AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Side 17

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Side 17
Habila markað auk fjarkennslu á upplýsinganetum mun valda því að: A. Harðna mun til muna alþjóðleg samkeppni um nemendur. Þeir kennarar og þær kennslustofnanir sem ekki aðlaga sig þessum nýju möguleikum og nýta þá munu á komandi árum missa marga spæni úr öskum sínum. Líklega munu þessi áhrif koma hægt þegar á heildina er litið því að í öllum menntakerfum og viðhorfum nemenda til náms og tak- mörkuðum hæfileikum þeirra til sjálfsnáms er fólgin mikil tregða. Þannig mun fólk sem ekki getur lært án þess að hafa yfir sér persónulegan stjórnanda, það er kennara, ekki geta nýtt sér hina nýju möguleika nema að takmörkuðu leyti. Þennan hóp fylla flestir enn sem komið er. B. Fjöldi nýrra tækifæra mun opnast fyrir þá sem ná tökum á tækninni og beita henni sér til framdráttar, til dæmis í viðskiptum. C. Framleiðni í fræðslu mun aukast mjög þar sem unnt reynist að beita tækninni. Reynslan sýnir að gera má ráð fyrir tvöföldun til þreföldunar hennar. NÚVERANDI STAÐA Enn er langt í land. Veraldarvefurinn frægi sem margir virðast halda að innihaldi mestalla þekkingu og upplýsingar mannkyns er enn sem komið fremur tómlegt fyrirbæri miðað við það sem framtíðin mun bera í skauti sér. í nýlegum leiðara ítímaritinu INTERNET WORLD segir ritstjóri þess að „vefurinn innihaldi einkum hálftómar heimasíður sem vísi á aðrar heimasíðursem einnig eru hálftómar!" Annar INTERNET-spek- ingur hefur nýlega sagt að mikið af þeim umræðum sem fara fram í þúsundum umræðuhópa netsins séu að mestu innantómt skvaldur (e. vacuous chatter). Þetta veit hver og einn sem gefið hefur sér tíma til að skoða það sem í boði er. INNIHALDIÐ SKIPTIR ÖLLU Það sem mestu skiptir á komandi árum er því að auka til mikilla muna framleiðslu á hágæðaefni og hugbúnaði sem gerir það einhvers virði að nýta fjarskipti eða tölvur til að afla upplýsinga og þekkingar. Einn fyrrgreindra spekinga orðaði þetta svo nýlega að „innihaldið verði ríkjandi þáttur" (e.“The content will be the king“).Þetta er langtum meira og dýrara verk en að koma upp tækjum og fjarskiptabúnaði.Og þetta er endalaust verkefni sem Ijóst er að menntastofnanir og fræðsluaóilar munu sinna í sívaxandi mæli á komandi árum. Þannig verða háskólar og jafnvel framhaldsskólar að „upplýsingaverksmiðjum“sem framleióa gagnabanka með hagnýtu námsefni og hverskyns öðrum gögnu. Þetta nýja hlutverk menntastofnananna mun gera þeim kleift að taka kröftuglega til hendinni við hið gríðarlega símennta verkefni sem við blasir. ■ Færanlegir veggir Felliveggir Glerveggir Glereiningar Rennihurðir Sérsmíöaöar huröir Hljóöeinangrun, hönnun og gæöi í brennidepli Leitiö uppl.hjá Ide\ Sundaborg 7-9 104 Reykjavik Tel: 91 68 81 04 Fax: 91 68 86 72

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.