AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Side 16
Dóra Hansen og Heiða Elín Jóhannsdóttir ínnanhússarkitektar
Lifandi vinnu-
umhverfi
„New Work - New
ways of thinking “
Einhvern veginn hefur tæknín og
það frelsi sem fylgir netinu, þráð-
lausu símasambandi og auknu frelsi
í viðskiptum ekki skilað sér að fullu í
vinnuumhverfi hinnar almennu skrif-
stofu og fyrirtækja. Margir eru
hræddir við að fella veggi skrif-
stofunnar og endurskipuleggja og
breyta vinnulagi. Sérviska einstakl-
ingsins stendur oft í vegi fyrir
framþróun á vinnustað, á sama
tíma á hann að vera í fyrirrúmi en
jafnframt hluti af heild sem ber uppi
fyrirtækið eða stofnunina.
Innanhússarkiektinn þarfagreinir
fyrirtæki og starfsemi þess til að
finna réttu lausnina og vænlegast er
að tala við fulltrúa allra starfshópa
og reyna að lesa starfsemi fyrir-
tækisins áður en hönnunarferlið
hefst. það má líka segja að vinnu-
aðstaða hvers og eins sé þar sem
honum finnst best að vinna hverju
sinni, það getur verið í bíinum, úti í
garði, á hótelherbergi eða við
ákveðið skrifborð á ákveðnum stað.
Nýja skrifstofan „New Work” nýtir
fermetrana á annan hátt, samnýting
vinnustöðva er eitt af því sem koma
skal, starfsmaður getur unnið hvar
sem er svo lengi sem hann hefur
tengingu við netið, skrifstofur sem
standa auðar dögum saman heyra
sögunni til. Það eru ekki eiginlegir
veggir á milli vinnustöðva, frekar
tilfinningaleg landamæri eða tákn-
ræn, það er hópvinna og samvinna
sem skiptir máli. Húsgögnin eru
minni en fleiri, þau eru fjölnota og
auðvelt að færa þau á milli, endur-
raða eða bara klappa saman og
setja út í horn. Húsgögnin þurfa að
vera „ergonomisk” í víðum skilningi
þess orðs, létt, færanleg, stillanleg,
samanklappanleg og fjölnota (multi
function). Uppröðun og „funktion” á
skrifstofunni á að vera hægt að
breyta á skammri stundu, t.d.
til að mynda aðstöðu fyrir hópvinnu
eða skapa næði fyrir einhvern. Á
sama tíma og einkarýmið er minkað
er nauðsynlegt að auka sameigin-
legt rými, þar sem hægt er að hafa
fundi, hvíla huga og líkama, fá sér
hressingu, lesa tímarit eða bara
hringja einkasímtal. Að mörgu er að
hyggja við hönnun opinna rýma
bæði í sambandi við skipulag og
vinnuvistfræði, þættir eins og loft-
ræsting, lýsing og hljóðdempun eru
mjög mikilvægir. Þetta fyrirkomulag
hentar á mörgum vinnustöðum en
það þarf oft hugarfarsbreytingu hjá
bæði stjórnendum og starfs-
mönnum. Þessi nýja hugsun leggur
áherslu á hæfileika og þekkingarstig
starfsmanna en ekki metorð eftir
stærð skrifstofu eða skrifborðs.
Stórar einstaklingsvinnustöðvar og
lokuð skrifstofa eru ekki nauðsyn-
legar, en það er heldur ekki úrelt.
Það hvort henti opið eða lokað
rými fer eftir eðli starfseminnar og
það er ákvörðun sem tekin er í
samvinnu við stjórnendur og starfs-
menn.
Nýja skrifstofan á að koma til móts
við allt þetta, í nútímafyrirtæki lokar
einstaklingurinn sig ekki af, því