Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Síða 11
FJOLNOTA KIRKJA
Viðtal við sr. Valgeir Astráðsson,
sóknarprest í Seljasókn.
Grein: Þorsteinn Þorsteinsson.verkfræðingur og
Kjartan Jónsson.innanhússarkitekt.
Sp. Þegar söfnuðurinn var stofnaður, að hverju komuð
þið? Allra fyrst er þess að geta að þegar áður en byggð fór að
myndast í Seljahverfi lá fyrir ákveðið skipulag. Skipulagið
gerði ráð fyrir að kirkjubygging yrði á því svæði, sem
kirkjumiðstöðin er, þ.e. í miðju hverfinu. Sú staðsetning hefur
þann kost að vera miðlæg og þar með em gönguleiðir tiltölulega
stuttar. Hins vegar er kirkjumiðstöðin í kvos og því hvorki
áberandi né auðratað þangað fyrir ókunnuga. Hvað staðsetningu
Seljakirkju varðar vega kostimir meira en gallamir.
Sp. Hvernig varsvo undirbúningur inn að kirkjumiðstöðinni?
Með hvað lögðuð þið upp? Hvað varðar undirbúning
framkvæmdanna þá var fyrst,hugað að því hvemig skyldi
standa að verki og hvaða starf mannvirkið ætti að hýsa. Oft er
það svo þegar kirkjubygging er ákveðin að valinn er myndar-
legur hóll og sett þar á falleg bygging. Síðast er svo reynt að
raða inn í húsið því sem þar á að vera. Sóknamefnd setti því
upp eins konar vinnulýsingu, sem kirkjubyggingamefndin
skyldi vinna eftir. Þar í stendur m.a.: „Skilningur sóknar-
nefndar er sá, að þörf sé fyrir húsnæði til safnaðarstarfs. Þurfi
það húsnæði fyrst og fremst að miðast við að veita trúarlega og
félagslega þjónustu í Seljasókn. Þar þurfi því að vera aðstaða
til guðsþjónustuhalds, aðstaða fyrir fundi safnaðarfélaga auk
aðstöðu fyrir þjónustu sem söfnuður í stórborgarsamfélagi
þarf að veita.”Sp. Hvenær kom arkitekt til skjalanna?Það
var þegar í upphafi ákveðið að ráða arkitekt til þess að vinna
með kirkjubyggingamefndinni og að ekki skyldi farið út í
samkeppni.Sp. Voru skiptar skoðanir innan nefndarinnar
um samkeppni? Nei, allir voru sammála um það. Sóknar-
nefndin gerði grein fyrir afstöðu sinni þannig:
„ Sóknarnefnd hefur ákveðið að ekki skulifara fram samkeppni
um hönnun byggingarinnar. Þeirri ákvörðun finnur sóknar-
nefnd stað í eftirfarandi:. 1. Kirkjubyggingervandasamtverk
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
9