AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Page 70
Guðjón Bjarnason arkitekt og myncllístaimaður
New
húsið
íbúðaformið endur-skil-
greint
Fyrirhugað byggingarverkefni að
Mýrargötu 26 sækir innblástur sinn
til þess samfélagsforms er tíðkast í
stórborgum s.s. London og New
York þar sem iðnðarrýmum hefur
um langt skeið með ágætum
árangri verið breytt í vinnustofur
listamanna og síðan í íbúðir. Heil
hverfi hafa byggzt upp með
þessu móti, t. a.m Soho og
Chelsea í New York. Svæði þessi
og byggingar hafa undantekninga-
laust orðið eftirsótt með tímanum
enda fágætt að íbúðir séu allt í senn
rúmgóðar og með mikilli lofthæð og
stórum gluggum innan miðsvæða
menningarborga. Einnig hafa slíkar
byggingar oftar en ekki jákvætt yfir-
bragð lista og menningar enda hafa
listamenn og frumkvöðlar fyrri tíma
skapað vöruhúsum tíðum ríkulega
sögu. Verkefni þetta er
HUGSMÍÐ teiknistofa og Guðjón
Bjarnason aðalhönnuður hafa haft
umsjón sem vísar til menningar-
sögu og reynslu af breytingum á
vöruhúsum er liggja við hafnarsvæði
víða um lönd. Hönnuðir kusu að
kalla það New York húsið, eða NY
til hagræðis og hefur nafngiftin
festst víð húsið en gamalgróin
lenska er fyrir því hérlendis að
kenna býli manna við erlendar stór-
borgir.
í NY húsinu, sem er tæpir 8000 m2
að stærð, verða á fyrsta stigi
framkvæmda útfærðar u.þ.b. 40
Tillaga að nýju útliti.
Proposed new exterior
vinnustofur. Er hver eining frá 75-
160 m2 og eru vinnustofuíbúðir
annarrar hæðar með 4.0 m lofthæð
og þriðju hæðar með 5.70 m loft-
hæð. Þær 18 vinnustofuíbúðir er
hafa tæpa 6 metra lofthæð eru
hver um sig aukreitis með 35 m2
milliofti er hefur stóran glugga
tengdan innrýminu. í framhúsi við
aðalinngang Mýrargötu verða u.þ.b.
13 smærri vinnustofur og skrifstofur
auk fyrirhugaðrar kaffiteríu í suð-
vesturhorni í tengslum við anddyri
hússins. Framhúsið er teiknað árið
1971 af Sigvalda Thordarsyni
arkitekt og honum til heiðurs endur-
fært í hans stíl nema hvað
karrýgult litavörumerki hans er fært í
pönkaðra appelsínu-gulara litróf. Við
suðausturhorn byggingar er 300 m2
salarrými með 8 m lofthæð og 6
metra háum gluggum. Yrði sá salur
í tengslum við alla 2000 m2 jarðhæð
hússins tilvalinn sem verslun eða
safn af einhverju tagi en unnt væri
að skapa þar fjölbreytta rýmis-
tilfinningu er söfnum hæfir best.
Vinnustofuíverurnar eru hafðar svo
einfaldar sem unnt er í sniðum,
höfuðáhersla er lögð á að láta
lofthæð, útsýni og rýmiskennd njóta
sín og láta notendur sjálfa um
afganginn. Eru gluggafletir mjög
stórir, 16-20 m2 og með svo fáum
póstum sem unnt er.
Útstæðar „franskar svalir” verða við
glugga í framhaldi af inndregnum
svölum og eru þær búnar innfelldri
lýsingu er gefur skin inn í íbúðirnar í
skammdeginu. Teiknistofan hefur
leitast við að nýta nýjustu
byggingaraðferðir og tærustu
einföldun til að skapa sem mest
rými á sem hagkvæmastan hátt en
engu síður gefa nútímalegum inn-
viðunum líflegt, bjart og kraftmikið
yfirbragð.
í vinnustofuíbúðunum eru einföld lítil
eldhús en snyrtingar í yfirstærð.
Eru vinnustofuíverurnar einstakar
að þvi leyti hér á landi að gefið
hefur verið vilyrði fyrir umsnúning á
hefðbundinni útfærslu þjónustu-
rýma; snyrting snýr að göngustræti
sameignar en eldhús að aðalrými
og skapast við það aukið
athafnasvæði innan hverrar einingar
og til móts við þann hóp fólks sem
vinnur í sífellt ríkara mæli skapandi
störf heima við. í húsinu verður
netþjónn þannig að hægt er að
68