Iðjuþjálfinn - 2022, Side 4
4 Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa
Þóra Leósdótttir
formaður
Þegar haustlægðirnar hrúgast yfir landið erum við flest
í óða önn að koma okkur í þá rútínu sem fylgir rökkrinu.
Þá er gott að fá Iðjuþjálfann 2022 upp á skjáinn. Ferða-
fólkið er mætt til landsins, fyllir gangstéttir borgarinnar og
vegi landsbyggðarinnar. Stríðsátök vegna innrásar Rússa í
Úkraínu vara enn og ekki útséð með hvenær þeim lýkur.
Afleiðingar innrásarinnar eru skelfilegar. Fyrir utan mannfall
á vígvellinum og eyðileggingu í bæjum og borgum þá eru
milljónir hraktar á flótta, að mestu konur og börn sem að
auki eru í stöðugri hættu á að verða fyrir kynferðis ofbeldi
og mansali því kvenfyrirlitningin er allt um kring. Hér á
litla Íslandi er kjaravetur framundan og komandi viðræður
verða óneitanlega litaðar af aðstæðum í efnahagsmálum
hér á landi og í Evrópu. Má þar nefna afleiðingar orku-
skorts, verðbólgu og óvissu með efnahagsástandið næstu
misserin. Þótt við sem þjóð eigum næga orku til að hita
okkar hús þá hefur kreppa á meginlandinu áhrif hér, hvort
sem okkur líkar betur eða verr. Það er því mikilvægara en
nokkru sinni að tryggja kaupmátt launafólks á næsta kjara-
samningstímabili. Þá er einnig brýnt að standa vörð um
styttingu vinnuvikunnar. Í því sambandi þarf að hafa hug-
fast að þar sem innleiðingin hefur gengið vel er styttingin
augljós kjarabót fyrir launafólk. Á hinn bóginn er ljóst að
enn þarf að sníða kerfið til og breytingaferlið heldur áfram,
sérstaklega hvað varðar launafólk í vaktavinnu og mönnun
í leikskóla og búsetuþjónustu.
Kjaramálin
Í ljósi nýrra laga IÞÍ hefur verið unnið að því að koma á lagg-
irnar trúnaðarmannaráði. Í 18. grein segir: „Trúnaðarmannaráð
er skipað trúnaðarmönnum og stjórn félagsins. Trúnaðar-
mannaráð kýs samninganefnd úr sínum röðum sem ásamt
formanni og varaformanni félagsins fer með forsvar við undir-
búning og gerð kjarasamninga. Formaður IÞÍ skal alla jafna
vera formaður samninganefndar félagsins.“ Í 14. grein segir
jafnframt: „Stjórn skal beita sér fyrir því að trúnaðarmenn
Kæra félagsfólk
séu kjörnir á vinnustöðum. Heimilt er að kjósa trúnaðarmenn
fyrir félagssvæði eða hluta þess ef starfsfólk á vinnustöðum
uppfyllir ekki skilyrði um fjölda.“ Til þess að stuðla að fjölgun
trúnaðarmanna hafa verið haldnir félagsfundir þar sem hvatt
er til þess að iðjuþjálfar á vinnustöðum og félagssvæðum kjósi
sér trúnaðarmenn. Að auki hefur verið sent ákall til félagsfólks
um að kjósa trúnaðarmenn á sínum vinnustöðum eða félags-
svæðum. Í kjölfarið verður trúnaðarmannaráð kallað saman og
samninganefnd formuð.
Undirbúningur kjaraviðræðna er þegar hafinn á vettvangi
BHM. Samningar flestra aðildarfélaga eru lausir í mars 2023.
Haldnir hafa verið fundir formanna og framkvæmdastjóra
aðildarfélaga þar sem hugmyndum er safnað og fyrstu drög
að sameiginlegri kröfugerð mótuð. Mjög vel er haldið utan
um þessa mikilvægu vinnu af hálfu kjaranefndar BHM og sér-
fræðinga bandalagsins. Formannaráð sem samanstendur af
formönnum 27 aðildarfélaga bandalagsins hefur samþykkt til-
lögu þess efnis að formaður BHM, Friðrik Jónsson, fái umboð
til að leiða viðræður vegna komandi kjaraviðræðna. Þannig
áréttar formannaráðið mikilvægi þess að aðildarfélögin vinni
þétt saman að sameiginlegum baráttumálum og hagsmunum
hvað varðar breiðu línurnar. Tryggja þarf verndun kaupmáttar,
efndir hins gamla loforðs um jöfnun launa á milli markaða, sem
samkomulag er um frá 2016, auk þess að taka markviss skref í
átt að því að leiðrétta skakkt verðmætamat á störfum kvenna.
Stofnaður hefur verið starfshópur um stöðu heilbrigðis stétta
innan BHM sem mun beina sjónum að launasetningu félags-
fólks innan aðildarfélaga í heilbrigðisgreinum og stöðunni
í menntun og mönnun. Það er því óhjákvæmilegt að taka
samtal um grunnröðun starfa í stofnanasamningum hjá heil-
brigðisstofnunum ríkisins. Vísbendingar eru um að störfum
sérfræðinga sem tilheyra heilbrigðisstéttum sé almennt lægra
raðað en öðrum með sambærilega menntun að baki.
Formannspistill: