AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Page 53
ingafluginu. Borgarráð hefur beint
því til flugmálayfirvalda að æfinga-
flugið fari frá Reykjavíkurflugvelli af
öryggisástæðum og til þess að
minnka ónæðið. Það verður tví-
mælalaust til bóta. Svo eru það
reyndar við hin sem höfum bara I^T8'
gaman af því að fylgjast með þess-
um rellum sem fljúga yfir húsin
okkar en ég geri mér vel grein fyrir
því að við erum ekki mörg.
Ég hef velt því fyrir mér hvort ekki
væri hægt að flytja Reykjavík-
urflugvöll út í Engey. Fyrst gældi ég við þá
hugmynd að ferjur sæju um að flytja farþega og
frakt á milli lands og eyjar. Flugstöð og aðrar byg-
gingar tengdar fluginu yrðu þá í landi en úti í eynni
bara flugvöllurinn og þjónustubyggingar. Slíkt
fyrirkomulag hefur vankosti og er nokkuð langsótt.
Sjókort sýna hins vegar að vegtenging á land-
fyllingu liggur beint við og að væntanlega yrði
ódýrast að fylla að eynni frá gatnamótum Kringlu-
mýrarbrautar og Sæbrautar. Það er hinn ákjósan-
legasti staður með fjórar akreinar til allra borgar-
hluta.
yrði einnig af þeim sökum í lágmarki. Eyjan er
nokkuð frá byggð og mun því flugvöllur þar ekki
hafa áhrif á verðmæti eigna né rýra helgi merkra
staða. Ekki þarf landfyllingu nema að hluta undir
völlinn sjálfan. Landfyllingarefni, það sem til þarf,
má sennilega finna á eynni sjálfri enda fyrirsjáan-
legt að yfirborð hennar yrði lækkað þar sem það er
hæst. Þótt undarlegt megi virðast er hæsti punktur
eyjarinnar hærri en Landakotshæðin. Það gefur
vörn gegn sjávarseltu.
TALSVERT UNDIRLENDI
MANNVISTARLEIFAR
Úti í Engey eru mannvistarleifar. Þar var búið í
árhundruð og þar eru ýmis merki þess að í seinni
heimstyrjöldinni voru steypt fallbyssubyrgi úti í
eynni. Fallbyssunum var beint út á flóann en mar-
gar þeirra munu hafa verið málaðir símastaurar.
Eins og þekkt er voru húsin í Engey brennd fyrir
mörgum árum og því engu fargað þótt þar yrði
gerður flugvöllur. Æðarvarp er í Engey og líklegt
að það yrði fyrir tjóni eða legðist af. Reyndar er af
sumum talið að æðarvarp geti gengið í nágrenni
við flugvöll vegna þess að vargurinn fari en ekki
æðarkollan en um það skal ég ekkert segja.
ENGEY ER HÆRRI EN LANDAKOTS-
HÆPIN
Engeyjarflugvöllur hefur ýmsa kosti. Aðflug að
flugvellinum yrði að mestu yfir sjó og utan byggð-
ar, norðan og austan við borgina. Það er mikil-
vægt af öryggisástæðum en truflun fyrir borgarbúa
Eyjan er mun stærri en ætla mætti þegar á hana
er horft frá landi. Það fylgja flugvelli mannvirki af
ýmsu tagi sem reikna verður með í skipulagi þegar
hugað er að uppbyggingu flugvallar, s.s. bílaleigur,
þjónustubyggingar fyrir flugvélar, flugskýli, flug-
frakt, bílastæði og byggingar tengdar öryggis-
málum vallarins. Það er því til bóta að á eynni er
talsvert undirlendi.
DRÖGUIÍ ANDANN DJUPT
Reykjavíkurflugvöllur mun verða fluttur úr Vatns-
mýrinni. Það er einungis spurning um það hvaða
kynslóð það verður sem mun takast á við það
verkefni. Þegar það gerist er nauðsynlegt að stald-
ra við og draga djúpt andann. Þetta verður stór-
kostlegasta skipulagsverkefni sem tekist hefur
verið á við hingað til og mikilvægt að láta ekki
spenninginn hlaupa með sig gönur. ■
51