FLE blaðið - 01.01.2018, Qupperneq 9

FLE blaðið - 01.01.2018, Qupperneq 9
9FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018 nefna þá breytingu að hverfa frá hefðbundnum frestlistum og taka upp skilalista sem og styttingu á framtalsfresti. Störf Gæðanefndarinnar hafa verið í föstum skorðum undanfarin ár og hafa aðallega tengst yfirferð gæðaeftirlitsskýrslna en lögbundið gæðaeftirlit er með störfum okkar undir yfirstjórn Endurskoðendaráðs. Þá var sett á laggirnar Ungliðanefnd félagsins sem er stjórnskipuð nefnd og ætlað það megin hlut- verk að fá unga fólkið í stéttinni til að starfa með félaginu. Ímyndarnefnd skilaði tillögum til stjórnar á árinu um aðgerðir til að efla ímynd endurskoðenda og er til taks á hliðarlínunni ef þörf verður á frekari aðkomu síðar. Stjórn lét, eins og kunn- ugt er, framkvæma könnun á viðhorfi til stéttarinnar á síðasta starfsári og hefur síðan verið að vinna úr niðurstöðu hennar með ýmsum hætti. eVrópureglugerð og ný lög um endurskoðendur Stjórn félagsins skipaði á sínum tíma svokallaðan innleiðinga- hóp sem hefur það hlutverk að koma að stefnumótun varðandi innleiðingu á Evrópureglum um endurskoðun. Eins og fundar- mönnum er kunnugt hefur vinnan við innleiðinguna dregist mjög á langinn og hafa ýmsir úr okkar röðum komið að mál- inu. Síðustu mánuði ársins voru haldnir fundir aðra hverja viku í ráðuneytinu og erum við þar með tvo fasta fulltrúa. Þar sem Ísland er utan ESB og EES hefur ekki enn tekið reglurnar til afgreiðslu hefur hægt á ferlinu hér á landi. Í ljósi þess og vegna nýlegra stjórnarslita hvarf þrýstingur frá ráðherra um að drög að lögum um endurskoðendur lægju fyrir núna í nóvember eins og áður stóð til. Það er afar slæmt hve vinnan hefur tafist og það er mikið hags- munamál fyrir stéttina að innleiðingin verði sem mest í takti við það hvernig reglurnar hafa verið innleiddar víðast í Evrópu en það var einmitt markmið fyrri ríkisstjórnar. Afstaða þeirrar ríkisstjórnar sem nú mun taka við mun hafa veruleg áhrif á starfsemi stéttarinnar og vonum við að ekki verði um að ræða séríslensk íþyngjandi ákvæði við innleiðinguna. Innleiðing þessara reglna á eftir að hafa mikil áhrif á þróun starfa okkar og munum við leggja okkur öll fram við að hún verði sem vönduðust. Til upprifjunar þá er ekki bara verið að innleiða reglurnar inn í núverandi lög heldur er verið að endur- skrifa lög um endurskoðendur í heild sinni. Sem dæmi, er útlit fyrir að gæðaeftirlitið fari frá félaginu. Allavega vegna eininga tengdum almannahagsmunum og jafnvel alfarið hinna líka. Hvar eftirlitinu verður fyrirkomið er ekki ljóst og hafa ýmsir möguleikar verið ræddir í því sambandi, t.d. Fjármálaeftirlitið. Gæðaeftirlit er nauðsynlegur þáttur í okkar störfum en það er ekki laust við að við höfum áhyggjur af því að umfang og kostn- aður muni aukast mjög við þessa breytingu. Annað sem er útlit fyrir að breytist er að félagsaðildin að FLE verði valkvæð og ekki er ljóst hvaða áhrif það mun hafa. Gleðistund og bros af hverju andliti Ungliðanefnd: Sara Henrý, Gunnar Þór, Heiðar þór og Sif

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.