Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Síða 13

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Síða 13
þar sem margirþœttirþurfa að komafram. Allt ofmörg dœmi eru um að þar hafi ekki til tekist sem skyldiBestum árangri verður að dómi sóknarnefndar náð, ef hönnun kirkjubyggin- gar er undirbúin rœkilega afsem víðustum hópi og sú hönnun gangnýnd á öllum stigum. Leggur sóknarnefnd því áherslu á, að hönnun verði unnin af arkitekt í samvinnu við starfsfólk safnaðarins undir umsjón byggingarnefndar. Þá komi allir aðilar sjónarmiðum sínum á framfœri þegar á hönnunarstigi. Starf arkitekts mun þannignýtast best í samvinnu við þá, sem húsið eiga að nota. 2. Samkeppni er tímafrek aðferð eigi að vera vel að henni staðið. 3. Samkeppni er dýrframkvœmd. Eðlilegt er aðfjármunum sé varið beint til byggingar. 4. Þungt vegur, að reynsla annarra safnaða af samkeppni um kirkjubyggingar er oftar slœm en hitt.” Sp. Að hvaða leyti eru arkitektar vanbúnir til að taka þátt í samkeppni um kirkjubyggingar?Arkitektar almennt eru ekki nógu kunnugir því hvemig kirkjubygging á að vera, og það heyrðum við oft sagt í upphafi er við ræddum við arkitekta, að kirkjubygging værimjögeinföldbygging.Sverrir Norðfjörð, arkitekt kirkjumiðstöðvarinnar, segir mér að hann hafi alls ekki gert sér grein fyrir því hversu flókin byggingin er. Það er vegna þess að líklega hafa engin hús eins fjölbreytta notkun og kirkjubyggingar. Það em svo ólíkar þarfír sem þurfa að rúmast í kirkjubyggingunni, t.d. bara kirkjusalurinn sjálfur. Auk þess þarf að taka tillit til feiknamikillar hefðar, sem að baki liggur. Sp. Voru aðrar kirkjur skoðaðar og teknar með inn í umræðuna? Við skoðum allar nýjar kirkjur, leituðum uppi kosti og galla og skoðuðumm þær afar krítískt. Við létum reikna út stærðir og flatarmál á íbúa í öðmm sóknum. Við fómm líka yfir lesefni bæði frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Norðurlöndunum og Þýskalandi og héldum marga fundi, skoðuðum bæði byggingar og uppdrætti, einkum grunnfleti. Það var úr ótrúlega miklu að moða. Þegar við vomm búin með alla þessa yfírferð, þá fyrst fómm við að huga að arkitekt til að teikna. Sp. Þessar fyrirmyndir sem þið skoðuðuð búa náttúrlega við mismunandi aðstæður, leituðuð þið fyrst og fremst eftir fyrirmyndum, þar sem aðstæður voru sambærilegar, t.d. hvað varðar stærð safnaðar? Við fómm í heimsóknir til svipaðra safnaða og ræddum við starfsmenn og kynntum okkur aðstæður bæði 10 ARKITEKTÚR OG SKIPULAG mm fyrir og á seinni stigum, því þeir þekkja það best sem eru í þessu daglega amstri. Að þessu leyti höfum við farið að öðruvísi en víðast annars staðar. Sp. Hvernig hefur svo til tekist? Ertu ánægður? Já Byggingin hefur reynst vel. Að vtsu er framkvæmdum ekki lokið. Mjög mikilvægir þættir eru ókomnir. Við settum okkur það í upphafí að taka þetta í nokkrum áföngum. Við emm í kyrrstöðu nú um tíma, en fljótlega verður tekið til við framkvæmdir á ný. Byggingin er í fjómm húsum og er kirkjusalurinn í stærsta húsinu. Hann er með því lagi, sem nú er að gerast víða í veröldinni. Áður var kirkjubyggingin gerð í beinni línu og var altarið girt af í öðrum endanum, en nú er stefnan alls staðar í veröldinni að færa altarið nær söfnuðinum. Það gildir ekki lengur þetta línulega fyrirkomulag. Altarið er sem næst söfnuðinum og víða er því komið svo fyrir erlendis að altarið er í miðju eins og í frumkristninni. Þessa fyrirkomulags var farið að gæta þegar á millistríðsárunum. Við fórum þessa leið að hluta við byggingu kirkjuskipsins þannig að það er möguleiki á miklum sveigjanleika. Salurinn tekur um 400 manns í sæti. Þó ekki sé lögð á það áhersla þá er hægt er að bæta við u.þ.b. 150 sætum og gerum við það stundum.. Sp. Hefur kirkjubyggingin fengið uppnefni? Ekki svo ég viti. Þegar við byrjuðum samstarfið við arkitektin baðHelgiHafliðason,arkitekt,enhannvar í kirkjubyggingar- nefnd, hann að hafa kirkjuna „látlausa en þó með fullri reisn” og ég held að það hafi tekist. Kirkjumiðstöðin er fremur óvenjuleg í útliti miðað við hefðbundnar kirkjur en hefur ekki gefiðtilefnitilneinsuppnefnisaðégviti. Sp. Núhafamargir fyrirfram hugmynd um hvernig kirkjur eigi að vera og þá jafnvel eins og dómkirkjan í Reykjavík. Nú er þessi eins fjarri því eins og hægt er að hugsa sér. Hvers vegna?Þessi hugsun að breyta út frá því að vera með smækkaða dómkirkju og byggingu eins og þessa, þetta náttúrlega gengi ekki nema allir, sem að þessu standa, viti um hvað þeir em að tala, að arkitektinn viti hver sé hin sérstaka þörf á þessum stað. Það er ekkert sem segir það að kirkjan hér í Seljahverfi hafí sömu þarfir og kirkja niðri í bæ. Það tekur langan tíma að finna út hverjar þessar þarfír em. Þannig er nauðsynlegt að vinna að undirbúningi á þennan hátt sem hér er. Sp. Hvaða þarfir og störf fara hér fram auk hefðbundinnar kirkju- guðsþjónustu? Guðsþjónustaerauðvitaðaðalatriðiðen getur haft mismunandi form. Sem dæmi má nefna margs konar 11 ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.