Fréttablaðið - 24.03.2023, Qupperneq 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Leiðir þeirra Helgu og Ingridar
lágu saman árið 2012. Þá bjó Helga
enn þá úti í Dúbaí en Ísland var
farið að toga í hana.
„Þar sem ég var búin að búa svo
lengi úti í Dúbaí þá þekkti mig
enginn á Íslandi, en ég fékk þá hug-
mynd að koma mér inn á markað-
inn hér með því að setja upp ráð-
stefnur og fá fræga fyrirlesara hér á
landi í lið með mér. Ég þekkti Eddu
Björgvins og spurði hvort hún
væri til í að taka þátt í ráðstefnu.
Þá sagði Edda: „Já, ég tek þátt og ég
veit um frábæra konu sem er algjör
snillingur,““ segir Helga.
Þannig kynntust þær Helga og
Ingrid fyrst en þær héldu saman
tvær ráðstefnur árið 2012 og 2013
um heilsu og sjálfseflingu ásamt
fleira góðu fólki. Síðan hafa þær
haldið saman fjölmörg námskeið
og komið saman að ýmsum verk-
efnum.
Þegar Helga fékk þá hugmynd
að halda námskeið fyrir kennara
til að auka áhugahvöt nemenda
leitaði hún aftur til Ingridar.
„Þegar ég fór að vinna með
Ingrid þá fannst mér hún svo öflug
og afkastamikil, hún kom hlutum
í verk og mér fannst Ingrid bara
geggjuð að vinna með. Ég hugsaði:
Það er engin betri til að vera með
mér í þessu námskeiði en Ingrid,“
segir Helga.
„Ég fer bara hjá mér, þú talar
svo fallega um mig,“ skýtur Ingrid
inn í. „En ég get sagt það sama
um þig, ég hef aldrei unnið með
manneskju sem er jafn skapandi
og hugmyndarík. Við höfum báðar
lært jákvæða sálfræði, sem er líka
kveikjan að samstarfi okkar og við
bætum hvor aðra upp. Við erum
yfirleitt sammála þegar við erum
að búa til námsefni og fyrirlestra,
sem er alveg ótrúlegt. Ég er mjög
þakklát fyrir að hún hafi leitað til
mín á sínum tíma.“
Helga hefur lokið háskólanámi
í sálfræði, heilsu- og íþróttafræði
og kennsluréttindum. Hún hefur
einnig lært dáleiðslu, NLP, mark-
þjálfun og fleira. Ingrid, sem er
fædd og uppalin í Amsterdam,
lauk aftur á móti meistaragráðu í
norrænum fræðum áður en hún
tók aðra meistaragráðu í jákvæðri
sálfræði.
„Ég hef búið á Íslandi í 26 ár. Það
var námið í norrænni fræði sem
rak mig til Íslands. Ég ætlaði að
fara til Svíþjóðar og hafa sænsku
sem aðalmál, en svo var ekki hægt
að fá styrk svo ég kom til Íslands.
Ég fékk styrk frá menntamála-
ráðuneytinu til að læra íslensku
fyrir erlenda stúdenta og tók það
á tveimur árum í staðinn fyrir
þremur. Svo kynntist ég mann-
inum mínum á Nýja-Garði, f ljót-
lega eftir að ég flutti til Íslands, og
þá varð ekki aftur snúið. Við eigum
tvö börn í dag og fyrirtæki og ég
varð íslenskur ríkisborgari fyrir 20
árum,“ segir Ingrid glöð í bragði.
„Ég verð að nefna það að Ingrid
talar fullkomna íslensku eins og þú
heyrir,“ skýtur Helga inn í. „Það er
hún sem prófarkales allt sem við
gerum þó að ég sé Íslendingurinn
og hún útlendingurinn, mér finnst
það frekar spaugilegt.“
Hundleiddist í skólanum
Helga segir frá því að í skóla hafi
hún lent í einelti en það sem
breytti lífi hennar var námskeið
sem hún fór á 23 ára gömul sem hét
Máttur hugans.
„Ég held að það hafi verið ástæða
þess að ég fór út í sjálfseflingu. Ég
fékk að kynnast þessu innra afli
sem við höfum öll og getum nýtt
á miklu betri hátt en við gerum,“
segir hún.
„Líf mitt í raun snerist við og ég
fór að læra allt sem tengdist því að
efla mig og efla aðra. Ég byrjaði á
heilsueflingu en svo lærði ég líka
NLP og dáleiðslu til að vinna í
gegnum erfiðar tilfinningar.“
Tuttugu árum eftir að Helga
hafði lokið tveimur BA-gráðum
fór hún aftur í háskóla til að klára
meistaragráðu en hún segist alla
tíð hafa elskað að læra og afla sér
nýrrar þekkingar. En þegar hún
fór aftur í háskólanám eftir allan
þennan tíma fannst henni eins og
hún hefði verið slegin utan undir.
„Mér fannst þetta bara hund-
leiðinlegt. Ég var komin á full-
orðinsaldur og stóð sjálfa mig að
því að læra undir próf í stað þess
að læra fyrir sjálfa mig og mundi
hvernig ég hafði gert það þegar ég
var í skóla á mínum yngri árum.
Mundi ég eftir einhverju sem ég
lærði þá? Ekki séns. Ég veit það
núna að þegar ytri hvatning stýrir
lærdómnum þá skilur það lítið
sem ekkert eftir. Það voru örfáir
áfangar skemmtilegir og ég velti
því fyrir mér hvers vegna. Þegar ég
fór í jákvæða sálfræði uppgötvaði
ég hver lykillinn væri. Þeir kennar-
ar sem kenndu skemmtilegu fögin
nýttu innri hvatningu í miklum
mæli en þeir sem kenndu leiðin-
legu fögin nýttu enga hvatningu,
eða ytri hvatningu,“ segir hún.
„Þessi reynsla varð upphafið að
kennaranámskeiðunum sem við
Ingrid erum að fara að halda. Þegar
ég fór að læra jákvæða sálfræði og
lærði um innri og ytri hvatningu
þá lærði ég að það er hægt að
breyta þessum kennsluaðferðum.
Það er okkur eiginlegt að þykja
skemmtilegt að læra. En ég var til
dæmis með fyrirlestur fyrir yfir
100 nemendur um daginn og þau
voru flest með hangandi haus og ég
fann fyrir miklu áhugaleysi. Ég sá
vanlíðan og þreytu skína úr augum
þessara nemenda. Þetta voru allt
nemendur sem voru að útskrifast
úr menntaskóla og ég hugsaði bara:
Guð minn góður, við þurftum að
breyta þessu.“ Hún heldur áfram:
„Ingrid er náttúrulega jákvæð-
asta manneskja sem ég þekki og
með þessum námskeiðum viljum
við snúa þessu við. Við viljum að
börn og ungmenni hlakki til að
fara í skólann og finnist gaman að
læra, það þarf ekki að vera leiðin-
legt í skólanum.“
Ingrid tekur undir þetta og
bendir á að rannsóknir sýni að
mikil vanlíðan og kvíði sé meðal
ungmenna eftir heimsfaraldur-
inn.
Skapar sér eigin vellíðan
Helga talar um að fólk festist oft
í fórnarlambshlutverki og átti sig
ekki á hvernig það getur skapað
sér sína eigin vellíðan.
„Ég hugsa að ef ég hefði ekki
farið á þetta námskeið þegar ég
var 23 ára, hefði ég ekki áttað mig
á hvað ég get gert margt til að
skapa mér það líf sem ég vil. Þetta
eru hlutir sem eru ekki kenndir
í skólum, samskiptahæfni og
tilfinningagreind er ekki kennt í
skólum. Það er ekki kennt hvernig
á að nota hugann á þann hátt sem
eflir mann,“ segir hún.
„Á kennaranámskeiðunum,
sem má lesa um á helgamarin.
com/upcoming-events, erum við
að gefa kennurum verkfæri til að
skapa sinn eigin raunveruleika
og byggja upp jákvæðari viðhorf
og hugsanir. Við gefum þeim líka
ákveðin verkfæri til að þeir geti
kennt börnum og unglingum að
breyta sínum hugsunarhætti.“
Ingrid segir að þær vinni með
innri áhugahvöt en ekki ytri
hvatningu.
„Við erum oft að nota ytri
hvatningu, eins og launahækkun,
stöðuhækkun, verðlaun eða fríð-
indi, sem er aðferð sem virkar í
ákveðnum aðstæðum en dregur
oft úr innri hvatningu. Innri
hvatning er þegar við gerum
eitthvað af því okkur finsnt það
skemmtilegt. Við höfum mikla
ánægju af því og það veitir okkur
vellíðan, tilgang eða gleði. Þetta
skiptir miklu máli. Gott dæmi um
ytri hvatningu er ef ég stend mig
vel á prófum til að fá umbun frá
foreldrum eða háar einkunnir.
Ef ég læri aftur á móti til að auka
þekkingu mína og af því mér
finnst það skemmtilegt, þá kemur
hvatningin innan frá.“
Ábyrgð á eigin hamingju
Ingrid og Helga segja að það sé
ekki spurning að þetta hafi þær
sjálfar tamið sér í sínu lífi.
„Kjarninn í öllum mínum
námskeiðum og fyrirlestrum
undanfarin tuttugu ár er að hver
er sinnar gæfu smiður, ásamt
spurningunni: Hvað get ég sjálf
gert til að auka vellíðan í daglegu
lífi? Þannig að ég nota klárlega
aðferðir í daglegu lífi til að koma
mér í jákvætt hugarástand. Ég
nota tónlist og klæðist litum og
nota húmor til dæmis. Við erum
oft svo upptekin af því að ein-
blína á neikvæðu hlutina og það
sem við einblínum á, það vex og
stækkar. Við berum öll ábyrgð
á að skapa okkur okkar eigin
hamingju og það er klárlega eitt-
hvað sem ég hef tamið mér,“ segir
Ingrid og tekur sem dæmi að hún
hafi lengi reynt að finna líkams-
rækt sem hentaði henni og hafi til
dæmis farið í spinningtíma sem
henni fannst aldrei skemmtilegir.
„Það var ekki fyrr en ég fór í
zumba sem ég fann þessa eðlis-
lægu ánægju. Ég hlakka til að fara
í tíma, þannig að ég náði að breyta
líkamsrækt úr einhverju sem mér
fannst leiðinlegt í eitthvað sem ég
vil helst ekki sleppa.“
Helga tekur undir þetta og segir
að allt sem hún hefur lært á síð-
ustu þrjátíu árum hafi gert henni
kleift að skapa sér sitt draumalíf.
„Með jákvæðni og opnum huga
koma tækifærin, en ef maður er
neikvæður og með lokaðan huga,
þá sér maður ekki tækifærin. Allt
sem ég hef lært finnst mér hjálpa
mér að byggja upp það líf sem
mig dreymdi um. Ég hef verið að
kenna nemendum að láta drauma
sína rætast, við höfum öll mögu-
leika á að láta drauma okkar
rætast ef við erum rétt stillt.“ n
Ingrid og Helga
hafa tamið sér
jákvæða sál-
fræði í eigin lífi.
FRéttABLAðið/
ERniR
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
Ég fékk að kynnast
þessu innra afli
sem við höfum öll og
getum nýtt á miklu betri
hátt en við gerum.
Helga Marín Bergsteinsdóttir
Það
var
ekki fyrr
en ég fór í
zumba
sem ég
fann þessa
eðlislægu
ánægju.
Ingrid Kuhlman
2 kynningarblað A L LT 24. mars 2023 FÖSTUDAGUR