Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Qupperneq 36
Hugleiðing um steint
gler í kirkjum
Höf: Leifur BreiðQörð , glerlistamaður.
ÞAÐ er mikilvægt þegar byggja skal nýja kirkju að gera
ráð fyrir listaverkum og öðrum búnaði strax í upphafi, til
þess að ná fram sem sterkustum heildaráhrifum.
Þegar setja skal steinda glugga í nýja kirkju er æskilegt
að samvinna arkitekts og listamanns hefjist strax og
frumdrög að kirkju er gerð, til þess að þeir geti skipst á
skoðunum og fengið nauðsynlegar upplýsingar hvor hjá
öðrum. Með þessu móti er hægt að forðast mistök af
ýmsu tagi, hér kemur þá fyrst og fremst til hversu mikla
birtu steindir gluggar eiga að gefa og eins hvort þeir eiga
að móta umhverfi kirkjunnar og gefa einhvem lit, t.d.
heitan eða kaidan. Ef gult gier er sett í alia glugga í
hvítmálaðri kirkju verður allt með gulum blæ sem inni í
henni er. Af þessu má sjá að steindir gluggar eða litað
gler getur mótað birtu og liti kirkjunnar að innan. Steint
gler getur þvi breytt kirkjum til góðs eða ills eftir því
hvemig á málum er haldið. Steint gler getur farið illa
með annars fallega kirkju-byggingu og búnað, ef ekki er
rétt að verki staðið, jafnframt geta góðir steindir gluggar
sem hæfa byggingarstíl vel haft mikla þýðingu, t.d. of
dökkir gluggar svo að rökkur sé inni um hábjartan dag
og ekki hægt að lesa án rafmagnsljóss eða of litsterkir,
steindir gluggar sem bera ofurliði aðrar fingerðar
skreytingar og draga alla athygli til sín.
Á þessari upptalningu sést að náin samvinna arkitekts
og listamanns á fmmstigi getur komið í veg fyrir svona
mistök. Hún er mjög mikilvæg fyrir alla aðila til þess að
ná fram fullkomnum heildarsvip þar sem allt helst í
hendur: góður bygging-arstíll og steindir gluggar sem
falla rétt að byggingunni og em í tengslum við önnur
listaverk, t.d. mósaik, textil eða málverk, öll þessi atriði
þarf að ræða með arkitekt þegar fmmdrög að kirkju em
gerð, þó svo að listaverkin komi ekki til með að vera sett
upp fyrr en seinna.
Þegar gera skai steinda glugga í kirkju, sem þegar er búið
að byggja, og ekki hefur verið gert ráð fyrir þeim í upphafi,
Hluti af steindum glerglugga í Bústaðakirkju.
„Sköpunin“ Narðvíkurkirkju.
þá er nauðsynfegt að byija á þvi að fara á staðinn og gera
sér grein fyrir aðstæðum. Það þarf að athuga stærð
verksins, staðsetningu glugga, því heit sumarbirta eða
köld norðanbirta koma til með að setja svip sinn á
endanlegt verk. Síðan þarf að ákveða litaval og hvað
mikla birtu steinda glerið þarf að gefa, til þess að rétt
birtumagn verði í kirkjunni. Á þessari upptalningu sést,
hversu mikilvægt er að listamaður komi í viðkomandi
kirkju og geti gert fullnægjandi könnun. Einnig þarf að
gera sér grein fyrir því hvort eitthvað hindri sýn gluggans,
annaðhvort úti eða inni, vegna þess að það sem er fyrir
utan sést oft í gegn og getur hindrað verkið, sé ekki tekið
tillit til þess, t.d. húshlið eða brött fjallshlíð. Til þess að
forðast slíkt er m.a. hægt að nota ógagnsætt gler að hluta
til eða eingöngu en það er antikgler yfirlagt þunnu hvitu
ógagnsæju gleri, sem hefur þann kost að hleypa birtu í
gegnum sig, jafnvef þótt um óbeina lýsingu sé að ræða.
Utan frá séð er glerið hvitt, en venjulegt antikgler í nær
hvaða lit sem er verður dökkt. Þannig er hægt að skapa
listaverk, sem hægt er að njótajafnt utan frá sem innan,
þó að um hábjartan dag sé að ræða. Að vísu lítur það
öðmvisi út utan frá séð og minnir töluvert á mósaik.
Dagsbirtan hér á landi er kaldari og harðari en á megin-
landi Evrópu. Á vetuma gætir hér lítillar dagsbirtu, en á
sumrin er bjart nær allan sólarhringinn. Þetta em atriði
sem ég hef ávallt þurft að hafa í huga við gerð verka
minna. Taka þarf tillit til fjögurra atriða varðandi birtu.
í fyrsta lagi þegar verkið nýtur fullrar dagsbirtu séð
innan frá. í öðm lagi þegar sama verk er lýst upp að
innan að kvöldi til og dagsbirtu nýtur ekki lengur við.
Hér er það endurvarp lita í gleri og teikning blýlína sem
em mikilvægustu atriðin. í þriðja lagi verkið séð að utan
að degi til. Þar er það spegilmynd verksins sem sést.
Ávallt verður að taka mikið tillit til spegilmyndar hvers
verks. í fjórða lagi verkið séð að utan að kvöldi til, lýst
upp innan frá. Þetta em mjög þýðingarmikil atriði sem
þarf að taka tillit til svo að steint gler geti notið sín á öllum
tímum sólarhrings.
Hér á landi em byggðar margar nýjar kirkjur en það er
sjaldan gert ráð fyrir steindum gluggum í þeim. Yfirleitt
em þær byggðar of stórar og aflur kostnaður fer í að
byggja þær en þegar kemur að því setja í þær listaverk þá
er allt fjármagn á þrotum og vel það. Einnig em kirkjur
byggðar of flóknar og líkjast helst minnisvörðum um
hönnuði þeirra, í stað þess að hafa þær minni og
einfaldari að allri gerð en gera strax ráð fyrir listaverkum
og hafa til þess fjármagn. í mörgum nýjum kirkjum
finnst mér arkitektar ekki nýta sér hina miklu möguleika
sem steint gler býður upp á, t.d. fyrrgreinda möguleika
á að stjóma birtumagni og litblæ innan kirkjunnar og
einnig mósaik áhrifum steindra glugga með notkun
ógagnsæs glers sem endurvarps.
Glerlistamenn þurfa ætíð að geta lagað sig að umhverfi,
aðstæðum og mismunandi byggingarstíl. Það er erfitt til
að byija með, en með reynslu og ástundun verða
tæknileg atriði eins og stærðarhlutföll verks, birtumagn,
nauðsynlegar styrkingar, stílbrögð og hvort verk eigi að
vera óhlutlegt eða hlutlægt að sjálfsögðum og eðlilegum
hlut og hefta ekki sköpunarfrelsi listamannsins nema
síður sé. En það þýðir að listamaðurinn þarf að vera vel
skólaður og fjölhæfur. Þó svo að steindur gluggi sé gerður
í fullu samræmi við byggingarstil og sé hluti byggingar,
þá lít ég ávallt á hann sem sjálfstætt listaverk. ■
34
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
35