Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Blaðsíða 80
stutt á milli rökrænnar
hugsunar ogfáránleika.
í arkitektinum takast
eilíflega á viljinn um sókn
- að sprengja rammann-
og þörfln um öryggi í hinu
þekkta.
EgillÁmason - Verslun
með gólfefni.
Hönnun verslunarinnar
á sér langa söguog hefur
vaxið ífljóum umræðum
við eigendurna
vinnuaðferð sem
grátlegafáir byggjendur
hafa dirfsku eða nennu
til að leggja á sig.
Húsnæðið var lagersa-
lur þar sem Cheerios og
Buglespakkar biðu
örlagasinna. Húsbyggt
úrforsteyptum einingum
og lítið lagt í, eins og títt
er um lagerbyggingar.
Salurinn heillaði mig í
frumstæðum hráslaga
sínum, ákvað ég því að
halda í þann karakterog
stýra rýminu á sem ein-
faldastan hátt.
Verslun sem þessi þarf
að höfða beint til vegfarandans og götunnar. Hraði
borgarlífsins og „gólfl götunnar ákvörðuðu úthverft
rými. Aðferð mín til að skilgreina rýmið var að láta
götuna mœta bakveggnum með hreinum opnunum,
eina truflunin þegar inn í rýmið er komið er risavax-
inn skrifstofutuminn sem gefur rýminu spennu.
Gólflð sjálft myndar rými í „götunni “ með lagskiptingu
mismunandi efna inn ab bakvegg. Þessi hugmynd
gengur hönd í hönd með því verkefni að ígólfefnav-
erslun á helst að sýna efnin á semfjölbreyttastan
hátt, ogþannig örva ímyndunarqfl viðskiptavinarins.
Hrá umgjörðin á að auka hlýju viðarins og
undirstrika ágæti steinflísa sem einnig er höndlað
með. lýsingin er í ætt við
lögmál götunnar.Stórir
verksmiðjulamparí4mhæð
ásamt halogenkösturum sjá
fyrir almennri lýsingu.
Varan sjálfer lýst með 12V
lýsingu sem dregur fram
glóðina og líflð í efhunum.
íslenska auglýsingastofan.
Fyrirtækiðerí stórbyggingu
þar sem ofanlýst
miðrýsameiginlegt þeim
fyrirtækjum sem þar reka
starfsemi. Inn-gangur í
auglýsingastofuna er
staðsettur við endann á
þessum risavaxna
þakglugga. Þarermóttaka
og aðáldeilirýmify rirtækis-
ins. Anddyrið sem er
aðaltorg starfseminnar
opnast inn á umferðarkerfl
þar sem við taka tvö önnur
torg sem auðveldaóformleg
skoðanaskipti starfs-
manna. Lögð var sérstök
áhersla afhálfu starfsfólks
áformlega móttöku og að
stöðva umferð óviðkomandi.
Innandyraferfram vinnsla
viðkvæmra verkefna þar
semfulls trúnaðar er gætt. Anddyrið er bundið af
formfestu við miðjuás ogþakglugga, ersjálftformfast
- hluti af áttstrendingi. Þetta innhverfa og klassíska
rými tók hug minn allanþar semþaðgerði sérstakar
kröfur um að vinna með áferð. Rýmið með gólfi sem
strikast inn á miðjuás hússins öðlast spennu með
áferð sinni.
Mjúkar og uppleystar línur stiga og afgreiðslu
mynda andhverfu við áttstrendinginn, viður mætir
stáli, gler mætirgraníti og blár litur rauðum. Lýsing
er öllfalin - undirstrikar og leysir uppform áttstrend-
ingsins sem teygir sig upp í dagsljósið. M
78
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG