FLE blaðið - 01.01.2018, Qupperneq 26

FLE blaðið - 01.01.2018, Qupperneq 26
26 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018 urmatið reiknað miðað við kaupmánuð og verðbreytingarfærsl- an reiknuð út frá peningalegri stöðu í ársbyrjun og árslok miðað við verðbólgu innan ársins. Ef að rétt var reiknað, var hægt að framreikna afkomu ársins skv. rekstarreikningi frá meðalverð- lagi yfir á árslokaverðlag, bæta þeirri tölu við eigið fé 1.1. verð- bætt frá ársbyrjun til ársloka og þá átti samanlögð tala að stemma við eigið fé 31.12. Þessi aðferð var slík ánægjuupp- spretta fyrir einn okkar að hann gat dundað sér við að reikna þetta fram og baka og um hann fór sæluhrollur þegar ofan- greind afkomuafstemming gekk upp. Frá þessum manni var mikið tekið þegar verðbólgureikningsskilum var hætt frá og með árinu 2003. Hann hélt persónulega að heimurinn myndi hreinlega hrynja en ekkert slíkt gerðist, ekki frekar en tölvurnar um aldamótin 2000. Bæði Valur og Arnór voru góðar fyrirmyndir á sinn hátt og stundum voru tilsvör Arnórs varðandi starfið ógleymanleg. Eitt sinn vorum við að endurskoða bókhaldið hjá stórum við- skiptavin á landsbyggðinni, sem fólst í því að við fórum yfir öll fylgiskjölin og tékkuðum á því hvort þau væru rétt færð í bók- haldinu, svokölluð fylgiskjalaendurskoðun. Starfsmaður við- skiptavinarins kom í dyrnar á fundarherberginu þar sem við vorum og spurði: Viljið þið ekki smakka kleinurnar á kaffistof- unni. Nei takk, svaraði Arnór, það er nóg af þeim í bókhaldinu. Starfsmaðurinn skildi strax hvað klukkan sló. Dýralæknir sem var í viðskiptum hjá okkur kom með bókhalds- gögnin í möppu til Arnórs og eftir að Arnór hafði flett möpp- unni, þá spurði dýralæknirinn hvernig honum litist á. Arnór svaraði: Ástandið á bókhaldinu er eins og að þú kæmir á sveitabæ til að gelda hest og spyrðir. Hvar er hesturinn sem ég á að gelda? og fengir svarið, hann er upp á heiði þú verður að ná í hann sjálfur. Dýralæknirinn náði það vel ábendingunni að bókhaldið var mun betur frágengið árið eftir. Valur fékk líka sinn skammt af skemmtilegum uppákomum t.d. kom eitt sinn viðskiptavinur sem rak verslun í öngum sínum til hans og hafði meðferðis langt bréf frá skattstjóra þar sem óskað var ítarlegra skýringa og gagna um hina ýmsu rekstarliði sem höfðu verið færðir til frádráttar í skattframtali liðins árs. Aumingja maðurinn bókstaflega skalf á beinunum og hafði sennilega ekki alveg nógu góða samvisku yfir öllum tilfærðum rekstarkostnaðinum. Valur reyndi að róa manninn og sagði honum að þetta væri sennilega bara almennt tékk hjá skattin- um og að hann hefði bara verið dreginn út þetta árið. Hrópaði þá maðurinn upp yfir sig, gráti næst „og ég sem vinn aldrei í neinum happdrættum !“ Önnur skemmtileg uppákoma var þegar fyrirtæki sem var í við- skiptum við okkur lenti í lausafjárþörf og enginn skyldi af hverju, þar sem viðskiptavinir þess greiddu yfirleitt á gjalddaga. Eftir nokkra yfirlegu endurskoðandans kom i ljós að nýi reynslu- lausi gjaldkerinn útbjó samviskusamlega innborgunarkvittun sem hann fékk í bankanum, hefti síðan allar mótteknar ávísanir sem tilheyrðu þessari innborgun við kvittunina, gataði síðan allan bunkann og setti inn í möppu án þess að fara með þetta í bankann. Í raun má segja að hin rafræna hugsun þessa gjald- kera hafi verið langt á undan sinni samtíð. Ávallt var mikil tilbreyting í því fyrir okkur að vinna úti á landi og eftir því sem kauptúnin voru smærri fannst heimamönnum meiri tilbreyting í að fá endurskoðandann í heimsókn. Eitt sinn fór Benni vestur á firði þar sem hann vann fyrir tvo viðskipta- vini. Benni fékk sér kaffi við vinnuna í mjólkursamlaginu og ætlaði að fá sér mjólk út í kaffið en var þá tjáð af starfmanni að því miður væri bara til léttmjólk. Benni sagði að það væri allt í lagi og fékk sér léttmjólk út í kaffið. Daginn eftir var Benni kom- inn út í fiskvinnslu að vinna og þegar hann var að fá sér kaffi þar í matsalnum þá sagði starfsmaðurinn sem sá um kaffið: Ég frétti að þú notaðir léttmjólk út í kaffið. Slík var nándin og fiski- sagan fljót í förum á þeim góða stað þar sem Halldór Arason er borinn og barnfæddur. Tilbreyting fólst líka í því að fara til útlanda með kollegunum það er félagsmönnum í FLE. Eitt sinn fórum við með því góða félagi til Brussel með mökum og þar fannst starfsfólki hótels- ins ekki ganga upp að fólk með mismunandi eftirnöfn væri saman í herbergi. Hafði starfsfólkið því farið út í það áður en við komum að endurraða fólki í herbergin eftir eins eða líkum eftir- nöfnum. Benni var t.d. settur í herbergi með bróður sínum Arnóri. Þarna varð auðvitað mikið uppistand sem tók langan tíma að greiða úr en allt fór vel að lokum. Í ársbyrjun 1982 fluttum við í alvöru skrifstofuhúsnæði að Sætúni 8 þar sem við fengum flestir eigin skrifstofu og gátum kófreykt í friði við vinnuna. Á svipuðum tíma komu til sögunnar fyrstu tölvurnar. Í byrjun ein stór tölva sem gerði allt sem gera þurfti við færslu bókhalds og síðan í kringum 1985 fengu reyndari starfsmenn einkatölvu með frumstæðum töflureikni. Eftir það hefur eiginlega ekkert merkilegt gerst í þeim málum annað en að einkatölvan hefur orðið léttari, öflugri og töflureikn- irinn flóknari. Síðan tóku við nýir tímar og gamla endurskoðunarskrifstofan okkar rann þá sitt skeið á enda og sameinaðist Deloitte&Touche í ársbyrjun 2001 og fluttum við þá upp á Stórhöfða þar sem við fengum allir litlar reyklausar sér skrifstofur. Það sem breyttist síðar í opin rými í Turninum í Kópavogi í ársbyrjun 2008 og nú síðast frjálst sætaval með engri fastri starfsstöð í sama turni í árlok 2017. Engin föst starfstöð þýðir jafnframt að ekki má vera neinn pappír á borðum og engar möppur þannig að skrifborð, hlaðin pappír og möppum sem lýstu áður dugnaði starfs- manns, eru úr sögunni. Á okkar langa starfsferli höfum við á öllum tímum kynnst frá- bæru samstarfsfólki og viðskiptavinum og ýmsu öðru sem of langt mál væri að telja upp hér. Eftir 40 ár í endurskoðunarstarf- inu erum við virkilega sáttir með þennan tíma og allar þær breytingar sem orðið hafa í okkar starfsumhverfi og gætum við alveg hugsað okkur að velja sama starfsvettvang ef við værum ungir menn í dag. Að lokum viljum við segja að greinarkorn þetta er sett saman til að minnast liðins tíma meira af gamni en alvöru, en vonandi hafa þeir kollegar okkar sem eru á svipuðum aldri gaman af og jafnvel þeir yngri líka a.m.k. fróðleiknum um verðbreytingarfærsluna. Benóní Torfi Eggertsson, Halldór Arason, Stefán D. Franklín og Sigurður Pálmi Sigurðsson

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.