FLE blaðið - 01.01.2018, Side 23

FLE blaðið - 01.01.2018, Side 23
23FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018 Nú þegar við nokkrir félagar stöndum frammi fyrir því eftir ára- tugi við endurskoðunarstörf að fara í svokallað frjálst sætaval á okkar vinnustað, sem þýðir að við göngum ekki lengur að fastri vinnustöð, þá datt okkur í hug að setja saman greinarkorn um það hvernig vinnustaður endurskoðunarskrifstofa var þegar við hófum þar störf fyrir um 40 árum. Jafnframt langar okkur til að koma að nokkrum skemmtilegum sögum tengdum starfinu og starfsferlinum. Við byrjuðum allir á 20 ára afmælisárinu okkar á Endurskoðunarskrifstofu Björns E. Árnasonar en sú skrifstofa hafði þá aðsetur á 3 hæð að Tjarnargötu 16 með gott útsýni yfir Tjörnina. Að sjálfsögðu fengum við allir að heyra brandarann um að starf okkar fælist í því að skoða endur. Starfsviðtal á þessum tíma fólst meðal annars í því að viðkom- andi var spurður hvort hann hefði unnið í fiski og ef svarið var já, þá var hann í framhaldinu spurður hvað hann hefði verið með í bónus. Ef bónusinn hafði verið góður þá var viðkomandi ráðinn. Húsnæðið var gömul íbúð og var okkur komið fyrir í mis stórum herbergjum, sumir voru í eldhúsinu, aðrir í svefnherbergjunum og enn aðrir í stofunni. Stjórarnir, endurskoðendurnir Valur Frjálst sætaVal eFtir 40 ár Benóní Torfi Eggertsson, Halldór Arason, Stefán D. Franklín og Sigurður Pálmi Sigurðsson eru endurskoðendur og góðir félagar Ástandið á bókhaldinu er eins og að þú kæmir á sveitabæ til að gelda hest og spyrðir. Hvar er hesturinn sem ég á að gelda? og fengir svarið, hann er upp á heiði þú verður að ná í hann sjálfur. Dýralæknirinn náði það vel ábendingunni að bókhaldið var mun betur frágengið árið eftir Greinarhöfundar með gömul vinnuskjöl

x

FLE blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.