Iðjuþjálfinn - 2022, Qupperneq 43

Iðjuþjálfinn - 2022, Qupperneq 43
1. tölublað 202243 Training (þjálfun í félagsfærni, sjálfstjórn og siðferðisþroska) fyrir leikskóla- og grunnskólanemendur. Við fórum í heilsuefl- andi heimsóknir til aldraðra í sveitarfélaginu og margt fleira. Nú starfa ég sem framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingar Austurlands og hef gert síðan 2013 þegar ég flutti aftur á heimaslóðir, Egilsstaði. Ég hef alltaf verið stolt af því að vera iðjuþjálfi og ég elska starfið mitt. Ég á eina dóttur, tvo syni, einn ömmustrák og tengdason sem ég er ákaflega stolt af. Ég á kærasta sem deilir útivistaráhug- anum með mér en ég sæki næringu og orku í náttúruna allan ársins hring. Fer mikið til fjalla í gönguferðir, fjallaskíðaferðir og finnst fátt betra en að tjalda á fjallstoppum. Hef einnig gaman af náttúruhlaupum, fjallahjóli og gönguskíðum, ásamt lestri góðra bóka, tónlist og samverustundum með fjölskyldu og vinum. Ég hef alltaf haft gaman af að takast á við nýjar áskoranir og ögra sjálfi mér. Sem dæmi hjólaði ég Jakobsstíginn 2017, 900 km með vinum mínum á 13 dögum. Árið 2018 kláraði ég land- vættinn í góðra vina hópi. Ég tók markþjálfunarnám hjá Pro- fectus sem nýtist vel í mínu starfi sl. ár og um þessar mundir er ég í fjallamennskunámi við Framhaldsskólann á Höfn (FAS). Starfsendurhæfing Austurlands (StarfA) StarfA var formlega stofnuð 14. nóvember 2007 af 18 stofnað- ilum á Austurlandi. Hlutverk StarfA er að veita starfsendurhæfingu einstaklingum með heilsubrest sem standa utan vinnumarkaðar og eru að leita sér leiða inn á hann aftur. Hugmyndin er sú að þátttakandinn komi með virkum hætti að sinni endurhæfingu strax í byrjun og beri þar með frá upphafi ábyrgð á sinni endurhæfingu. Við erum með þjónustusamning við Virk Starfsendurhæf- ingarsjóð. Virk ráðgjafar á Austurlandi vísa einstaklingum í endurhæfingu til okkar. Við erum einnig með samstarfssamn- ing við VMST í markvissri atvinnuleit – virkni og vellíðan. Eins getur félagsþjónusta sveitarfélaga vísað til okkar. Mín helstu verkefni eru að bera ábyrgð á rekstri, rekstrar- áætlun, ársskýrslu og daglegri starfsemi, ásamt að skipuleggja dagskrá og úrræði. Stöðug endurskoðun þjónustuúrræða í samræmi við þarfir, væntingar og upplifanir þátttakenda hverju sinni, er afar mikilvæg. Ráða starfsfólk, verktaka og gera verktakasamninga. Vera í tengslum við fagfólk, stofnanir og atvinnurekendur. Teymisfundir, læknafundir, rýnifundir með Virk ráðgjöfum o.fl. Sinna ráðgjöf/samtölum við þátttakendur, stuðningi og eftirfylgd. Samtölin fara gjarnan fram utandyra í náttúrunni þegar við á. Gera endurhæfingaráætlanir. Sinni einnig sjálfseflingarnámskeiðum, s.s. í vinnuvistfræði, félagsfærni og náttúrumeðferð. Við nýtum ýmis matstæki, s.s. mat á starfshlutverki (WRI), mat á starfsumhverfi (WEIS), mat á framkvæmd vinnu (AWP), COPM, iðjuhjólið, hlutverka- og áhugalistann.

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.