Iðjuþjálfinn - 2022, Side 49
1. tölublað 202249
barnaheimilinu og fékk stuðning við að breyta verklaginu þar.
Ég fæ einnig tækifæri til að hjálpa við ráðningar inn á þessar
stofnanir og það er hlustað af miklum áhuga á mitt sjónarhorn
vegna menntunar minnar sem iðjuþjálfi. Við höfum farið af
stað með að byggja upp teymi, ráðið inn sérfræðinga til að
vinna með starfsfólki, aukið sjálfboðastarf og sótt um fleiri
verkefni hjá Evrópusambandinu í samstarfi við Ísland og aðrar
þjóðir þannig að við getum lært af góðri reynslu og þekkingu
annars staðar. Ég tek einnig á móti sendiherrum og öðrum
erlendum aðilum sem gætu tekið þátt í okkar fjárfestingar-
stefnu. Ég er umsjónarmaður samstarfs við ellefu systurborgir
Montana, þannig að ég fæ að ferðast þónokkuð, bæði innan
Búlgaríu og til annarra landa.
Þegar ég var í iðjuþjálfanáminu var mér alltaf sagt að iðju-
þjálfar gætu unnið alls staðar og virkilega unnið að bættum
lífsgæðum á öllum sviðum. Ég er þakklát fyrir mína menntun
og fyrir þá innsýn sem hún hefur gefið mér í líf fólks á öllum
stigum samfélagsins. Að vera iðjuþjálfi gefur mér einstaka sýn
á lausnir sem ég get núna nýtt á stjórnunarstigi borgarinnar,
en það er hægt vegna þess að það er einhver tilbúinn að
hlusta og gefa mér þetta einstaka tækifæri sem ég mun alltaf
vera þakklát fyrir!
Í námskeiðinu Fræðileg skrif og gagnreynt starf, sem kennt er á þriðja námsári í iðjuþjálfunarfræði, unnu nemendur
fræðilega samantekt um efni að eigin vali.
Samantektin flokkaðist undir kortlagningaryfirlit og var unnið eftir vinnulagi Arksey og O‘Malley (2005). Til að kynna
niðurstöður sínar útbjuggu nemendur síðan veggspjöld sem við deilum hér með ykkur. Viðfangsefni þeirra eru fjölbreytt
og eiga án efa erindi til starfandi iðjuþjálfa.
Hér á eftir koma kynningarspjöld nemanna frá námskeiðinu. Við vonum að þið hafið gagn og gaman af.
Linda Björk Ólafsdóttir
og Sigrún Kristín Jónasdóttir,
umsjónarkennarar námskeiðsins
Fræðileg skrif og gagnreynt starf vorið 2022.
Verkefni nemenda
í iðjuþjálfunarfræði: