AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Side 33
BREYTINGATIMAR
i Bergarfirði
Sterkar líkur benda til að at-
vinnuhættir og búseta í Borg-
arfjarðarhéraði muni á næstu
árum taka verulegum breyt-
ingum. Nægir að benda á
ýmsar ytri aðstæður héraðsins
sem fyrirboða þessara breytinga. At-
vinnugreinar héraðsins eru að verulegu
leyti í uppnámi og breytingar á grunngerð,
ekki síst samgöngum, koma til með að
hafa veruleg áhrif.
Stærsta einstaka breytingin er þegar
komin til framkvæmda: Göngin undir
Hvalfjörð. Þegar frá líður munu Hvalfjarð-
argöngin hafa gagnger áhrif á líf og störf
fólks í Borgarfirði. Hið nýja nábýli við höf-
uðborgarsvæðið (vegalengdin frá Reykja-
vík til Borgarness hefur styst um 40%;
flestir staðir í Borgarfirði verða í frá 30 til
70 mínútna ökufjarlægð frá höfuðborg-
inni) skapar nýjar aðstæður, ný búsetu-
skilyrði, nýja atvinnumöguleika fólks, nýtt
markaðssvæði og nýja möguleika fyrir
ferðalög og ferðaþjónustu.
Að vísu mun tiltölulega hátt veggjald draga úr
áhrifum ganganna í Borgarfirði. Hafa ýmsir talið
þetta háa veggjald skaða sérstaklega hagsmuni
Vesturlands. Veggjaldið dregur úr því að almenn-
ingur í nágrenni ganganna, beggja vegna, breyti
hegðun sinni með tilkomu þeirra. Veggjaldið vegur
minna gagnvart fyrirtækjum, sem t.d. flytja vörur á
milli staða, en gagnvart einstaklingum. Nú hefur
verið boðuð lækkun veggjaldsins með vorinu en of
snemmt er að segja til um hvort lækkunin verði
nægilega mikil til að um hana muni.
ÁHRIF HVALFJAROARGANGA
Ætla má að áhrif ganganna komi fram á
nokkrum árum. Reikna má með að fólk breyti ekki
hegðun sinni skyndilega vegna tilkomu þeirra,
heldur þurfi það að fá reynslu af göngunum til að
gera sér fulla grein fyrir þeim nýju möguleikum
sem þau skapa. En hver verða þessi áhrif?
í nokkrum fyrirliggjandi skýrslum hafa verið leidd
rök að áhrifum Hvalfjarðarganganna á Vesturlandi.
Er þar m.a. stuðst við reynslu af nýjum samgöngu-
mannvirkjum í öðrum löndum. Bent hefur verið á
eftirfarandi:
I Markaðssvæðin á Suðvesturlandi og Vestur-
landi munu færast mjög saman. Þetta kemurfram-
leiðslufyrirtækjum á Vesturlandi til góða þar sem
þau eiga styttra á aðalmarkaðssvæðið í og við
höfuðborgina. Reikna má með að almenningur á
Vesturlandi muni í ríkara mæli en áður versla í
höfuðborginni þar sem úrvalið er meira, sérstak-
lega af ýmisskonar sérvöru.
I Atvinnusvæðin á Suðvesturlandi og Vest-
urlandi munu tengjast. Dæmum um að fólk búi á
öðru svæðinu en sæki vinnu á hinu mun fjölga.
I Möguleikar höfuðborgarbúa til að eignast
annað heimili í Borgarfirði munu batna. Þeir sem
sækjast eftir þessu munu vilja búa við aðstæður
mjög ólíkar þeim sem þeir búa við í borginni, t.d.
mun meira rými.
I Þjónustugreinar á Vesturlandi geta átt frekar
undir högg að sækja, þar sem auðveldara verður
en áður fyrir íbúa á svæðinu að sækja þjónustu á
höfuðborgarsvæðið og fyrirtækin þar að þjóna
Vesturlandi. Þessi áhrif verða án efa meiri en hin
gagnstæðu. Þetta getur jafnt átt við þjónustu
einkaaðila sem opinberra aðila. Sérstaklega á
þetta við um sérhæfða þjónustu.
I Ferðum fólks í sumarhús í Borgarfirði mun án
efa fjölga töluvert með tilkomu ganganna.
I Gera má ráð fyrir aukinni eftirspurn eftir landi
í Borgarfirði, m.a. undir sumarhús og til beitar
hrossa.
I Ferðalög fólks til Borgarfjarðar verða auðveld-
ari. Sérstaklega gæti sumarferðalögum innlendra
og erlendra ferðamanna fjölgað, ef svæðið býður
ferðafólki spennandi ferðamöguleika. Möguleikar
ættu að opnast fyrir þróun dagsferða frá höfuð-
borgarsvæðinu og um héraðið.
31
JÓNAS GUÐMUNDSSON, REKTOR SAMVINNUHÁSKÓLANS Á BIFRÖST