Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Side 87

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Side 87
kröfur semgerðar eru til hans. Y sta byrði veggjar sem út snýr verður augljóslega fyrir mjög miklu álagi, og margvíslegar kröfur því gerðar til gæða þess:- Lagið þarf að hafa höggstyrk, stífleika og beygjustyrk til að þola umh ver- fisálag.-Lagiðer yfirleitt aðal slagregnsvörn veggjarins.- Efnislagið er í beinni snertingu við úrkomu og útiloftraka, rakadrægni þess þarf því að veraminni en svo að langtíma rakauppsöfnun geti átt sér stað.- Frostþol yfirborðslags þarf að vera gott,sérstaklega ef efnið er rakadrægt.- Rakaflæðimótstaða þarf yfírleitt að vera lítil í sam- anburð i við önnur efnislög innar í veggnum- Efnið þarf að þola raka- og hitaþenslu án þess aðspringa, en geislun frá sól og himni á hlýjumvordegi getur valdið því að yfirborðshitastig verði allt að 60 - 70 gráður.- Efnið þarf að vera viðhaldslítið, litheldið og má ekki vera skítsælt. Algengasta gerð útveggja hérlendis er steyptur veggur semeinangraðurerinnan. Ystabyrði veggjarinsersjálfsteyp- an eða múrhúðunarlag á steypunni. Slíkur veggur hefur sjálfkrafa marga af þeim eiginleikum sem að ofan eru taldir, en ekki alla. Helst skortir á að steypan eða múrhúðin hafi nægilega góða rakaeiginleika þar sem íslenskt fylliefni er tiltölulegarakadrægt borið saman við efni í öðrum löndum. Þol gegn raka- og hitaþenslu er einnig takmarkað, auk þess sem (byrjunar rýmunþurrkrýmun) getur auðveldlega sprengt yfirborðið. Veggir af þessari gerð em því alla jafna y firborðsmeðhöndlaðir til að gera y firborðið vatnsfráhrindandi og til að draga úr rakadrægni. Yfirborðsmeðhöndlun má ekki verða of rakaþétt þar sem veggurinnþarf að losna við byggingarraka, og ennfremur er almennt eitthvað rakaflæði innan úr húsrýminu og út í gegnum vegginn. Algeng yfirborðsmeðhöndlun nú em ýmsar vatnsfælur og opnar málningar.Steyptir veggir nýbygginga hafa einungis í undantekningartilfellum verið klæddir utan með útveggjaklæðningu,en til þessa en eðli málsins samkvæmt hafa timburveggir alltaf slíka klæðningu. Vegna ýmissa skemmda, þar sem orsakaerm.a. aðleitaí rakadrægni steyptra útveggja, þá færist nú stöðugt í vöxt að steyptir veggir húsa sem þegar hafa verið byggð séu klæddir að utan. KLÆÐNING ÚTVEGG JA. Útlit húsa ræðst m.a af lögun og hlutföllum vegg- og gluggafl ata, en fyrir mörg hús skiptir áferð og litur veggflata ekki síður máli.Þegar nýbygging er hönnuð með klæðningu í huga þá er frá byrjun hægt að íhuga UTVEGGIR -UTVEGGJAKLÆÐNING Höf: Bjöm Marteinsson ALMENNAR KRÖFUR . Útveggir ásamt gólfi og þaki af- marka húsrými frá umhver.fi sínu. Á suðlægari slóðum nægir oft að veggimir hindri innsýn í húsnæðið og gefi einhverja lágmarkshljóðeinangran. Á norðlægum slóðum þurfa útveggir hins vegar einnig að skýla fyrir harðri veðráttu, og jafnframt að standast veðráttuna án þess að ending verði ófullnægjandi eða viðhald mikið. Útveggur þarf þannig beinlínis að skýla fyrir veðri og vindum, auk þess sem hann þarf að hafa aðra þá eiginleika sem gera HELSTA ÁRAUN Á ÚTIVEGGI ÚTI INNI GEISLUN LOFTHITI LOFTHITI LOFTRAKI LOFTRAKI LOFTÞRÝSTINGUR ÚRKOMA ÝMSIR ÁVERKAR ÝMSIR ÁVERKAR kleift að stjóma inni aðstæðum, einkum lofthita, lofthreyfíng- um og rakastigi án þess að slíkt valdi óhóflegum kostnaði. Útveggir verða fyrir áhrifum margra veðurþátta auk þess sem inni aðstæður hafa einnig áhrif. Helstu eiginleikar sem útveggur getur þurft að hafa erueftirfarandúVeggurinn þarf að geta hindrað innsýn í húsrýmiðsé þess óskað- Hljóðeinangrun þarf að vera næg til aðumhverfishávaði sé ekki truflandi innandyra. Veggurinn þarf að geta uppfyllt nauðsynleg skilyrði er varða brunavamir og bmnaeinangmn.- Styrkur og stífleiki þarf að vera nægur til aðþola álag frá umhverfisþáttum, þar með talið veðurfar, án skemmda eða of mikilla formbrey tinga. Þegar um berandi byggingarhluta er að ræða þarf styrkur og stífleiki vitaskuld að nægja til slíks einnig.- Einangmn þarf að vera nægjanleg til að orkutap umvegg sé innan hóflegra marka,- Veggurinn þarf að vera vindþéttur til að loftstreymi í gegnum vegg valdi ekki of miklum loftskiptum innanhúss eða lofthreyfingum. Lofthreyfing í vegg máheldurekki verða svo mikil að einangmnargildið minnki.- Veggurinn þarf að hindra að vatn berist utan frá og inn í gegnum hann. - Veggurinn þarf að þola hitabreytingar, vatns - og rakaálag án skemmda. Almennt er veggur uppbyggður úr mörgum efnislögum með mismunandieiginleika, og þannig leitast við að uppfylla allar 84 ARKITEKTÚR OG SKIPULAG ARKITEKTÚR OG SKIPULAG 85

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.