AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 25

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 25
tekur að sér að annast þjónustu sem að hluta til er greidd af ríkinu en að hluta með sjálfsaflafé. For- ræði verkefnisins er að öllu leyti hjá seljanda. Með þessu formi er hægt að tryggja nauðsynlega þjónustu sem er ekki að fullu markaðshæf. Dæmi: íþróttamannvirki þar sem hið opinbera leigir hluta af tímunum en hinn hlutinn er leigður á frjálsum markaði. Ef vel tekst til eiga allir hlutaðeigandi að geta hagnast á einkaframkvæmd eða með öðrum aðferðum þar sem rekstrarleg ábyrgð er færð frá hinu opinbera til einkaaðila. Samningur um einka- framkvæmd felur í sér hvata fyrir einkaaðilann til að veita góða þjónustu í samræmi við verklýsingu yfir allan samningstímann. Fyrir opinbera aðila, og raunar allan almenning, eru áhrifin þau að hægt er að auka þjónustuna fyrir sama fé eða veita sömu þjónustu fyrir minni kostnað en ef henni væri sinnt af hinu opinbera. Þá dregur þetta úr fjárbindingu hins opinbera og skapar ný tækifæri fyrir atvinnu- lífið til vaxtar. Hagkvæmni af þvi að bcita einka- framhvæmd liggur m.a. í eftirfar- andi þáttum: I Hvati er til hámarkshagræðis með því að teng- ja saman hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis. I Tengsl milli hönnunar og nýtingar tryggja að notagildi er meira en ella. I Flægt er að njóta hagræðis af samrekstri með annarri starfsemi verktakans. I Nýjungar koma fram í hönnun, skipulagi verk- efna, rekstri og fjármögnun. I Skýr greinarmunur er gerður á milli hlutverks seljenda og kaupenda. Hið opinbera þarf einungis að sjá til þess að þjónustan mæti væntingum notenda en ekki bera ábyrgð á rekstri. Sem dæmi um sparnað má nefna skólamann- virki sem byggt er í einkaframkvæmd og leigt hinu opinbera í 25 ár. Hver fermetri sem einkaaðilinn sparar í byggingunni kostar a.m.k. 100 þús. kr. í fjárfestingu og 4 þús. kr. á ári í rekstri (viðhald, orka, þrif o.fl.), en það eru 200 þús. kr. á fermetra í sparnað yfir allan samningstímann. Ef skólahús- næðið er áætlað 5.000 fermetrar en það tekst að minnka það um 5% með góðri hönnun, útsjónar- semi og bættri nýtingu lækkar samningsverðið um 50 m.kr. Vandamá! og ókostir geta einnig fylgt einka- framkvæmd. Þannig getur sveigjanleiki verið minni til að mæta breyttum kröfum um tilhögun þjónustu en í hefðbundnum opinberum rekstri. Seljandi hefur tekið að sér að veita tiltekna vel skilgreinda þjónustu en stendur svo frammi fyrir því að þeir sem þjónustunnar njóta vilja hafa hana með öðrum hætti. Ókostum og vandamálum þessum er mætt með ákvæðum sem heimila endurskoðun og breytingar á samningi aðila. Slíkar heimildir verða þó að vera innan þeirra marka að skapa ekki of mikla óvissu hjá samningsaðila. UNDIRBÚNINGUR VERKEFNA Þegar verkefni er valið til einkaframkvæmdar verður að meta hagkvæmni þess í samanburði við aðrar leiðir og við kostnað af núverandi tilhögun ef hún er til staðar. Hægt er að ná fram vísbending- um með slíkum athugunum en raunverulegur sparnaður næst ekki fram fyrr en verkefnið hefur verið skilgreint og tilboð metin. Samkeppni er oft besta trygging fyrir sparnaði og lægra verði. Því er mikilvægt að ná út úr bókhaldi ríkis og sveitarféla- ga upplýsingum sem gefa samanburðarhæfar kostnaðartölur við það sem gerist á markaði, þannig að þegar ákvörðun er tekin, sé byggt á hlutlægum forsendum. Þýðingarmikið er að hið opinbera nýti sér kosti einkaframkvæmdar með vönduðum undirbúningi, því annars geta komið upp vandamál og ávinn- ingur verður kannski enginn þegar upp er staðið. Mikilvægt er að ríki og sveitarfélög haldi námskeið fyrir yfirmenn sína um helstu þætti einkafram- kvæmdar svo þeir skilji hugmyndafræðina vel áður en þeir fara af stað með verkefni. í því sambandi gegna útboðsgögn lykilhlutverki. Einungis á að skilgreina rammann utan um verkefnið og gefa leiðbeinandi forsagnir, en alls ekki gefa nákvæm fyrirmæli um fermetrastærðir, byggingarefni, inn- réttingar, húsbúnað, kaffistofu, vinnufyrirkomulag o.þ.h. Nákvæmar forsagnir koma í veg fyrir að útsjónarsemi bjóðenda fái að njóta sín í nýjum og hagkvæmum lausnum. Þær leiða líka til eilífra klögumála eftir á um að útboðsgögnum hafi ekki verið fylgt. Útboð undir formerkjum einkafram- kvæmdar eiga að vera hugmyndasamkeppni, þar sem tiltekin lausn er boðin á föstu verði. Ef hið opinbera vill ekki nýjar lausnir og útfærslur á frekar að beita verktakaútboðum með gamla laginu og síðan má eftir atvikum bjóða reksturinn út sérstak- lega. Góð lýsing á þeirri þjónustu sem seljandi á að veita er kjarni innkaupaferils einkaframkvæmdar. Greina verður á milli aðal- og aukaatriða við skrif á 23

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.