Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Side 29

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Side 29
Vegna mikillar ánægju með húsið, ákvað félagið síðan að byggja stærri sal við húsið, sem einnig hentaði fyrir tennis. Lengi hefur verið vöntun á sérbyggðu húsi fyrir fimleika. Þá hefur lengi staðið til að byggja hús fyrir júdó, en þar er keppt á sérstakri gólfmottu, sem hentar ekki öðrum greinum, iiema ef glímumenn okkar tækju upp þennan sið, sem gæti orðið til góðs fyrir okkar ágætu íslensku glímu. Verið er að ljúka byggingu sérstaks lyftigarhúss hjá K.R. sem lengi hefur vantað. Þessi þróun mun halda áfram á næstunni, en það verður til þess að örva starfið í mörgum íþróttagreinum. A næstu árum mun fjölnota íþróttahúsum fækka á höfuðborgarsvæðinu, en aftur á móti munu þau stækka. Ennþá eigum við ekkert hús, þar sem íþróttamenn geta æft alhliða frjálsar íþróttir innanhúss. Til þess að slíkt sé hægt þá þurfum við að eignast sal að stærð 55,0 x 75,0 m sem hefur auk þess nokkurt áhorfendarými. Þá mundi slíkt íþróttahús leysa margar þarfir okkar á komandi árum. Aðstaða til vörusýninga mundi gjörbreytast og tryggður yrði samastaður fyrir heimsmeistarakeppnina í handknattleik, sem hér á að fara fram árið 1995. Ef slíkt hús yrði reist, þá yrði allur rekstur ódýrari á hverja æfingaeiningu hjá íþróttafélögunum. í slíku húsi væri hægt að æfa á 24 völlum eða körfubolta á 10 völlum samtímis. Auk þess væri hægt að hafa aðstöðu fyrir hverskonar trimmæfingar til hliðar á efri hæð, þar sem allir áhorfenda- bekkir yrðu fjarlægðir. Slíkt hús verður því kærkomið fyrir íþróttahreyfinguna í framtíðinni og mundi tryggja vaxandi áhuga almennings á alhliða líkamsrækt þjóðarinnar. ■ GÍSLI HALLDÓRSSON 27

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.