FLE blaðið - 01.01.2018, Side 12
12 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018
Tilefni þessa greinarstúfs er nýleg skýrsla á vegum starfshóps
innan OECD sem ber heitið Task Force on Tax Crimes and Other
Crimes (TFTC). Skattrannsóknarstjóri tekur þátt í þessari vinnu
og á sæti í hópnum. Eru þar settar fram í fyrsta sinn 10 leiðbein-
andi meginreglur til handa stjórnvöldum aðildarlanda sem
gagnast geta í baráttu þeirra gegn skattsvikum. Skýrslan tekur á
lagalegum, stofnanalegum og stjórnsýslulegum þáttum sem
OECD telur þurfa vera fyrir hendi til þess að ná sem bestum
árangri í þeirri baráttu, bæði gegn skattsvikum og öðrum fjár-
munalegum afbrotum. Skýrslan byggir á innsýn og reynslu 31
ríkis, þ. á m. Íslands.
Fróðlegt er að kynna sér umrædda skýrslu til samanburðar við
skýrslur sem starfshópar á vegum Fjármála- og efnahagsráðu-
neytisins gáfu út í júní sl., annarsvegar um umfang skattundan-
skota og tillögur til aðgerða og hinsvegar um milliverðlagningu og
faktúrufölsun. Í þessu samhengi má einnig benda á skýrslu
starfshóps sama ráðuneytis um eignir Íslendinga á aflandssvæð-
um, sem birt var í byrjun árs 2017.
Sé tekið mið af umfjöllunarefnum og þeim niðurstöðum sem
fram koma í framangreindum skýrslum má draga þá ályktun að
staða Íslands viðvíkjandi laga-, stofnana- og stjórnsýslulegri
umgjörð, sé jafnfætis því sem best þekkist í nágrannalöndum
okkar og að aðgerðir stjórnvalda í þessum málaflokki hafi verið í
samræmi við ráðleggingar sem komið hafa frá OECD á undan-
förnum árum. Hér á landi hafa á síðustu misserum bæði verið
lögfestar reglur og sett verklag með það fyrir augum að sporna
gegn skattsvikum og til að koma í veg fyrir alþjóðlega skattasnið-
göngu, s.s. undirritun samkomulags um að taka upp sameigin-
lega OECD - staðla varðandi upplýsingaskipti milli ríkja um eignir
einstaklinga og lögaðila í fjármálafyrirtækjum. Er hér að nefna
reglur um svokallaða CFC- löggjöf og reglur um milliverðlagningu
og reglur sem tengjast svokallaðri BEPS - áætlun (Base Erosion
meginreglur og aðFerðir
til Varnar skattsVikum
Guðmundur Skúli Hartvigsson, lögfræðingur
hjá Skattrannsóknarstjóra ríkisins
Að framangreindu virtu er óhætt að
fullyrða að íslensk stjórnvöld taki fullan
þátt í alþjóðlegu samstarfi í þeirri
viðleitni að draga úr skattundanskotum,
en betur má ef duga skal.