AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Blaðsíða 46

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Blaðsíða 46
Dr. Halldóra Arnardóttir, listfræðingur Ljósameðferðarmiðstöð, 63,3° N Er hér komin ný bygginga- gerð baðhúsa? Lokaverkefni Pablo Sáiz Sánchez frá arkitektaskólanum í Madrid. Baðlaugar eru hluti af lífsháttum íslendinga hvort sem þær eru heitt hveravatn úr iðrum jarðar í náttúru- legu umhverfi eða heitu pottarnir í sundlaugunum. Staðreyndin er sú að vatnið hjálpar mönnum að slaka á, að taka streituna úr öxlunum og að endurnæra líkamann. Baðhús þurfa ekki að vera sýndarmennska duttlungafullrar tísku með alls kyns tækjabúnað fyrir vatnaveislur. þau eiga rætur sínar að rekja til frum- þarfar mannsins - að þvo sér og að slaka á í vatninu. Snertingin við vatn- ið er nokkurs konar helgi-athöfn, kyrrlát og hljóð. Samtímis byggist andleg upplifun á endur- speglun Ijóssins í vatninu, birtunni sem flæðir inn um móðukennt loftið og gjálfur vatnsins. Andleg af- slöppun er afleiðing heilsubaðsins. það er kjarni málsins, heit böð eru fyrst og fremst hugsuð fyrir líkamann. Gert er ráð fyrir að eigin- leikar vatnsins hafi jákvæð líkamleg áhrif og með vellíðan líkamans skapist andlegt jafnvægi. Meðferð gegn þunglyndi og depurð, vanheilsu sem ber hvað mest á í svörtu skammdeginu, er vandmeð- farin. Helsta ráðið fyrir marga er að fara upp í flugvél beint á hlýja sólarströnd. En ef til vill er hægt að taka undir að þegar neyðin er stærst er hjálpin næst?! Eftir að hafa heillast af landinu og spjallað við landann, fannst Pablo Sáiz Sánchez(Netfang:psaizOO@wanado o.es) að þörf væri fyrir nýja gerð baðlauga. Út frá þeirri hugsun þróaði hann lokaverkefni sitt frá arkitektaskólanum í Madrid og fjallaði um hvernig Ijósið og birtan væru óhjákvæmilegur hluti að efnivið baðlauganna gagnvart því að hrekja burt þunglyndi vetrarins. Lækníngarmáttur birtunnar Ljósa- meðferðarstöðin 63,3° N, við jaðar Skeiðarársands sunnan Skaftafells við lón Ingólfshöfða, var lokaverkefni Pablos árið 1999 frá arkitektaskólanum í Madrid. Verkefnið fæddist á námsferðalagi til íslands frá Bartlett arkitekta- skólanum í London árið 1995 en Pablo var þá einn þeirra nemenda sem kom til landsins með algjörlega frjálsar hendur um val á viðfangs- efni. Hann heillaðist af lágri birtu vetrarsólarinnar sem myndaði óendanlega skugga sem loddu við landið eins og þykkur vökvi. Hann uppgötvaði líka hvernig þungi vetrarmánaðanna lagðist á fólk og hvernig heita vatnið var ómissandi þáttur lífsviðhorfs þess. Hann hafði líka lesið vísindagreinar um mátt Ijóssins gagnvart sálarástandi fólks og fékk fljótlega þá hugmynd að gera tillögu að meðferðarmiðstöð þar sem fólk kæmi til þess að baða sig í Ijósi. Allt hugsað sem fyrir- byggjandi vörn og meðferð gegn kvillum árstíðabundins þunglyndis vetrarins. Grunnhugmynd verkefnisins var að vinna með eigin- leika landsins og birtuskilyrði þess, að athuga sambandið milli Ijóss og rýmis, rýmis sem grundvallast af flæði Ijóssins. Margar spurningar komu upp í hugann um það hvernig maðurinn skynjar Ijósið og hverjar breytingarnar verða á rýminu eftir ferli sólarljóssins. Til þess að fá svar við þeim spurningum var það grundvallaratriði að skapa umhverfi hlaðið birtu. Pablo ákvað að stað- setja miðstöðina þar sem birtu- skilyrði væru ákjósanleg, við ósa Skeiðarársands niður af Vatnajökli. Hún myndi opnast til suðurs, á móts við lón sem fengi það hlutverk að endurspegla og fanga Ijósið. Á þessum stað breiðir uppspretta birtunnar úr sér: suðrið, lónið og himinninn hjálpa til við að opna gáttir Ijóssins. Breitt er yfir skugga- myndir landslagsins, norður- áttarinnar og biksvarts sandsins. Ljósameðferðarmiðstöðin stendur á sjálfstæðum palli sem hvílir á háum burðarstoðum þannig að vatnið getur runnið óhindrað undir henni og landið liggur ósnortið undir pallinum, sem klæddur er upp- hleyptum glerflísum. Ofan á honum er tveimur gerðum sundlauga fyrirkomið, annars vegar sund- laugum sem lýstar eru bæði með náttúru-/rafmagnsljósí og hins vegar sundlaugum sem einvörðungu eru lýstar með rafmagnsljósi og gestir njóta heita vatnsins undir berum himni. Pallurinn sjálfur fangar Ijósið. Hlutföll og hönnun hans stuðla að því að yfírborðið nái hámarksafköst- um á þeim degi þegar sólin er lægst á lofti, á vetrarsólstöðum. Þetta kemur jafnvel fram í lögun pallsins sem fær form sitt af skugga skermanna sem endurkasta Ijósinu og verður þar með and- skuggi þeirra. Hlutí Ijóssins er leiddur að skermunum sem stað- settir eru á norðurhluta pallsins. 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.