Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Page 46
við miðbæ bæjarins og því í
góðu vegasambandi og liggur
þar að auki að óbyggðu
útivistarsvæði. Fleiri kostir
fylgja stækkun íþrótta-
mannvirkja, svo sem betri
samnýting húsnæðis, tækja
og starfsfólks.
Því var ákveðið að
hanna og byggja sundlaug og
nýtt íþróttahús, fast tengt því
gamla. I nýja húsinu skyldi
vera m.a. löggiltur hand-
boltavöllur fyrir alþjóðaleiki,
aðstaða fyrir ca. 1100 áhorf-
endur og gæðakröfur eins og
best gerist hérlendis um
íþróttamannvirki. Með þetta
veganesti hófst hönnun
íþróttamiðstöðvarinnar árið
1987.
Að fella stóra
nýbyggingu að eldra húsi,
þannig að hvort tveggja haldi
sjálfstæði sínu, er ekki
vandalaust. Fyrir arkitekt er
þetta krefjandi, en jafnframt
skemmtilegt verkefni. Eg
kaus að skilja að gamla
íþróttahúsið og það nýja með
tengibyggingu, nokkurs konar
„stuðpúða“.
Til frekari áherslu á
sjálfstæði þess gamla og þess
nýja er samfellt gluggaband á
mörkum húsanna, einnig er
sterkur liturátengibyggingu.
Með þessum lit er jafnframt
lögð áhersla á inngang eða
fordyri íþróttamiðstöðvar-
innar. Til þess að draga úr
stærð nýja íþróttahússins,
þannig að það kúri sem best í
landinu, er það grafið niður
um 3 metra, þakform þess
bogadregið og litur dökkur.
Tengibyggingin er
þrjár hæðir alls 1298 m2 að
gólfflatarmáli. I kjallara er
þreksalur, tveir búnings-
klefar ásamt sturtuklefa,
sjúkraklefio.fl. Þaraðaukier
sérstök búningsaðstaða fyrir
útiíþróttamenn með sérinn-
gangifráútivöllum. Á l.hæð
eru fordyri, afgreiðsla og
búnings- og baðklefar fyrir
sundlaugargesti.
Gluggaveggur skilur að
fordyri og nýja íþróttasalinn,
44