FLE blaðið - 01.01.2018, Page 8
8 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018
Í þessari grein er ætlunin að segja frá því helsta sem unnið
hefur verið að á vettvangi félagsins síðastliðið starfsár. Efnið
er byggt á skýrslum frá aðalfundi félagsins í nóvember síðast
liðinn.
Starfið hófst með árlegum stefnumótunarfundi sem haldinn
var í sjöunda skipti en um er að ræða vinnufund þar sem mæta
auk stjórnar, framkvæmdastjóra og skrifstofustjóra nýkjörnir
formenn allra nefnda. Auk þess komu til fundarins að þessu
sinni meðlimir í ímyndanefnd stjórnar. Fundurinn gekk að
venju vel og framlag félagsmanna til stefnumótunar á þessum
fundi er ómetanlegt. Í þessu sambandi er afar ánægjulegt hve
félagsmenn eru alltaf tilbúnir til að taka þátt í alls konar verk-
efnum á vettvangi félagsins og ekki eingöngu það heldur er
áberandi í öllum samræðum hve mjög félagsmenn eru áhuga-
samir um þróun og viðgang stéttarinnar. Í framhaldi af fund-
inum gekk stjórn frá starfsáætlun fyrir starfsárið framundan
þar sem verkefnum var skipti niður á fundi ársins en stjórn hélt
alls 11 fundi á starfsárinu.
Fræðslan
Félagið stóð fyrir samtals 22 atburðum á starfsárinu sem
gáfu um 45 endurmenntunareiningar sem er örlítið minna en
árið áður og munar þar mestu um að hádegisverðarfundum
var fækkað. Heildarmæting á þessa atburði var rúmlega 1300
manns samanborið við tæplega 1500 árið áður. Á árinu voru
haldin tvö námskeið í samvinnu við annars vegar Atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytið og hins vegar við Festu – miðstöð
um samfélagsábyrgð. Fjölmennasta morgunkornið fjallaði um
skilafresti Ríkisskattstjóra, fjölmennasta námskeiðið fjallaði
um bundna eiginfjárreikninga og stærsta ráðstefnan var
Reikningsskiladagurinn en þar mættu um 200 manns en svo
margir hafa ekki mætt á einn viðburð síðast liðin 6 ár.
neFndarstarF
Að venju eru fastanefndir félagsins mikilvægur hlekkur í
starfsemi þess og bera oft hitann og þungann af ákveðnum
málefnum. Það má segja að aðalþungi nefndarstarfa hafi
legið hjá Endurskoðunarnefndinni á liðnu starfsári þegar
Reikningsskilanefndin var aftur á móti í aðalhlutverki á árinu
þar á undan. Eftir mikil og stíf fundarhöld síðast liðið haust
sendi nefndin frá sér fyrirmyndaráritanir undir lok árs byggðar á
ISA stöðlum sem tóku gildi í árslok 2016 en þessar fyrirmyndir
má finna á innri síðu félagsins.
Fyrir utan hefðbundin störf Skattanefndarinnar þá má segja
að frestir lögaðila og áherslubreytingar Ríkisskattstjóra í
þeim efnum hafi tekið mestan tíma nefndarinnar. Má þar
punktar Úr starFsemi Fle
Sigurður B. Arnþórsson er framkvæmdastjóri FLE og
Margrét Pétursdóttir er fráfarandi formaður félagsins
Við eigum þvert á móti að flagga
því sem jákvætt er við fagið sem er:
endalaus spennandi verkefni, gríðar-
leg fjölbreytni, stöðug starfsþróun,
tækifæri til að vinna með flottu
fólki og til að kynnast atvinnulífinu,
sveigjanlegur vinnutími, góð frí
á milli álagstíma, starfsöryggi og
svona mætti lengi telja