Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Side 13
á þessu ári og gert er ráð fyrir að hluti af búningshúsi verði
tekinn í notkun á sama tíma og því síðan lokið á árinu 1991.
Ákvörðun um framkvæmdir við yfirbyggingu verður tekin
síðar.
Þar sem gerð hafa verið vélfryst skautasvell, hefur
hvarvetna verið mikil aðsókn að þeim. Þá er ljóst, að
íþróttafélög munu taka ísknattleik upp á stefnuskrá sína,
ásamt listhaupi. Öll keppni er lífgjafi hverrar
íþróttagreinar, svo áður en varir fara félögin að keppa
innbyrðis, enda er gert ráð fyrir búningsherbergjum og ann-
arri aðstöðu fyrir iðkendur.
Miðað við þá stærð, sem sýnd er á teikningu, er
búningshúsið um 468 m2 og þannig hannað að það fellur að
væntanlegri yfirbyggingu yfir svellið.
Skautasvellið er af venjulegri stærð 30 x 60 m með
1.2 m háum hlífðarvegg allt í kring fyrir ísknattleik. Þá er
gert ráð fyrir rúmi fyrir leikmenn, samkvæmt reglum um
ísknattleik, til hliðar við svellið. Hægt verður að stækka
svellið þegar yfirbyggingin verður fullkláruð eins og fram
kemur síðar.
Fyrir utan svellið, er gert ráð fyrir ís- eða snjógryfju,
þangað sem íshefill mokar snjó og ís. I gryfjunni er hiti til
að bræða ís og snjó.
Utan við svellið hefur verið gerð tillaga að stæðum
fyrir áhorfendur. Verða þau í jarðhalla, sem væri hægt að
mynda að nokkru með uppgrefti sem kom upp þegar grafið
var fyrir steyptri plötu undir svellið.
Ef reiknað væri með 10 þrepum hvorum megin
verður rúm fyrir um 2.000 áhorfendur í stæðum. Inngangur
að húsi og svelli verður frá bifreiðastæðum, sem eru aust-
anvert við svellið, og ekið inn á þau frá framlengingu
Sigtúns.
YFIRBYGGT SKAUTASVELL
Þar sem rætt hefur verið um
að síðar verði byggt yfir svellið, þá
hefur verið gerð tillaga að húsi,
sem verður að stærð 45 x 88 m.
Þjónustuhúsið verður
óbreytt og fellur inn í fyrirhugaða
yfirbyggingu eins og fram kemur á
teikningum.
Reiknað er með að svellið
byrji 6 m frá þjónustuaðstöðu, er
það talið hæfilegt, þar sem m.a.
íshefillinn og önnur stór verkfæri
þurfa að athafna sig á þessu svæði.
Gert er ráð fyrir að húsið
verði einfalt að gerð, í raun eitt
þak borið uppi af límtrésbogum og
síðan settir upp gaflar. Gert er ráð
fyrir að rými í sætum og stæðum
verði fyrir um 2.000 áhorfendur.
Allir bekkir, bæði sæti og
stæði verða færanleg svo hægt sé
að nota svæðið fyrir tennis, hand-
bolta og hverskonar sýningar.
Húsið verður eins og fyrr
greinir 45 x 88 m. Breidd
ákvarðast af því að hægt verði að
æfa og keppa í öðrum
íþróttagreinum þversum, svo sem í
handknattleik og tennis. Kostnaður við byggingu vélfrysts
skautasvells án yfirbyggingar er áætlaður um 150 m.kr.
LAUGARDALSLAUG - böð búningsklefar
I maímánuðil986 voru opnaðir nýir búningsklefar
ásamt böðum við Laugardalslaug en framkvæmdir við
þessa byggingu höfðu þá staðið yfir frá 1981.
Húsnæði er samtals 3.085m2eða 11.510m3 Það
skiptist í kjallara, jarðhæð og þakhæð. Allur tæknibúnaður
hússins er staðsettur í kjallara. Á jarðhæð er rúmgóð
móttaka með afgreiðslu, kaffistofu og snyrtiherbergjum. Inn
af móttöku eru böð og búningsherbergi sem rúma 550 gesti
í senn. Utgangur til laugar er gegnum sundlaugarskála.
Ur sundlaugarskála liggur hringstigi upp á þakhæð
þar sem eru útiskýli og sólbaðssvalir. Þá var tekin í notkun
ný setlaug (iðulaug sunnan við sundlaugarskála. Setlaug
þessi er með vatnsnuddi og lofti er dælt upp um göt í botni
hennar.
Árið 1989 voru síðan teknir í notkun búningsklefar í
kjallara og þar eru einnig þrír æfingasalir fyrir júdó, karate
og sundfélög.
Hönnuðir hússins voru: arkitekt: Jes Einar Þor-
steinsson, burðarþol: Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen
hf. raflagnir: Rafhönnun fh. Lagnir: Hönnun hf. Umsjón
með hönnun, gerð útboðsgagna og byggingastjóm hafði
byggingadeild borgarverkfræðings.
VATNSRENNIBRAUT
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 1988 samþykkti
Iþrótta- og tómstundaráð að leggja til við borgaryfirvöld að
11