FLE blaðið - 01.01.2018, Side 35
35FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2018
inguna selur. Annað húsnæði getur verið íbúðarhúsnæði eða
frístundahúsnæði. Skilyrði er að annað húsnæði til heimagist-
ingar sé í eigu þess er heimagistinguna selur og sé að öðru
leyti nýtt af honum sjálfum. Ef einstaklingar eru með fleiri en
tvær eignir til útleigu telst starfssemin atvinnustarfsemi.
heimagisting – takmarkanir
Stærðartakmörkun - í reglugerð kemur fram að ef leigð eru út
fleiri en fimm herbergi eða rými fyrir fleiri en 10 einstaklinga í
heimagistingu telst vera um gistiheimili að ræða, þrátt fyrir að
önnur skilyrði um heimagistingu séu uppfyllt.
Hámarksfjöldi daga - heimagisting takmarkast við samtals 90
daga á almanaksári. Ef seld er gisting í tveimur eignum má
samanlagður gistidagafjöldi ekki fara yfir 90 á ári. Í skilgreining-
unni er miðað við almanaksár, en samkvæmt lögum um virðis-
aukaskatt er viðmiðið 12 mánaða tímabil.
Hámark tekna - heimagisting takmarkast við tiltekna hámarks-
fjárhæð, sem er sú sama og mælt er fyrir um í lögum um virð-
isaukaskatt. Samkvæmt því ákvæði eru undanþegnir virðis-
aukaskatti þeir sem selja virðisaukaskattsskylda þjónustu fyrir
lægri fjárhæð en hina tilteknu, á 12 mánaða tímabili sem í dag
er 2.000.000 kr.
skráningarskylda Í stað rekstrarleyFis
Sá sem hyggst bjóða upp á heimagistingu er skráningarskyldur
og skal tilkynna starfsemina til sýslumannsins á höfuðborgar-
svæðinu eða á miðlægu vefsvæði sé það fyrir hendi.
Í tilkynningu til sýslumanns ber tilkynnanda að staðfesta að
húsnæðið uppfylli kröfur um brunavarnir og hollustuhætti og að
starfsleyfi heilbrigðisnefndar sé til staðar. Gististarfsemi, þ.m.t.
heimagisting, lýtur reglum laga nr. 7/1988, um hollustuhætti og
mengunarvarnir, og reglugerðar nr. 941/2002, um hollustu-
hætti. Þeir sem hyggjast sækja um skráningu heimagistingar
sækja um starfsleyfi til heilbrigðiseftirlits í því umdæmi þar
sem eignin er skráð.
Við skráningu skal sýslumaður úthluta sérstöku númeri sem
tilgreina ber í allri markaðssetningu heimagistingarinnar.
Skráningu heimagistingar þarf að endurnýja árlega.
Við lok hvers almanaksárs skal skila til sýslumanns yfirliti um
daga heimagistingar og tekjur af henni og er sýslumanni heim-
ilt að óska eftir frekari gögnum og staðfestingum ef þurfa þykir
s.s. nýtingaryfirlit frá bókunarvefjum. Sýslumanni er heimilt að
senda þær upplýsingar til skattyfirvalda.
Sýslumaður skal hafa eftirlit með að skilyrði heimagistingar séu
haldin og getur fellt niður skráningu ef útaf er brugðið og beitt
stjórnvaldsekt. Jafnframt getur sýslumaður lagt stjórnvaldssekt
á þann sem stundar heimagistingu án skráningar eða fer ekki
eftir þeim reglum sem um hana gildir. Gildir þá einu hvort leigu-
sali beri við vankunnáttu eða hvort um ásetning hafi verið að
ræða. Til að sinna eftirlitinu hefur starfsmönnum sýslumanns
verið fjölgað og starfa nú sex starfsmenn eingöngu við þennan
málaflokk samkvæmt upplýsingum frá Sýslumanni. Á þriðja
hundrað tilfella ólöglegrar heimagistingar hafa verið rannsökuð
og bíða ákvörðunar um viðurlög og einnig hafa á fimmta tug
leyfislausra aðila verið tilkynntir til lögreglu. Samkvæmt
Hagstofu Íslands er áætlað að á árinu 2016 hafi tæplega 3600
herbergi/íbúðir verið reglulega til leigu í gegnum vefsíðu Airbnb
og því ljóst að eftirlitsstarf sýslumanns og skattyfirvalda er
ærið.
Ef sýslumaður fellir niður skráningu eða heimilar ekki skráningu
þar sem skilyrði eru ekki uppfyllt er litið á starfsemina sem
atvinnustarfsemi og þarf þá að sækja um rekstrarleyfi fyrir
starfseminni. Starfsemin myndi þá vera skilgreind sem gisti-
staður án veitinga sbr. flokkun skv. lögum nr. 85/2007, um
veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
tekjuskattur
Með lögum nr. 59/2017 voru breytingar gerðar er varða skatt-
lagningu á útleigu manna á húsnæði. Meginreglan er að tekjur
manna af útleigu húsnæðis skuli skattlagðar sem tekjur af
atvinnuhúsnæði. Á það við um hvers konar húsnæði, þ.m.t.
íbúðarhúsnæði og frístundahúsnæði. Meginreglan á jafnt við
um langtímaleigu, sem fellur undir húsaleigulög og skamm-
tímaleigu, sem fellur undir lög um gististaði o.fl.. Ákvæðið
tekur eingöngu til tekna manna, en breytir engu um skattlagn-
ingu tekna lögaðila.
Frá meginreglunni um atvinnurekstrartekjur eru gerðar tvær
viðamiklar undantekningar, sem annars vegar taka til húsaleigu-
tekna af íbúðarhúsnæði og hins vegar til tekna af heimagist-
ingu.
Samkvæmt undantekningunni þá teljast ekki til atvinnurekstrar-
tekna tekjur af heimagistingu, skv. lögum um gististarfsemi
o.fl. Skilyrði er að heimagistingin hafi verið tilkynnt sýslumanni
og fengið skráningarnúmer. Leigutekjur af heimagistingu geta
að hámarki numið 2.000.000 kr. á ári. Heimagisting getur tekið
til lögheimilis leigusala og einnar annarrar eignar í hans eigu til
persónulegra nota hans. Samanlagður fjöldi daga í útleigu
getur að hámarki verið 90. Ef leigutekjur fara yfir 2.000.000 kr.