FLE blaðið - 01.01.2018, Qupperneq 10

FLE blaðið - 01.01.2018, Qupperneq 10
10 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018 Þá eru ónefndir gríðarlega mikilvægir þættir hvað varðar einingar tengdar almannahagsmunum eins og árafjöldi sem endurskoðunarfyrirtæki er heimilt að sinna sama verkefninu, þak á því hvað er heimilt að innheimta fyrir aðra þjónustu en endurskoðun, svokallaður „black list“ yfir verkefni sem endur- skoðanda félags verður óheimilt að inna af hendi og ýmislegt annað. Það er því afskaplega mikilvægt að við gætum vel að hagsmunum stéttarinnar við innleiðinguna. unga Fólkið og endurnýjun stéttarinnar Löggildingarpróf til endurskoðunar voru haldin eins og venja er í október. Að þessu sinni þreyttu 11 aðilar prófin og er það áhyggjuefni hve fáir það eru en fjöldinn er mun minni en verið hefur undanfarin ár. Nefndar hafa verið til sögunnar ýmsar skýr- ingar, svo sem að lítið hafi verið um ráðningar á fyrstu árunum eftir hrun og einnig hefur verið nefnt sem hugsanleg skýring að umræða um hugsanlega endurskoðun fyrirkomulags prófa hafi haft áhrif til fækkunar. Nú eru þetta bara getgátur en það er samt ljóst að það fyrirkomulag að hafa prófið aðeins eitt í stað fjög- urra áður er mjög íþyngjandi og þá sérstaklega þegar taka þarf ákvörðun um að þreyta prófið í annað sinn. Endurskoðendaráð hefur boðað að prófnefnd muni endurskoða fyrirkomulag prófa í heild sinni en sú vinna hefur ekki hafist. Umræða hefur farið ört vaxandi um það hverjar séu ástæður þess að áhugi ungs fólks fyrir því að afla sér menntunar sem endurskoðendur hefur minnkað. Það er ýmislegt sem kemur til og eitt af því er að starfið þarf að verða meira aðlaðandi í augum unga fólksins og samkeppnishæfara um kjör og er hér ekki um séríslenskt vandamál að ræða heldur glíma, að því er virðist, flest Evrópulöndin við þennan vanda og við honum verður að bregð- ast. Erlendar kannanir hafa sýnt að brottfall nýútskrifaðra endur- skoðenda úr faginu hefur að meðaltali styst úr 5 árum niður í þrjú ár, og þá sérstaklega á uppgangstímum í þjóðfélaginu. Það að endurskoðendur hafa á undanförnum árum leitað í auknum mæli út í atvinnulífið þarf þó ekki endilega að vera slæmt fyrir stéttina heldur sýnir það að menntun okkar og starfsreynsla er mikils virði og er eftirsóknarverð. Þetta er eitt af þeim efnum sem rætt hefur verið á vettvangi Accountancy Europe og ýmislegt nefnt til lausnar. Eitt af því sem rætt var á seinasta fundi þar var mikilvægi þess að við værum góðar fyrirmyndir fyrir unga fólkið. Hvernig getum við ætlast til að ungu fólki finnist eftirsóknarvert að verða endurskoðendur ef við göngum um, buguð af áhyggjum og vinnuálagi og málum allt sem svartast. Við eigum þvert á móti að flagga því sem jákvætt er við fagið sem er: endalaus spennandi verkefni, gríðarleg fjöl- breytni, stöðug starfsþróun, tækifæri til að vinna með flottu fólki og til að kynnast atvinnulífinu, sveigjanlegur vinnutími, góð frí á milli álagstíma, starfsöryggi og svona mætti lengi telja. skilaFrestir Framtala og ársreikninga Eins og fram kom að ofan voru skilafrestir á framtölum og árs- reikningum til Ríkisskattstjóra og Ársreikningaskrár ofarlega á baugi á starfsárinu og hafa fulltrúar stjórnar auk framkvæmda- stjóra mætt á nokkra fundi hjá embættinu til að ræða þau mál. Á þeim fundum hafa fulltrúar félagsins ítrekað talað fyrir kerfis- breytingum í þá átt að skil á framtölum dreifist sem jafnast yfir árið en þegar þetta er skrifað er ekkert slíkt væntanlegt og er þá kostnaði við innleiðingu á nýju kerfi um kennt. Ríkisskattstjóri Haustráðstefna - allir að fylgjast með Morgunkorn um 4 iðnbyltinguna Aðalfundur, núverandi og fráfarandi formaður og framkvæmdastjóri

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.