Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Side 47

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Side 47
og er því frá fordyri hægt að fylgjast með fimleika- og íþróttafólki. Á 2. hæð verður lítill leikfimisalur, gufubað og aðstaða fyrir starfsfólk. Dagsbirta berst inn um áður nefnt gluggáband á 1. og 2. hæð tengibyggingar. Ur fordyri tengibyggingar er á neðra stigapalli gengið í búningsklefa gamla hússins og á efri stigapalli í þreksal gamla hússins, sem jafn- framt notast til veitinga- reksturs á fjölmennum íþróttaleikjum. Salargólf nýja íþróttahússins er um 29 x 48 m að grunnfleti, en húsið allt 1705 m2 að gólfflatarmáli. Gólfið er í sama fleti og kjall- ari tengibyggingar. Gönguleiðir kepp- enda og áhorfenda eru aðskildar, þar sem gestir ganga í sal beint úr fordyri. I íþróttasalnum eru útdrag- anlegir áhorfendabekkir og fréttamannastúka. Á gólfi er fjaðrandi parketgólf. Raflýsing er allt að 1000 lux og þá hæst við mörkin. Salurinn er jafnframt með góða loftræstingu og hljóðdeyfingu. Eftirtaldir íþróttavellir eru merktir: handboltavöllur (1), körfuboltavöllur (1), blakvellir (3), badminton- vellir (5), tennisvöllur (1). Þar að auki eru 2 æfingavellir merktir fyrir handbolta og 2 fyrir körfubolta. I salnum er gryfja ætluðfimleikafólki. Þaðbest ég veit er slík gryfja aðeins í einu öðru húsi hérlendis. Sundlaug er í krika milli tengibyggingar og nýja íþróttahússins og liggur þar vel við sólu. Auk sundlaugar og bamalaugar eru þar tveir heitir pottar, útisturtur og ýmis búnaður, sem gleður bömin. Utibúningsklefar eru einnig fyrir sundlaugargesti. Hiti er í öllum stéttum kringum sundlaug og í öllum gólfum tengibyggingar. Þessi mannvirki eru hönnuð ímjöggóðri samvinnu við byggingamefnd íþrótta- miðstöðvar og ráðamenn Garðabæjar og veldur það miklu hvernig til tekst. Við hönnun og mótun andrýmis (miljö) hefur það verið haft að leiðarljósi, að menn mættu fara frá leikjum og líkamsþjálfun glaðir og hvfldir á sál og líkama. ■ MANFREÐ VILHJÁLMSSON. Ljósmyndir eru frá ÁSGARÐI og voru teknar af Guðmundi Ingólfssyni. Hönnuðir arkitekt: Manfreð Vilhjálmsson, aðstoðarmaðurlngi Gunnar Þórðarson, burðarvirki og lagnir:Almenna verkfræðistofan raflagnir: Rafhönnun hf. verktaki: S.H. verktakar 45

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.