Iðjuþjálfinn - 2022, Qupperneq 40
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa40
Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir
iðjuþjálfi
Þorkatla Elín Sigurðardóttir
sálfræðingur
Skynvitund
- að skilja eigin skynjun
Nýtt fræðslunámskeið fyrir börn og foreldra þeirra
Við heyrum oftast talað um skynfærin fimm í daglegu tali.
Það er sjón, heyrn, lykt, bragð og snertingu en sjaldan er
talað um innri skynfæri líkamans sem eru þrjú og hvernig
skynáreiti getur haft áhrif á líðan og hegðun barna og full-
orðinna. Stundum verður skynáreitið á skynfærin það yfir-
þyrmandi að það dregur fram ótta, vanlíðan og kvíða og
þá reynist öllum erfitt að ætla sér að einbeita sér við ýmsa
iðju eins og lærdóm, leika við vini eða festa svefn að kvöldi.
Einnig getur sumt skynáreiti ekki náð athygli skynfæra svo
börnum hættir til að ná ekki á salernið í tæka tíð, finna ekki
fyrir hungurtilfinningu eða seddu, skynja ekki sársauka eða
gera sér ekki grein fyrir hitastigi umhverfis og klæða sig
ekki í samræmi við það.
Börn og fullorðnir sem upplifa að þeirra skynjun á skynáreiti
valdi þeim vanlíðan, kvíða, pirringi eða óöryggi eru mörg hver í
þörf fyrir aukna vitund á eigin skynfærum. Það að skilja og átta
sig á hvað er að gerast í líkamanum getur dregið úr neikvæðri
upplifun. Það getur hjálpað þeim að vernda sig gegn óþarfa
skynáreiti og að móta gagnlegar aðferðir til að takast betur
á við þær áskoranir sem þeirra skynjun er að valda í ólíkum
aðstæðum. Þegar við þekkjum aðferðir og hjálpartæki sem
henta í aðstæðum stuðlar það að meiri vellíðan, ró, jafnvægi
og þátttöku á eigin forsendum.
Guðrún Hallgríms iðjuþjálfi og Þorkatla Elín sálfræðingur hafa
mikla reynslu af því að vinna með börnum, ungmennum og
fullorðnum sem hafa verið að upplifa ýmsar áskoranir tengt
skynáreiti. Aukin skynvitund hefur reynst mörgum gagnleg
aðferð til að ná að vera við stjórnvölinn í aðstæðum sem áður
reyndust mjög krefjandi og óþægilegar.
Þær munu bjóða upp á námskeiðið Skynvitund á þriðjudögum
í vetur í Lífsgæðasetrinu St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
Hægt er að nýta frístundastyrk upp í námskeiðsgjaldið og
einnig bjóða mörg stéttarfélög upp á styrki tengt heilbrigðis-
þjónustu. Námskeiðið hefst 20. september og enn er hægt að
skrá þátttöku barns og foreldris á námskeiðið.
Nánari upplýsingar má finna á
heimastyrkur.is og hloduloftid.is
Kynning: