Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Side 74
ALÞINGI OG MIÐBÆRINN Höf: Valdimar
Kristinsson.viöskiptafrœöingur.
Þrátt fyrir gífurlega fjárfestingu íslendinga í alls konar-
byggingum á undanförnum árum og að því er virðist
ómœlda eyðslu hins opinbera á ýmsum sviðum er ekki
hœgt að segja að miklu hafi verið eytt í þœr opinberu
byggingar, sem helst œttu að endurspegla reisn
þjóðfélagsins.
Alþingishúsið var vel við vöxt fyrir hundrað árum (jafnvel
þótt áœtlaður kjallari þess yrði eftirí Bakarabrekkunni, þar
sem byrjað var að grafa), en er nú fyrir löngu orðið alls
ófullnœgjandi. Samt er engin samstaða um hvernig úr
skuli bœta. Hœstiréttur erí eins konar raðhúsi, sem einnig
er fyrir löngu orðið of lítið. Þá eru ráðuneytin dreifð út um
allan bœí misgóðu leiguhúsnœði, en undartekning er þó
Arnarhvoll, sem er í eigu húsráðenda.Nú eru þó bjartari
tímar framundan að því er varðar Stjórnarráðið og fleiri
ríkissfofnanir. Keyptar hafa verið aðalstöðvar Samband-
sins við hlið Arnarhvols og þótt það húsnœði sé ekki nema
rétt þokkalegt, þá gerir það kleift að sameina margar
stjórnarskrifstofur á einum stað, auk þess sem hœgt verður
að framlengja Arnarhvol við Ingólfsstrœti að Sölvhólsgötu.
Með því móti kemst betra snið og meiri reisn á gamla
Arnarhvol og hefði fyrr mátt vera.
Þá má síðar bœta „raðhúsi" Hœstaréttar við Arnarhvol
hinum megin og fá þarvirðulegan inngangíStjórnarráðið
frá Lindargötu. íþróttahús Jóns Þorsteinssonar yrði síðan
endurbyggt um leið og fyllt yrði í skarðið frá
Hœstaréttarhúsinu. Þessutilviðbótar hefurríkiðsvotryggt
sér nœrliggjandi lóðir niður að Skúlagötu og inn að Klapp-
arstíg.
Viðamesta framtíðarhugmyndin er þó ótalin, þaö er
bygging nýs stjórnarráðshúss við Skúlagötu. Hafa
sögufróðir menn bent á, að við hœfi vœri að slíkt hús yrði
fullbúið árið 2004 á hundrað ára afmœli Stjórnarráðs
íslands. Stórum bílageymslum mœtti koma fyrir á þessu
svœði, og ef mönnum sýndist svo hafa gönguleiðir
neðanjarðar á milli allra bygginganna.
í nœsta nágrenni Arnarhvols er Safnahúsið, sem bráðlega
hefur lokið upprunalegu
hlutverki sínu. Það hús œtti
að vera eins konar
miðpunktur
stjórnarráðshverfisins. Þar
mœtti setja Forsœtis-
ráðuneytið, ef það fœri ekki
í núverandi Hœsfaréttarhús,
en einkum œtti að nota
Safnahúsið fyrir fundi og
ráðstefnur.
Þótt ísland sé kotríki er
þjóðfélagið ekki svo aumt
að þurfa til frambúðar að
bjóða opinberum gestum,
innlendum sem erlendum,
upp í rishœð Rúgbrauðs-
gerðarinnar, eða í íbúðar-
hús við Tjarnargötu.
í Safnahúsinu er einn
virðulegasti salur landsins,
núverandi lestrarsalur, og
þar vœri hœgt að taka á
móti gestum með fullri reisn.
Annars staðar í húsinu eru
mörg herbergi og salir, sem
œttu að henta vel til ýmissa
fundarhalda og ráðstefna.
Tengsl við aðrar stjórnarráðsbyggingar gœtu verið
neðanjarðar eins og áður sagði.
Til þess að bœta umhverfið þyrfti að leggja af bílastœðið i
milli Safnahússins og Arnarhvols, hvort sem það yrði
niðurgrafið eða flutt annað, og gera þar garð er tengdist
endurgerðum Arnarhóli eins og skipulagshugmyndir munu
gera ráð fyrir.
Eftir þessar hugleiðingar um stjórnarráðshverfi skal nú vikið
að róttœkari hugmyndum. Þjóðleikhúsið þarfnast
gagngerra endurbóta. Því ekki að œtla því nýtt hlutverk?
Á Norðurlandaþingsfundum hefur það þótt henta vel til
72
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
þingstarfa. Hérerlagttil að húsinu verði breyttí Alþingishús
og þingið starfi eftir það í einni deild eins og off hefur
komið til orða. Við austurálmu hússins má reisa stóra
byggingu við Lindargötu fyrir skrifstofur Alþingis og
alþingismenn. Til rýmkunar að sunnanverðu mœtti síðan
flytja hús HÍP, Hverfisgötu 21, alveg að Smiðjustíg.
í virðuleikaskyni mœtti þó gera enn betur. Nú erujarðgöng
í tísku. Með bví að grafa inn í Hverfisgötuna fyrir neðan
Albýðuhúsið, og láta umferðina ekki koma upp á yfirborðið
afturfyrren austan við Smiðjustíg eðajafnvel Klapparstíg,
vœri hœgt að mynda eins konar torg fyrir framan nýja
þinghúsið með rólegri um-
ferð. Til frekari áherslu vœri
hœgt að flytja "verslunar-
hús Jóhanns Ólafssonar"
nokkru innarí lóðina.
Þarna vœri þingið komið í
nábýli við móttöku- og
fundarhús ríkisins (Safna-
húsið), og gœti það leitt til
margskonarhagrœðis. Þar
á meðal má nefna, að
sérbókasafn Alþingis og
Stjórnarráðs gœti verið í
hluta „Safnahússins" sem
þá héldi að nokkru sínum
fyrri einkenn-um. Varðandi
Þjóðleikhúsið sem stofnun
bendir margt til að hlutverk
þess minnki með tilkomu
Borgarleikhúss. Envelmœtti
hugsa sér, að leikhúsið sem
stofnun yrði sameinað
íslensku óperunni og sýndi
óperur og söngleiki í
tónlistarhúsinu við Suður-
landsbraut, sem hugmynd-
ir eru um að rísi þar. Líklegt
má telja að almennur leikri-
taflutningur í Borgarleikhúsi og hjá fjölmörgum starfandi
leikhópum muni fullnœgja eftirspurn almennings. Eitt leiði
r af öðru. Ef þingið flytti að Hverfisgötu yrði gamla
Alþingishúsið til ráðstöfunar fyrir aðra starfsemi.
Engri stofnun hentaði það betur en Hœstarétti og bar
með vœru húsnœðismál hans leyst. Miðja vega stœði
svo „Útvegsbankahúsið" umbreytt í dómshús, eins og
talað hefur verið um.
Að þessum breytingum loknum hefði Lýðveldið ísland
tekið til í stofu sinni, þar sem allt er nú á tjá og tundri. ■
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
73