Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Page 49

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Page 49
 / 0«\V>ePPni um nýtin % URDRATTUR UR GREINARGERÐ HÖFUNDA 1. VERÐLAUNA: Segja má að í Viðey endurspeglist saga lands og þjóðar, allt frá landnámi Ingólfs Arnarsonar fram á 20. öldina. Sagan er skráð sem fornminjar, í handritum, sem minningar um merka menn, í rústum mannvirkja og í byggingum sem enn eru notaðar. Eyjan er því einstök, vegna þess að á tiltölulega afmörkuðu svæði má kynnast „ spjöldum sögunnar Það er álit höfunda tillögunnar að nauðsynlegt sé, að eyjan haldist sem mest ósnortin, en verði samt gerð aðgengileg vegfarendum til skoðunar. Þar sem ný mannvirki rísa skulu þau falla vel að umhverfi, en verða jafnframt til þess að auka á fjölbreytni eyjarinnar og notagildi. Lagt er til að Viðeyjarstofa, kirkjan og allt næsta umhverfi verði áfram þungamiðja eyjunnar. Haldið verði áfram uppbyggingu þar og umhverfið unnið áfram. Sjóminjasafn. V -6V Götugögnum verði komið fyrir og hleðslur úr grjóti afmarki rústir í næsta nágrenni. Yfir rústir norðan megin við Viðeyjarstofu þar sem mest hefur verið grafið eftir forn- leifum komi yfirbygging úr torfi, ■ grjóti og gleri. Þannig er hægt að ' sýna almenningi dæmi um s fomleifauppgröft. Lagt er til að bústaður staðar- haldara verði færður fjær Viðeyjarstofu. I dag liggur gamall vegarslóði fráViðeyjar- stofuaðgömlum hafnar mannvirkjum á austur hluta eyjarinnar. Lagt er til að ~ hann verði steinlagður, upplýstur og fram- lengdur að vesturenda eyjunnar. Þar kæmi útsýnisviti. Ekki ergert ráð fyrir vélknúnum ökutækjum nema til þjónustuflutnina. Allir fólksflutningar fari fram með hestvögnum. Hægt verður að aka þannig eftir allri eyjunni. Út frá þessari aðalgtöu liggja malargöngustígar og traðir sem lögð verða í landið eftir aðstæðum á hverjum stað. Þessir stígar liggja að áhugaverðum stöðum á eyjunni. Við hvem stað eru tilhöggnir steinar sem á verður letruð saga viðkomandi staðar. Á austurhluta Viðeyjar þar sem áður var útgerðarþorp komi nýr hafnargarður sem verður aðalaðkoma til eyjarinnar. Einungis verður fært út í hana sjóleiðina. I tengslum við væntanlega byggð í Geldinganesi sigli ferja reglubundið með viðkomu í Viðey og endastöð í Sundahöfn eða Reykjavíkurhöfn. Við höfnina í Viðey rísi Sjóminjasafn borgarinnar, þar sem saga útgerðar og siglinga er rakin. Húsin verði felld að hluta inn í landið og snúi stöfnum að sjó. Sumir hinna gömlu húsgrunna fengju nýtt gildi með því að nota þá sem hluta af torgi framan við safnahúsin. Þar verði einnig upplýsinga- miðstöð og biðskýli vegna ferjunnar. Með slíku markvissu skipulagi í Viðey, þar sem núver- andi staðhættir eru styrktir og eyjunni raunar lítið breytt, telja höfundar, að þessi náttúruperla verði best varðveitt. Eyjan verður um leið gerð aðgengileg og áhugaverð fyrir almenn- ing, sem útivistarstaður við sjóinn, líkt og Heiðmörk og Bláfjöll eru inn til landsins. ■ Þ. Þ. B.Ó.S . E.G. 47

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.