Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Qupperneq 39

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Qupperneq 39
Stefna ríkisins í gerð íþróttamannvirkja Við umræður um stefnu opinberra aðila í íþróttamálum og gerð íþróttamannvirkja ber að hafa það hugfast hve þáttur sveitarfélaga vegur þungt í þessum málum. í því sambandi er nærtækast að benda á hin nýju lög um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þar sem gerð íþróttamannvirkja verður fyrst og fremst í verkahring sveitarfélaga, þó að Alþingi muni áfram veita fé í íþróttasjóð til þess að styðja sérstök verkefni íþróttafélaga og samtaka í þvr' skyni að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Þá ber einnig að benda á þá áherslu sem lögð er á að íþróttafélögin og samtök þeirra fái aðstöðu og tækifæri til þess að þróast sem sjálfstætt afl í þjóðfélaginu með sem minnstum afskiptum stjómvalda. Ekki verður því þó neitað að ríkisvaldið hefur haft og mun hafa veruleg áhrif á þróun íþróttamála t.d. með árlegum fjárveitingum til þeirra, erlendu samstarfi stjómvalda á íþróttasviðinu, eflingu skólaíþrótta, setningu laga og reglugerða, fræðslustarfsemi og ýmiss konar starfi til samræmingar og leiðbeiningar. ALMENNT UM STEFNU RÍKISINS í ÍÞRÓTTAMÁLUM Fyrirnákvæmlega50árum, þ.e. 12. febrúar 1940,voru staðfest frá Alþingi lög um íþróttamál þ.e. íþróttalög nr. 25/ 1940 þar sem ríkisvaldið setti fyrsta sinn fram heilsteypta stefnu um þau málefni íþrótta, sem ríkið vildi láta til sín taka. I lögum þessum eru ákvæði um skipun íþróttanefndar ríkisins, ráðningu íþróttafulltrúa og stofnun íþróttasjóðs. Þar er ákveðið að íþróttir skuli iðka í öllum skólum landsins og að öll böm í landinu skuli læra sund og hafa lokið því námi fyrir 14 ára aldur. Iþróttanefnd var falið samkvæmt lögunum og í samráði við stjóm ÍSÍ og UMFÍ að skipta landinu niður í íþróttahéruð eftir legu og aðstöðu til samvinnu um íþróttaiðkanir og að ÍSI skuli vera æðsti aðili um frjálsa íþróttastarfsemi áhugamanna í landinu og koma fram erlendis af Islands hálfu, nema að því leyti, sem ríkisstjórnin kynni að velja til þess fulltrúa sjálf. Fyrir setningu íþróttalaga hafði ríkisvaldið nær eingöngu látið sig varða íþróttir í skólum en með tilkomu laganna myndaðist grundvöllur til verulega aukinnar samvinnu opinberra aðila og íþróttahreyfingarinnar um skipulag íþróttamála hér á landi. Urðu lögin þannig tvímælalaust mikil upplyfting fyrir íþróttastarfið í landinu og þó að nokkur ákvæði þeirra séu orðin úrelt og kaflinn um íþróttasjóð felldur niður halda þau enn að ýmsu leyti gildi sínu þó rétt væri að huga að endurskoðun þeirra sem fyrst. STEFNA RÍKISINS í GERÐ ÍÞRÓTTAMANNVIRKJA Þegar ritstjóri þessa ágæta rits fór fram á það við undirritaðan að gera í stuttu máli grein fyrir stefnu ríkisins í gerð íþróttamannvirkja benti ég honum á að þessi mál væru meðal þeirra sem nú væru í gagngerri endurskoðun með tilliti til samstarfs um þau með ríki, sveitarfélögum og íþróttahreyfingunni. Taldi ég því erfitt að setja fram á þessu stigi ákveðna stefnu opinberra aðila í þessum málum, en ég gæti rakið nokkuð þróun þessara mála, greint frá helstu atriðum er þau varða í nýrri lagasetningu og varpað fram ýmsum hugmyndum og spurningum til framtíðarinnar um uppbyggingu íþróttamannvirkja. Þetta verð ég að gera á eigin ábyrgð og byggja á fenginni reynslu í starfi, ýmsum skýrslum og tölfræðilegum upplýsingum. Þetta verða því engar yfirlýsingar stjómvalda um tilhögun þessara mála í framtíðinni. Jafnframt vil ég taka fram að í ýmsum öðrum greinum í þessu sama hefti mun verða komið inn á þróun aðstöðu til íþróttaiðkana fyrr á tímum og mun ég reyna að forðast endurtekningar og fara ekki lengra aftur en til íþróttalaga 1940. I íþróttalögunum eru ákvæði sem áttu eftir að hafa veruleg áhrif á gerð íþróttamannvirkja. Meðal þeirra mætti nefna: Iþróttasjóður skuli veita styrki til byggingar íþróttamannvirkja á vegum bæjar- og sveitarfélaga (ekki skóla) og viðurkenndra íþróttafélaga og samtaka þeirra að uppfylltum skilyrðum um samþykkt íþróttanefndar og menntamálaráðuneytisins. Iþróttanefnd er skylt að láta ókeypis í té allar leiðbeiningar og sérfræðilega aðstoð um gerð íþróttamannvirkja (ákvæði sem fellt var niður). Frá 1956 var ákveðið að styrkur íþróttasjóðs gæti numið allt að 40% af byggingarkostnaði íþróttamannvirkisins. Þarereinnigkveðið á um að bæjar-, sveitar- og sýslufélögum sé skylt að leggja endurgjaldslaust til hentug lönd og lóðir undir íþróttamannvirki sem styrkt eru úr íþróttasjóði eða íþróttanefnd viðurkennir. Heimilt er að taka land til þessa eignamámi ef þörf krefur. Viðurkenndum skólum og íþróttafélögum er veittur forgangur að notkun íþróttamannvirkja á þeim tíma sem eigendur nota þau ekki til íþróttaiðkana. Óheimilt er að selja eða gefa íþróttamannvirki sem styrk hefur hlotið úr íþróttasjóði nema með samþykki íþróttanefndar enda endurgreiðist þá fenginn styrkur. Bamaskólum í kaupstöðum og kauptúnum með 400 íbúum eða fleiri, öllum æðri skólum og heimavistarskólum skal séð fyrir hæfu húsnæði með heitu og köldu vatni og nauðsynlegum áhöldum til íþróttaiðkana. I bamaskólum í sveitum og kauptúnum með færri en 400 íbúum skal kenna nemendum þær íþróttir sem við verður komið í húsnæði skólans enda sé eigi völ á öðru húsnæði betra. Sérstök ákvæði eru um hæfilegt landsvæði eða leikvang við skólana fyrir útiíþróttir. Við gerð íþróttamannvirkja hefur það jafnan verið stefna ríkisins að sem flestir geti nýtt mannvirkin, að tekið sé tillit til sem flestra íþróttagreina og að samstarf sé um byggingu þeirra við sveitarfélög og/eða íþróttafélög og samtök. Þó voru fyrstu íþróttasalimir fyrst og fremst skólamannvirki og stærð þeirra og gerð miðuð við ákveðinn hæfilegan fjölda nemenda með einum kennara. Eftir því sem íþróttaiðkun varð almennari jukust kröfumar um stærð og gerð mannvirkjanna og rekur Gísli Halldórsson arkitekt í grein sinni í þessu hefti hvernig stærð íþróttahúsa þróaðist á þessu tímabili. Vegna hagkvæmni hefur sú stefna ráðið almennt við gerð íþróttahúsa og sundlauga að byggja þessi mannvirki í tengslum við skóla. íþróttahúsin hafa verið hönnuð sem eins konar fjölíþróttahús þar sem iðka má sem flestar íþróttagreinar. Afstaða ríkisvaldsins hefurþvíráðið miklu um stærð og gerð húsanna þó að heimaaðilar hafi að jafnaði getað haft síðasta orðið í þessum viðskiptum hafi þeir t.d. viljað byggja á eigin kostnað stærri hús en viðmiðun við skólakennslu leyfði. Leikfimisalur Miðbæjarbarnaskóla í Reykjavík. Reistur 1898. 36 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.