Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 11

Iðjuþjálfinn - 2022, Blaðsíða 11
1. tölublað 202211 rækta sitt eigið land og vera sjálfbær með matvæli að mestu. Ég er með hænur hérna og fullt af dýrum og hér búum við á þessari fallegu UNESCO Biosphere-eyju í Eystrasaltinu í húsi með stráþaki frá árinu 1700 og mér hefur sjaldan liðið betur!“ Framsækin ráðgjafastörf í ýmsum löndum Þegar Kristín var flutt til Manar hóf hún að sinna ráðgjöf til sveitarfélaga og til að kenna við Professionalhöjskolen Absa- lon námskeið sem heitir „Innovative health solutions“ og er þverfaglegt framhaldsnám fyrir iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, hjúkrunarfræðinga og lækna sem vilja læra um framsækna tækniþróun í heilbrigðismálum. „Sú ráðgjöf sem ég veitti innan sveitarfélaga í Danmörku spannaði allt frá því að taka að mér fræðslumál allra iðjuþjálfa í Guldborgsund Kommune yfir í að veita ráðgjöf er vörðuðu einmanaleika karlmanna á aldrinum 65 og upp úr í Sorö Kommune. Ég var einnig í sérverkefnum og prófunum á tækniúrlausnum inni í spítalakerfinu fyrir einka- fyrirtæki,“ lýsir hún. Núna starfar Kristín sem „innovative health consultant“ eða ráðgjafi í nýsköpun í heilbrigðis- og velferðarþjónustu fyrir hið íslenska fyrirtæki Kara Connect og sér um erlendan markað fyrir þau, hingað til mest á Írlandi, að innleiða Köru inn í írska heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfið og þróa ný verkefni. „Ég hef störf fyrir Kara Connect árið 2020 og átti það upp- haflega að vera stutt verkefni til þriggja mánaða, þar sem ég kæmi að ráðgjöf og innleiðingu Köru inn á írska markaðinn. Það gekk svo glimrandi að ég er nú komin í fullt starf og þar með er starfið hjá Kara orðið mitt aðalstarf.“ Fyrst og fremst iðjuþjálfi í hjartanu Heimsfaraldurinn hafði víðtæk áhrif á ýmsum sviðum. „Breyttar aðstæður hjálpuðu fyrirtækjum eins og Köru sem sérhæfa sig í öruggum tæknilausnum fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og vel- ferðarþjónustu. Við erum mikið að vinna í innri miðlun eða vel- ferðartorgum fyrir fyrirtæki og huga að heilsu og velferð starfs- manna og það er eitthvað sem ég brenn mikið fyrir. Við vitum nú t.d. að covid hefur haft veruleg áhrif á kulnun, álag í starfi, áhuga, orku og hugræna þreytu og að ⅔ af þeim sem upplifa kulnun eru konur með meðalaldur 45 ár,“ útskýrir Kristín. „Hjá Köru erum við alltaf að vinna að því að einfalda aðgengi að stuðningi og geðheilbrigðismeðferð. Hugtakið geðheil- brigði vísar hér í fjölda áskorana í daglegu lífi hjá starfsfólki. Rannsóknir sýna að 70% starfsfólks sem þarf á aðstoð að halda þarf ekki stuðning heilbrigðisstarfsmanna heldur annars konar stuðning eða hjálp og þar komum við inn í. Þessi verkefni erum við að vinna bæði á Íslandi og á Írlandi þar sem við erum t.a.m. að auðvelda aðgengi 260.000 írskra starfsmanna hinna ýmsu stórfyrirtækja að þverfaglegum meðferðarúrræðum í gegnum Kara Connect. Þetta er alveg stórkostlega flott verkefni sem ég er stolt af að taka þátt í,“ segir Kristín. Þrátt fyrir margt nýtt og framandi er iðjuþjálfunarhugsjónin ávallt til staðar hjá Kristínu. „Ég upplifi að ég sé í raun að iðju- þjálfast á hverjum degi vegna þess að lykilfókusinn er eftir sem áður að auðvelda aðgengi að hjálp svo það geti stundað sína iðju, hver svo sem hún er. Þetta er mjög sértækt auðvitað en ég segi alltaf, fyrst og fremst er ég iðjuþjálfi í hjartanu, allt sem ég geri er með það að leiðarljósi, að fólk geti stundað sína iðju. Og það skiptir ekki máli hvað maður tekur mikla umfram- menntun, ef þú ert einu sinni smitaður af þessari iðjuþjálfa- bakteríu þá ertu bara þar. Og allur fókus, þú ert alltaf með þessi gleraugu á þér.“

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.