Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Page 92

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Page 92
ARKITEKTAFÉLAGS FRÉTTIR Vinnufundur ACSA, AÍ og EAAE í Reykjavík dagana 6.-9 júlí Grein: Stefán Benediktsson.arkitekt. DAGANA 6.-9. júlí sl. var haldinn alþjóölegur vinnufundur í Reykjavík. Að þessum fundi sfóöu A.Í., samtök kennara í byggingarlistí Evrópu (EAAE) og samtök kennara í bygg ingarlist í Norður - Ameríku (ACSA). Fundur þessi var ein- stakur að því leyti að fulltrúar þessara stóru evrópsku og norður- amerísku samtaka voru að þinga opinberlega í fyrsta sinn. Efni fundarins var upphaf kennslu í bygging- arlist á íslandi. Ástœður þessa fundar eiga sér einn samnefnara sem er Bjarki Zóphóníasson, íslenskur arkitekt sem starfar í Sviss og kennir í Bandaríkjunum. Bjarki hefur tengst bœði evrópsku og norður- amerísku kennara- samtökunum, auk þess að hafa lengi haft áhuga á íslenskum skóla í byggingarlist. Áhugi hans og atorka á stœrstan þátt í að vinnufundur þessi varð að veruleika. Erlendir þátttakendur fundarins voru þrír frá Bandaríkju- num, einn frá Kanada, einn frá Danmörku, einn frá Noregi, einn frá Sviss og einn frá Bretlandi. Af hálfu A.í. tóku þátt fulltrúar menntamálanefndar og fulltrúar starfshóps sem fjallað hafði um spurninguna hvort skóli í byggingarlist á íslandi œtti rétt á sér. Auk þess sátu fulltrúar stjórnar A.í. fundinn og félagsmenn. Fulltrúi menntamálaráðuneytisins, Stefán Stefánsson sat fundinn einnig. Fundarstjóri varStefán Benediktsson. Fundartorm var með þeim hœtti að framsaga einstakra þátttakenda var felld inn í stöðuga umrœðu sem hófst seinni part fimmtudagsins 6. júlí og lauk síðla dags laugardaginn 9. júlí. Ásunnudaginn 10. júlí varfarið með erlendu gestina í ferð um Suðurland og skoðuð náttúra og stöku bygging- ar. Fundarlok vinnufundarins voru með þeim hœtti að helstu niðurstöður umrœðnanna voru teknarsaman með óform- legum hœtti, festar á blað og þýddar á ensku og íslensku. Hér var um að rœða þau atriði sem þátttakendur náðu að rœða til hlítar á þeim tíma sem þeir höfðu til starfans. Umrœðurnarvoru mjög lœrdómsríkarfyriríslensku þátttak- endurna. Umrœðurnarsnerustumsvörviðþeimspurning- um sem verða þegar stofna á skóla. Hvers vegna þarf íslenskan skóla í byggingarlist? Hvað á skólinn að vera til margra ára og hvaða námsgreinar eiga að vera í boði? Eiga nemendurað verja hluta námstímans erlendis og þá hvenœr? Hvar í menntakerfinu á skólinn að vera? Á hann að vera sjálfstœður, innan Háskólans eða utan eða í tengslum við aðrar menntastofnanir Háskólans? Hvaða ávinningur er af byggingarlistarskóla fyrir aðrar mennta- stofnanir, t.d. Háskólann? Hvernig á að vinna að því að skólinn verði stofnaður? Menningarlegtsjálfstœði og náttúrufarsleg sérkenniíslands eru nœg rök fyrir stofnun skóla til að mennta fólk í því að móta þá umgjörð sem umlykurfólk meira og minna allan sólarhringinn. Skólann á að miða við fullnaðarnám, er- lenda reynslu má nýta sér með margskonar hœtti þ.e. nemendur geta verið erlendis um skemmri eða lengri tíma en heimsóknir erlendra manna hingað eru líka gagnlegar. Mikilvœgust eru gœði skólans og það hlutverk hans að gera íslenska byggingarlist að þrœði í þeim vef sem kalla má íslenska menningu. Til þess er rannsóknarstarfsemi á sviði byggingarlistar nauðsynleg. Byggingarlist er blanda þekkingar úr listum og vísindum. Listrœn þekking og vísindakennisetningar renna saman í skýrt afmörkuð frœði byggingarlistarinnar. Þessi frœði eiga heima innan veggja Háskólans þar sem þau nytu stuðnings skyldra frœða um leið og þau vœru mikilvœg viðbót við heim Háskólans með umfjöllun sinni um sjónlist og hönnun. InnanA.Í. hefurumrœðanum byggingarlistarskóla staðið nokkuð lengi. Málið er nú komið á skrið fyrirtilstilli yfirvalda og áhugamanna innan félagsins. Þessi alþjóðlegi vinnu- fundur íslenskra arkitekta og kennara í byggingarlist frá Evrópu og Norður - Ameríku var feikna gagnlegur fyrir okkur íslensku þátttakendurna. Nœsta skref í baráttunni fyrir byggingar listarskólanum verður að fá ráðinn mann á vegum A.í. og menntamálaráðuneytisins til að skipu- leggja stofnun skólans. Eins er það mjög mikilvœgt að efna til samráðs allra þeirra aðila sem hagsmuna eiga að gœta á sviði byggingarlistar svo hœgt sé að njóta ráðgjafar þeirra við undirbúning og framkvœmd stofnunar skólans. Hér er um að rœða fulltrúa yfirvalda, verkfrœðinga, tœknifrœðinga, landslags og innanhúss arkitekta, byggingarmeistara, iðnaðarmenn, fulltrúa rannsóknarstofnana og Háskólans, listaháskólans og iðnrekenda. Miklu máli skiptir að A.í. eigi frumkvœði að því að skapa sem víðtœkasta samstöðu um þetta góða málefni og hlutist til um að gœtt sé hagsmuna allra þeirra sem tengjast starfi okkar. Erlendir gestir okkar og innlendir og fórnfúsir einstaklingar sem gerðu ráðstefnuna að veruleika eiga allir mikið þakklœti skilið fyrir þátttöku sína. ■ Fréttatilkynning frá Félagi húsgagna og innanhússhönnuða, FHI. Af gefnu tilefni vill stjórn Félags húsgagna og innanhússhönnuða vekja athygli þeirra er huga að námi í „Akademsik brevskole" á eftirfarandi: FHI er lögverndað félag, sem er aðili að alþjóðlegum samtökum húsgagna og innanhússhönnuða, International Federation of Interior Architects and Designers, IFI. IFI teiur að nám úr „Akademisk brevskole" fullnœgi á engan hátt inntökuskilyrðum í félög innan samtakanna, sem eru þriggja til fjögurra ára háskólanám(lágmark) eða jafngildandi nám úr listaskólum og sambœrilegum fagskólum. Að dómi IFI er nám úr „Akademisk brevskole" sambcerilegt eins árs námi úr viðurkenndum skólum. Stjórn FHI. ■ 90 ARKITEKTÚR OG SKIPULAG

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.