AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Page 71

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2003, Page 71
Tillögur að innréttingum Proposed interios. vinna þráðlaust við tölvu hvort sem er innan vinnustofanna, í göngu- strætum, anddyri, kaffihúsi eða þakgarði hússins eftir því sem hverjum og einum hentar. Lyfta NY hússins er í yfirstærð, 2x3 m til að auðvelda flutninga og listsköpun. Lyfta nær tíl þakhæðar húss en þar er ráðgerður þakgarður til útivistar með hlaupabraut og annarri heilsusamlegri aðstöðu. NY húsinu verður gefið rúmgott anddyri með setustofu og áætlað er að brydda á þeirri nýjung að húsvörður starfi í húsinu og sinni margvíslegri þjónustu við ein- staklinga og smáfyrirtæki og hefur aðkomuhluti hússins þannig yfir- bragð hótels. Gangar eru rúmgóðir, 4.5 metrar að breidd og bjartir bæði með gólflýsingu er skín allan sólar- hringinn og forstilltri ofanlýsingu að degi til og hefur hver vinnustofuíbúð smá persónulegt andrými út frá sameigninni. Gangar hafa yfirbragð er svipar til göngustræta úti við með notkun fyrrgreindrar lýsingar, grófra gólfborða (boardwalk), ofan- birtu frá þakgluggum stofu, smá- gróðri, drykkjarfonti o.sfrv. Hrátt yfirbragð iðnaðarbyggingarinnar verður látið halda sér að hluta til, s.s. í lökkuðum loftum í andstæðu við fínlega skjannahvíta veggi og viðarklæðningar og önnur smáatriði s.s. stiga og stigahandriði úr viði með það að leiðarsýn að skapa ein- falda og klassíska heild. Áþreifanlegar hugmyndir ráða- manna og almennur vilji gefur til kynna að blönduð byggð með íbúðum og hafnarkví fyrir skútur, skemmti- og smáútgerðarbáta er það sem koma skal á þessu fram- tíðarbyggingarsvæði Reykjavíkur er breyst gæti í stórkostlega viðbót við miðborgina ef vel tækist til. Opið rými kringum bygginguna er mestallt í eigu borgarinnar og háar byggingarnar víða í kring. Leiða því öll líkindi til þess að unnt verði að byggja ofan á New York húsið með nýju deiliskipulagi og er burðarvirki NY hússins sérstyrkt með tilliti til þess. Útsýni frá þakhæð hússins er óviðjafnalegt en hönnuð hefur verið 2500 m ofanbygging úr stáli og gleri með u.þ.b. 25 íbúðum. Gert er ráð fyrir að þakgarðurinn færist þá á nýtt þak hússins og að þar verði sameiginleg aðstaða fyrir notendur og gesti hússins, s.s. gufubað, nuddpottur, hlaupabraut og veislu- og ráðstefnusalur auk þess sem þaksvæði yrði nýtt áfram sem fyrr sem útivistarsvæði. Myndi inngarður hússins hækka samsvarandi. Hafnarsvæði í nærliggjandi borgum s.s. Osló (Ackersbrygge); Kaupmannahöfn (Nyhavn) og Stokkhólmi (Gamle Stan), New York (Battery Park), hafa öll byggst upp á sama hátt og horfið frá þvi að vera óþrifaleg hornrekusvæði til þess að vera eftirsóttustu og verðmætustu heimkynni þessara borga. Fer þar Ackersbrygge í Osló í fararbroddi enda um mjög nýlegt skipulag og byggingar að ræða er byggðust upp undurfljótt og vel þótti takast til. Allt sem gerist í skandinavískum borgum gerist endanlega eðlilega á íslandi. ■ Upplýsingar: www.myrargata.is 69

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.