Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Síða 33

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Síða 33
var hér um að ræða samþáttun almennrar félagsstarfsemi og íþróttastarfseminnar. íþróttahreyfingin hefur þróað sína eigin skipulags- uppbyggingu innan Í.S.Í. og U.M.F.Í. Þar er um að ræða tvð kerfi, sem skarast um íþróttastarfsemina. Þetta hvort tveggja endurspeglast í framangreindri lagasetningu. Hér við bætist skólakerfið, sem óhjákvæmilega tengist jafnt félagslegri starfsemi og íþróttastarfsemi í sveitar- félögunum. Þrátt fyrir það, að öll þessi starfsemi falli að meira eða minna leyti undir yfirstjóm fræðslumála (menntamála- ráðuneytið), virðist að skort hafi skipulega stjómun og framsýni m.t.t. íþróttaiðkana og áður nefndra tengsla skóla, íþrótta og félagsstarfsemi. Hér verður að vekja athygli á að ekki er verið að veitast að fyrsta íþróttafulltrúa ríkisins Þorsteini Einarssyni, sem hefur verið einn ötulasti og framkvæmdasamasti starfsmaður ríkisins um áratugi. Ábyrgðin hvílir hér á íþróttanefnd og ráðuneyti. Eftir þennan formála er skylt að setja fram hugmyndir um hvemig þessum málum skyldi best hagað til að fjármagn, mannafli og önnur aðföng nýtist sem best. Þó verður fyrst að draga fram í dagsljósið hlut íþróttafélaganna í framangreindri þróun. í Reykjavík og á stærri þéttbýlisstöðum hefur stjómun fþróttafélaganna beinst að einangrun þannig að hvert eitt félag ætti sína íþróttaaðstöðu, velli og hús. Af því leiðir visst skipulagsleysi um mannvirkjastærðir og seinagang framkvæmda. Ennfremur fylgir því viss vandræði sveitarfélaganna við fjárstuðning. Iþróttastarfsemin í landinu er þríþætt: 1. Skipulögð íþróttastarfsemi. 2. Skólaíþróttir. 3. Almenningsíþróttir, óskipulagðar. Þessi starfsemi stjómast af: 1. Iþróttafélögunum. 2. Skólayfirvöldum. 3. Þeirri aðstöðu sem sveitarfélögin veita. Mannvirki vegnaíþróttastarfseminnarráðastafþvíhvaða íþróttagreinar eru stundaðar og hvaða aðstöðu þarf fyrir starfsemina. Hin síðari ár hafa flokkaíþróttir orðið alls ráðandi í íþróttastarfinuþóaðeinstaklingsgreinarhafi þróasteinnig. Þá er íþróttaiðkun almennings fyrst og fremst einstaklings- bundin. Kröfur um aukna aðstöðu fyrir skólafþróttir og íþróttaaðstöðu ófélagsbundins almennings leiða af sér stærri og notadrýgri hús. í því sambandi á Þorsteinn Einarsson þakkir skyldar fyrir viðleitni sína til að auka normin fyrir stærðir skólalóða til að skapa aðstöðu fyrir velli til íþróttaiðkana. Skipuleg dreifíng íþróttamannvirkja hlýtur að vera með öðrum hætti á dreifðri landsbyggð en á stærri þéttbýlisstöðum, þar sem hverfaskipting einkennir byggðina. Ef það takmark er sett, að skapa um land allt sem jafnasta aðstöðu til íþróttaiðkunar, kemur það í hlut sveitarfélaganna að stuðla að því skipulagi að aðstaða og mannvirki nýtist sem best fyrir alla þrjá flokka notenda mannvirkjanna. Tveir flokkanna, þ.e. skólaíþróttir og almenningsíþróttir eru undir stjóm og á valdi sveitafélaganna. Með einokun ein- stakra íþróttafélaga á stórum mannvirkjum, húsum og völlum er hætta á að allt skipulagið verði dýrara bæði í framkvæmd og rekstri og nýting lakari. Þó verður að viðurkenna að svo er ekki í dag vegna skorts á íþróttahúsum. Hvað er þá til ráða? Það verður að skoða þennan þátt í þjóðlífinu sem eina heild. Fjármagn til íþróttamannvirkja kemur að mestu úr sameiginlegum sjóðum okkar. Það þarf að flokka mannvirkin m.t.t. þarfa íþróttagreina, mannfjölda og félagslegs hlutverks. Það þarf að skipuleggja dreifingu mannvirkjanna m.t.t. stærðar og almenns notagildis.Þessi skipulagning þarf að vera hluti skipulags annarrar félagslegrar þjónustu s.s. skóla- og útivistarsvæða. Hér er aftur komið að upphafi þessa greinarkoms. Lögin frá 1940 og 1947 stefndu að skipulegri stjómun á uppbyggingu íþrótta-og félagsstarfseminnar í landinu. í framkvæmd tókst ekki til sem skyldi um skipulagningu. Réð þar e.t.v. miklu áhrifavald sérhyggjunnar, sem einkennt hefur stjórnun íþróttamála hér í Reykjavík. Með þátttöku í alþjóðlegu íþróttastarfi er framundan brýn þörf á skipulegri uppbyggingu íþróttamannvirkja hér á landi svo að unnt sé að bjóða hingað til keppni erlendu íþróttafólki við viðunanlegar aðstæður. Til þess að svo verði þurfa áður nefndir aðilar: íþróttanefnd ríkisins, Í.S.Í., U.M.F.Í., samtök sveitarfélaga og menntamálaráðuneyti að taka saman höndum um stefnumótun þeirrar uppbyggingar. Þegar rætt er um skipulag í því samhengi, sem hér um ræðir, er það aðallega tvenns konar. Þessar sundurlausu athugasemdir hér að framan sýna okkur að það skortir heildar- skipulag. Hitt er að skipulag einstakra íþróttamannvirkja og þáttur þeirra í skipulagi sveitarfélaganna er áhrifamikill þáttur bygginganna í byggð og umhverfi. Skipuleg flokkun íþróttastarfseminnar og uppbygging einstakra íþróttahúsa og leikvalla yrði til þess að auðvelda samspilið við íbúðabyggð og skóla. Þá getur slík flokkun stuðlað að því að hin stóru, rúmfreku mannvirki dreifist með eðlilegum hætti um byggðina. Ennfremur er þá hægt að búa stóru húsin rúmgóðum áhorfendasvæðum og gera þau betur úr garði sem keppnishús. Allt hefur þetta áhrif á mælikvarða og form húsanna, þ.e. byggingarlistargildi þeirra. ■ SKÚLI NORÐDAHL Salur fyrir þjálfun og fimleika útivistarsvœöi skiptanlegur salur fyrir flokkaíþróttir og skólaleikfimi Dreifing og tengsl ráðist af íbúafjölda og dreifingu 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.