakappanum Gunnari
Nelson þessa dagana. Leiðin
að toppnum sé möguleg en
það sé undir Gunnari komið
að ákveða að keyra á hana.
aron@frettabladid.is
UFC Gunnar Nelson vann yfirburða-
sigur gegn hinum reynslumikla
Bryan Barberena á bardagakvöldi
UFC í Lundúnum um síðustu helgi.
Gunnar kláraði Barberena í fyrstu
lotu.
„Þetta var ein besta frammistaða
hans á ferlinum, það er óhætt að
segja það,“ segir Pétur um frammi-
stöðu Gunnars í London. „Algjörlega
gallalaus frammistaða, hann hefði
ekki getað gert þetta neitt betur. Það
hefur enginn farið svona í gegnum
Barberena, það er það sem heillar
mig mest við frammistöðu Gunn-
ars. Allir sem hafa mætt Barberena,
vel þekktar stærðir í UFC, hafa verið
að lenda í meira brasi. Það eru ekki
margir sem hafa komist úr bardaga
gegn Barberena án þess að fá á sig
skrámu. Gunnar pakkaði honum í
fyrstu lotu.“
Skráði nafn sitt í sögubækurnar
Með sigrinum á Barberena, sem
Gunnar tók með uppgjafartaki,
setti hann nýtt met í sögu velti-
vigtardeildarinnar með flesta sigra
með uppgjafartaki. Þá er Gunn-
ar líka handhafi mets er varðar
bestu hittnina í þungum höggum,
höggum með eitthvað á bak við sig,
höggum sem valda skaða.
„Við getum alveg sagt að um sé
að ræða afar f lottan árangur hjá
honum og það í sögulega samhengi.
Það eina pirrandi við þetta er hins
vegar að metið er varðar uppgjafar-
tökin hefði átt að vera löngu komið
hjá honum en fyrsti bardagi Gunn-
ars í UFC, sem lauk með sigri hans
með uppgjafartaki, fór fram í henti-
vigt þar sem andstæðingur hans
náði ekki vigt. Annars hefði Gunnar
verið löngu búinn að ná þessu meti.“
Vill sjá Gunnar í búrinu í sumar
Gunnar hefur nú unnið tvo bardaga
í röð og sleppur óskaddaður úr bar-
daganum við Barberena. Hvernig
viltu sjá framhaldið hjá honum?
„Ég veit alveg að akkúrat á þessari
stundu nennir Gunnar ekki að vera
að hugsa út í næsta bardaga sinn í
UFC. Ég væri hins vegar helst til í að
sjá hann taka bardaga bara strax í
sumar, í júní eða júlí. Það er kominn
á kreik orðrómur um bardagakvöld í
Svíþjóð í sumar sem hljómar spenn-
andi. Khamzat Chimaev, einn mest
spennandi bardagamaður UFC, sem
á tengingu til Svíþjóðar, segir Dana
White, forseta UFC, hafa sagt við
sig að bardagakvöld í Svíþjóð yrði
á dagskrá í sumar. Það hljómar afar
vel í eyrum okkar Íslendinga og við
getum látið okkur dreyma um að sjá
Gunnar á því bardagakvöldi og að
hann snúi aftur í búrið sem fyrst.“
Eftir bardaga sinn gegn Barberena
lét Gunnar hafa það eftir sér í viðtali
að hann sæi fyrir sér titilbardaga í
náinni framtíð. Er það raunhæfur
möguleiki?
„Það veltur á því hvernig fram-
haldið horfir við honum og hversu
aktífur hann vill vera. Nú hefur
hann náð tveimur sigrum í röð en
enn er hann ekki kominn í topp
fimmtán sætin á styrkleikalista
veltivigtardeildarinnar. Gunnar
þarf að fá góða andstæðinga núna
í framhaldinu til að geta klifrað
upp listann en ég held að gamla
góða klisjan eigi bara við hér, hann
verður bara að taka einn bardaga í
einu og sjá svo til.
Ef maður ætti að teikna upp ein-
hverja tímaáætlun í þessum efnum
þá væri flott að sjá hann taka annan
bardaga í sumar. Mæta síðan í næsta
bardaga eftir það á fyrri hluta næsta
árs, þá er Gunnar 35 ára að verða 36.
Hann er ekkert með endalausan
tíma í þessu en á sama tíma þá leit
hann svo ótrúlega vel út í bardag-
anum í London að maður heldur að
hann eigi meira inni. Þetta var það
f lottur sigur. Að vera 34 ára í UFC
virkar kannski á mann eins og hann
eigi lítið eftir af sínum ferli en núna
finnst mér Gunnar bara aldrei hafa
verið betri. Hann gæti átt inni þrjú
mjög góð ár.“
Opnuðu augu Gunnars
En af hverju er Gunnar á svona
góðum stað á þessum tímapunkti
síns ferils? Pétur Marinó bendir á
einn þátt sem hann telur hafa haft
mikil áhrif á þróun Gunnars.
„Undanfarin f imm ár hefur
Gunnar verið í styrktarþjálfun hjá
Unnari Helgasyni og ég held að
það hafi breytt miklu fyrir hann
sem íþróttamann. Gunnar hefur
alltaf verið náttúrulega sterkur
en núna, þegar hann hefur verið
að bæta við styrk sinn í gegnum
þjálfunina hjá Unnari, hefur hann
orðið enn sterkari með betra þol
og snerpu. Það hefur verið ótrúlega
áhugavert og gaman að fylgjast með
þessari þróun hjá honum og maður
sér að Gunnar er farinn að treysta
skrokknum betur í sjálfum bardag-
anum.
Það hefur tekið markvisst átak
hjá þjálfurum hans að opna augu
Gunnars fyrir því að hann búi yfir
þessum þáttum í sínu vopnabúri,
að hann geti keyrt meira á þetta.
Gunnar hefur einnig viðhaldið sér
vel í gegnum þessi ár, hann hefur
ekki tekið mikinn skaða á sig og
tekið sér góðar pásur milli bardaga,
hvort sem að hann hefur þurft þess
eður ei.
Þá finnst mér ég sjá það á Gunn-
ari núna að honum líður einstak-
lega vel, ekki að honum hafi liðið
eitthvað illa í gegnum tíðina, hann
virkar bara á mann sem mjög ham-
ingjusamur maður. Það er alltaf góð
blanda að vera hamingjusamur og
vilja berjast, hafa ástríðu fyrir því
sem maður er að gera.“
Geti orðið heimsklassa þjálfari
Það var auðsjáanlegt í viðtali við
Gunnar, í bardagabúr inu eft ir
sigurinn á Barberena, hversu mikla
ástríðu hann hefur fyrir því að
þjálfa. Hvernig þjálfari er Gunnar
og hvernig er að vera í kringum hann
í Mjölni?
„Það er auðvelt að sjá ástríðuna
fyrir þjálfuninni hjá honum. Gunn-
ar hefur mjög gott auga fyrir smá-
atriðum, þá sérstaklega í glímunni.
Þessi pínulitlu smáatriði sem maður
hefði aldrei pælt sjálfur í en Gunn-
ar er fljótur að koma auga á hjá iðk-
endum í Mjölni, hvort sem það er
í hefðbundnum jiu-jitsu tíma eða
hjá keppnisliðinu, hann er góður að
koma auga á hluti sem þarf að laga
og góður í því að leiðbeina fólki.“
Það að leiðbeina fólki sé eitthvað
sem Gunnar hafi orðið betri í með
árunum.
„Þegar Gunnar fór fyrst að þjálfa,
fyrir einhverjum árum síðan, sótti
ég sem venjulegur tvítugur iðkandi
tíma hjá honum. Mér fannst oft
erfitt að skilja það sem hann var að
leiðbeina okkur með og hann átti
kannski erfitt með að koma leið-
beiningum rétt frá sér. Gunnar var
á þeim tíma afar efnilegur og ungur
bardagamaður og átti kannski
erfiðara með að skilja af hverju allir
náðu ekki að framkvæma það sem
hann var að reyna að koma frá sér
og gat sjálfur gert. Með árunum
hefur hann orðið betri í þessu og
fundið ástríðuna í því að miðla
sinni reynslu, kenna eitthvað og sjá
aðra framkvæma. Hann er að fá eitt-
hvað meira út úr þeim hluta núna en
hefur verið raunin áður.“
Pétur segir John Kavanagh, þjálf-
arann reynslumikla sem er meðal
annars með Gunnar Nelson og
Conor McGregor á sínum snærum,
hafa sagt að Gunnar geti orðið þjálf-
ari í heimsklassa á þessu sviði.
„Og gæti orðið það núna. John vill
hins vegar ekkert missa Gunnar frá
sér í það á þessari stundu, hann vill
bara sjá Gunnar inni í búrinu fyrst
hann er enn þá svona góður.“
Mætti tilbúinn til leiks
Gunnar vakti á því athygli í við-
tali eftir bardagann að hann hefði
heyrt mun betur í þjálfurum sínum
í bardaganum en áður hefur verið
raunin. Til að mynda lék þjálfari
hans, John Kavanagh, lykilhlutverk
í því að Gunnar fór í aðgerðina, tutt-
ugu sekúndum fyrir lok fyrstu lotu
gegn Barberena. Gunnar „tuttugu
sekúndur, högg og armbar“ kallaði
John á Gunnar og Íslendingurinn
fór eftir því.
„Það spilaði, að mínu mati, eitt-
hvað inn í þetta að Gunnar var
búinn að hita svo ótrúlega vel upp
fyrir þennan bardaga,“ segir Pétur
Marinó um þetta tiltekna atvik. „Ég
held að hann hafi aldrei tekið eins
ákafa upphitun og núna í London,
það var í raun eins og hann væri
búinn með tvær lotur þegar hann
steig inn í búrið. Það gerði það
kannski að verkum að hann hafi
verið svona extra tilbúinn og mót-
tekið frekar skilaboðin frá þjálfur-
unum og séð allt í kringum sig betur
heldur en áður.“
Á fullt erindi á toppinn
Bretinn Leon Edwards varði meist-
arabeltið sitt í veltivigtardeildinni
á bardagakvöldinu í London með
sigri á Kamaru Usman. Edwards og
Gunnar mættust í búrinu á sínum
tíma og bar Edwards þá sigur úr
býtum með klof inni dómara-
ákvörðun.
Gefur það Gunnari eitthvað að
sjá hann núna á toppi deildarinnar,
horfir hann núna og sér betur að
hann eigi fullt erindi í þessa efstu
menn?
„Það gæti vel verið þannig. Ég
held hins vegar að Gunnar viti, ég
vona alla vegana að hann viti, að
hann eigi fullt erindi í þessa gæja á
toppnum. Gunnar hefur alltaf verið
til í að mæta hvaða bardagamanni
sem er og er hvergi banginn þegar
kemur að þessum stóru nöfnum
deildar innar líkt og Usman,
Edwards eða Burns. Gunnar hefur
alltaf trú á sínum eigin hæfileikum
og að hann geti unnið hvern sem
er á góðum degi. Það er bara stað-
festing á færni Gunnars að menn-
irnir sem hann hefur verið að tapa
naumlega fyrir, Leon Edwards og
Gilbert Burns, séu þarna ofarlega á
styrkleikalista veltivigtarinnar.“ n
Gunnar Nelson
er á sigurbraut í
UFC, tveir unnir
bardagar í röð
og sjálfstraustið
í botni
Fréttablaðið/
Getty
10 íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 24. mARs 2023
FÖStUDAGUr