AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Side 71
Tillögur að innréttingum
Proposed interios.
vinna þráðlaust við tölvu hvort sem
er innan vinnustofanna, í göngu-
strætum, anddyri, kaffihúsi eða
þakgarði hússins eftir því sem
hverjum og einum hentar.
Lyfta NY hússins er í yfirstærð, 2x3
m til að auðvelda flutninga og
listsköpun. Lyfta nær tíl þakhæðar
húss en þar er ráðgerður þakgarður
til útivistar með hlaupabraut og
annarri heilsusamlegri aðstöðu.
NY húsinu verður gefið rúmgott
anddyri með setustofu og áætlað
er að brydda á þeirri nýjung að
húsvörður starfi í húsinu og sinni
margvíslegri þjónustu við ein-
staklinga og smáfyrirtæki og hefur
aðkomuhluti hússins þannig yfir-
bragð hótels.
Gangar eru rúmgóðir, 4.5 metrar
að breidd og bjartir bæði með
gólflýsingu er skín allan sólar-
hringinn og forstilltri ofanlýsingu að
degi til og hefur hver vinnustofuíbúð
smá persónulegt andrými út frá
sameigninni. Gangar hafa yfirbragð
er svipar til göngustræta úti við
með notkun fyrrgreindrar lýsingar,
grófra gólfborða (boardwalk), ofan-
birtu frá þakgluggum stofu, smá-
gróðri, drykkjarfonti o.sfrv. Hrátt
yfirbragð iðnaðarbyggingarinnar
verður látið halda sér að hluta til,
s.s. í lökkuðum loftum í andstæðu
við fínlega skjannahvíta veggi og
viðarklæðningar og önnur smáatriði
s.s. stiga og stigahandriði úr viði
með það að leiðarsýn að skapa ein-
falda og klassíska heild.
Áþreifanlegar hugmyndir ráða-
manna og almennur vilji gefur til
kynna að blönduð byggð með
íbúðum og hafnarkví fyrir skútur,
skemmti- og smáútgerðarbáta er
það sem koma skal á þessu fram-
tíðarbyggingarsvæði Reykjavíkur er
breyst gæti í stórkostlega viðbót við
miðborgina ef vel tækist til. Opið
rými kringum bygginguna er
mestallt í eigu borgarinnar og háar
byggingarnar víða í kring. Leiða því
öll líkindi til þess að unnt verði að
byggja ofan á New York húsið með
nýju deiliskipulagi og er burðarvirki
NY hússins sérstyrkt með tilliti til
þess. Útsýni frá þakhæð hússins
er óviðjafnalegt en hönnuð hefur
verið 2500 m ofanbygging úr stáli
og gleri með u.þ.b. 25 íbúðum.
Gert er ráð fyrir að þakgarðurinn
færist þá á nýtt þak hússins og að
þar verði sameiginleg aðstaða fyrir
notendur og gesti hússins, s.s.
gufubað, nuddpottur, hlaupabraut
og veislu- og ráðstefnusalur auk
þess sem þaksvæði yrði nýtt áfram
sem fyrr sem útivistarsvæði. Myndi
inngarður hússins hækka
samsvarandi.
Hafnarsvæði í nærliggjandi borgum
s.s. Osló (Ackersbrygge);
Kaupmannahöfn (Nyhavn) og
Stokkhólmi (Gamle Stan), New York
(Battery Park), hafa öll byggst upp á
sama hátt og horfið frá þvi að vera
óþrifaleg hornrekusvæði til þess að
vera eftirsóttustu og verðmætustu
heimkynni þessara borga. Fer þar
Ackersbrygge í Osló í fararbroddi
enda um mjög nýlegt skipulag og
byggingar að ræða er byggðust
upp undurfljótt og vel þótti takast
til. Allt sem gerist í skandinavískum
borgum gerist endanlega eðlilega á
íslandi. ■
Upplýsingar: www.myrargata.is
69