AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Page 45
ú nýlega er komin
út seinni skýrslan
af tveim um stöðu
og möguleika í
byggingu sjálf-
bærra húsbygg-
inga hér á landi. Svo og til að
breyta þeim sem fyrir eru í átt til
meiri sjálfbærni. Skýrslurnar eru
unnar á árunum 1996 til 1999 með
styrk frá Sjóði vegna tækninýjunga
og annarra umbóta í byggingar-
iðnaði - hjá Húsnæðisstofnun/
íbúðalánasjóði.
Skýrslurnar eru unnar af Einari
Þorsteini Ásgeirssyni hönnuði og
arkitekt hjá Tilraunastofu burðar-
forma, en hann hefur starfað á
sviði vistrænna/sjálfbærra hús-
bygginga í Danmörku og Þýska-
SJÁLFBÆRNI (SLENSKRA HÚSBYGGINGA
mögulelhar eg staea
landi. Einar hefur einnig þróað byggingarkerfi hér
á landi sem er lagað að sömu sjónarmiðum og að
auki unnið fyrsta vistræna deiliskipulagið sem
samþykkt var hér árið 1995.
Fyrri skýrslan ber nafnið: í átt að sjálfbærum
húsbyggingum I. Hluti; og var henni lokið í desem-
ber 1997. Hún kynnir það sem unnið hefur verið
hér á landi á þessu sviði, og þá hver er grunnur
sjálfbærrar þróunar/sjálfbærni og hvaða megin-
atriði snerta byggingar á þessu sviði.
Ennfremur er ýtarlega fjallað um stöðu mála í
Evrópu árið 1997 hvað þetta mál áhrærir. Og þá
hver raunveruleg staða íslands er í þessari öru
þróun í samanburðinum. Þá eru settar á blað hug-
myndir um vinnslufyrirkomlag þessa málaflokks. -
Heimildalisti og fleiri upplýsingar fylgja með.
Seinni skýrslan heitir: Sjálfbærni íslenskra hús-
bygginga; II. Hluti; og var henni lokið nú í mars
1999.
Hér eru rifjaðar upp meginforsendur sjálfbærrar
þróunar.
Komið er inn á framtíðarsýn íslensks byggingar-
iðnaðar árin 1998 -2005.
Nýtt skilgreiningarlíkan fyrir sjálfbærnismat
bygginga: Umferðarmiðstöðin er kynnt. Möguleg
framkvæmdaáæltun á árunum 1999 - 2014 í átt til
meiri sjálfbærni íslenskra bygginga er sett fram.
Spurningalisti um viðhorf byggingariðnaðarins til
þessarar áætlunar er í skýrslunni og niðurstöðu
þeirrar skoðanakönnunar kynntar. Heimildalisti og
fleiri upplýsingar fylgja með.
Unnt er að nálgast skýrslurnar hjá Tilraunstofu
burðarforma, P.O.Box 1464 - IS 121 Reykjavík - fax
566 8333 - eða tölvupóstfang: kingdome@mmedia.-
is Frá og með 5. maí 1999 verða skýrslunar tilbún-
ar til sendingar - og verða þá einnig til á ensku. Verð
á hverri skýrslu með sendingarkostnaði er 1.710,- (á
íslensku) og 2.490.- (á ensku). ■
43