Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Síða 82
STUDIO HUS hf. Það vekur athygli þegar gengið
er inn ð skrifstofurnar hjó STUDÍÓ HÚS hf. að Grensásvegi
16, að eiffhvað er öðruvísi en á venjulegum teiknistofum.
Hvergi er að sjá hin hefðbundnu fyrirferðarmiklu teikniborð
en hins vegar sitja menn einbeittir við tölvuskjái og á þeim
má sjá teikningar af húsum í lit og þrívídd sem velt er og
snúið á alla kanta.
Hönnuðurinn er að athuga hvernig nýtt hús sem verið er
að teikna muni fara innan um gömul hús í grónu hverfi.
Ljósmynd var tekin af lóðinni sem húsið á að standa á.
Ljósmyndin var síðan fœrð á tölvutœkt form með skanna
og teikningin af nýja húsinu sett inn á myndina með
tölvunni. Á skjánum má nú sjá nýja húsið í hlutfallslega
réttri stœrð innan um gömlu byggingarnar sem fyrir eru.
Arkitektinn getur skoðað hverfið frá öllum sjónarhornum
og gert sér grein fyrir útliti hverfisins eftir að nýja húsið
verður komið á sinn stað.
En það er fleira sem er öðruvísi hér en annars staðar. I
miðju skrifstofurýminu stendur lítið hús sem byggt er í
gamla stílnum og klœtt hinu sérlslenska byggingarefni.
80
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
V
ÍÍMK>l<k:
bárujárni. Það sem inni í þessu húsi er að finna er hins
vegar ekki á nokkurn hátt gamaldags enda er hér um að
rceða tölvubúnað af ýmsu tagi, prentara, skanna,
tölvuteiknara og önnur tœki.
Aödragandi og stofnun. Þeir Björn Einarsson inn-
anhússarkitekt og Gísli Grétar Gunnarsson
byggingafrœðingur verða fyrir svörum þegar spurt er um
fyrirtœkið. Það var snemma á þessu ári að fimm aðilar
tóku sig saman um að stofna fyrirtcekið Studio hús hf.
Markmiðið var að ná fram hagrœðingu með því að
samnýta húsnœði, tölvubúnað og annan tœkjakost.
Gífurlega ör þróun hefur átt sér stað á tölvusviðinu ekki síst
hvað varðar notkun tölva við hönnun og teiknivinnu.
Tölvubúnaður sem fullnœgir kröfum atvinnumanna er
hins vegar nokkuð dýr og því þótti tilvalið að gera tilraun
til þess að samnýta ýmsan búnað svo sem geislaprentara,
tölvuteiknara,skanna,skráarmiðlara,ljósritunarvélaro.s.frv.
Þeir sem að fyrirtœkinu standa eru teiknistofan Kvarði,
teiknistofa Björns Einarssonar, teiknistofan Tœknivangur
hf., byggingaverktakinn Faghús hf. og lögfrceðistofan
Lögmenn Grensásvegi 16. Með því að samnýta
tölvubúnað á þann hátt sem hér er gert sparast ekki bara
stofnkostnaðurvegnatcekjakaupa.Mikilvinnuhagrœðing
hefur einnig átt sér stað og húsnœðiskostnaður minnkar
verulega með samnýtingu af þessu tagi. Með tilkomu
tölvanna hefur sparast mikið pláss miðað við það sem
áður var. Ekki er lengur þörf á teikniborðum og
fyrirferðarmiklir skápar sem áður voru nauðsynlegir til þess
að geyma teikningar eru nú úr sögunni vegna þess að
teikningarnar eru allar geymdar á seguldiskum.
Tölvubúnaður, í eigu fyrirtœkisins eru fimm Macintosh llcx
tölvur og ein Macintosh llx. Við tölvurnar eru notaðir skjáir
af ýmsu tagi allt eftir því hvað hentar best verkefnunum
sem unnin eru á viðkomandi tölvu: Tveir 19" litaskjáir, einn
21" svart/hvítur skjár og einn 19" svart/hvítur skjár. Á
lögmannastofunni eru notaðir svart/hvítir skjáir í stœrðinni
A4, en þeir eru mjög hentugir við alla skjalavinnslu. Ein
Macintosh SE-vél er samnýtt sem skráarmiðlari eða
"server". Auk þess eru einn LaserWriter NT geislaprentari,
ImageWriter LQ nálaprentari, tölvuskanni og 8-lita
tölvuteiknari tengdir við tölvunetið.
Þegar rœtt var við þá Gísla Grétar og Björn kom í Ijós að
ýmsar tölvur og hugbúnaður hefðu komið til álita áður en
endanleg ákvörðun var tekin um að kaupa Macintosh-
tölvur. Björn hefur lengsta reynslu þeirra félaga í notkun
tölvu við teiknivinnu en hann fór snemma að nota Macin-
tosh tölvur, keypti sér Macintosh Plus um leið og hún kom
81
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG