Fréttablaðið - 24.03.2023, Page 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
bakþankar |
Einu sinni vorum við maðurinn
minn alltaf að ströggla með að
vera á réttum tíma. Við vorum
svo ung og bjartsýn. Bjartsýn á
að við næðum þessu alveg. Þetta
myndi allt bjargast. Svo þegar við
eignuðumst börn fór allt endan-
lega í steik.
Þá urðu handtökin svo mörg og
margt um að vera að maður þurfti
að byrja að undirbúa brottför af
heimilinu að minnsta kosti einni
klukkustund áður en lagt var í
hann.
Í dag er öldin önnur. Núna
erum við eiginlega alltaf mjög
tímanlega. Um daginn var okkur
boðið í mat. Gestgjafinn var með
handklæði utan um sig á leiðinni
í sturtu er við mættum. Hann
sagði alveg hlessa: „Bíddu, voruð
þið ekki einu sinni alltaf sein!?“
Hann hafði alveg stólað á það. Við
hughreystum hann með því að það
væri rétt.
Það er fallegt að vera góður við
ungt fólk sem er á síðustu stundu.
Það er örugglega að gera sitt besta.
Bjartsýni og börn geta sett strik
í reikninginn og hreint og klárt
reynsluleysi. Maður hreinlega veit
ekki nógu vel hvað hlutirnir taka
langan tíma.
Það er dyggð að vera á réttum
tíma en ég er þakklát fyrir að
ömmur og afar sem buðu okkur
stundum í mat voru nokkuð róleg
þegar við vorum ekki alltaf á
slaginu.
Gott samt að láta vita ef manni
seinkar eitthvað. En ekki gott að
bæta á stressið og streituna hjá
(ungu) fólki, sem hefur svo mikið
að gera og öll viljum við að allir
keyri rólega. Það er aðalmálið að
allir komist heilir á milli staða. Er
það ekki? n
Tíminn
Ebbu Guðnýjar
Guðmundsdóttur
Fyrir fólk í leit að
nýjum tækifærum
N Ó I S Í R Í U S
Veldu páskaegg frá Nóa
sem passar þér!
Páskaeggin frá Nóa Síríus eru tilbúin. Það eru spennandi nýjungar í
boði og egg sem hæfa öllum. Þau eru nefnilega allskonar, sæt stökk,
smá og stór en fyrst og fremst ómótstæðileg.
Skoðaðu úrvalið, veldu og njóttu!
N Ó I S Í R Í U S